Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Heimilið endurspeglar okkur sjálf

Virpi Jokinen er ættuð frá Finn­landi en hefur verið búsett hér á landi í ald­ar­fjórð­ung. Hún hafði starfað sem skipu­lags­stjóri Íslensku óper­unnar í 11 ár, þar til fyrir rúmu ári þegar hún ákvað að venda kvæði sínu í kross og stofna fyr­ir­tækið Á réttri hillu. Skipu­lags­að­stoðin sem Á réttri hillu býður upp á felst í því að koma til aðstoðar hjá ein­stak­lingum og minni fyr­ir­tækjum þegar skipu­lags­leysi veldur vanda.

Heimilið endurspeglar okkur sjálf

Virpi segir verk­efnin mjög mis­mun­andi eftir þörfum við­skipta­vina og að starf hennar taki breyt­ingum eftir því hvað hvert verk­efni kallar á. „Öll verk­efnin byrja á klukku­stundar við­tali til að ræða stöð­una, sjá heim­ilið eða fyr­ir­tækið og setja mark­mið í sam­starfi við við­skipta­vin­inn. Eftir það er svo undir við­skipta­vin­inum komið hvort óskað er eftir að fá mig aftur seinna til að vinna að sjálfu verk­inu. Á meðan til dæmis er unnið að meiri háttar til­tekt eða und­ir­bún­ingi flutn­inga er hlut­verk mitt að vera tíma­vörður, hvetja við­skipta­vin­inn áfram, finna mögu­legar lausnir og koma með til­lögur. Ég tek aldrei ákvarð­anir um neitt eða mynda mér skoðun á því hvað við­skipta­vin­ur­inn á eða á ekki að gera. Markmið starfs míns er að við­skipta­vinir ann­að­hvort nái mark­miðum sínum eða kom­ist hægt og rólega af stað í átt að mark­miðum sínum“, segir hún.

Ekki alltaf auðvelt að óska eftir aðstoð

„Ég hafði sinnt marg­vís­legum verk­efnum hjá Óperunni og var alltaf með marga bolta á lofti,“ segir Virpi þegar hún útskýrir hvernig hug­myndin að fyr­ir­tæk­inu hafi komið til. „Í fram­hald­inu kvikn­aði þessi hug­mynd, að fara af stað með eigin rekstur og að loknu frá­bæru Braut­ar­geng­is­nám­skeiði hjá Nýsköp­un­ar­mið­stöð Íslands ákvað ég láta slag standa og stofn­aði Á réttri hillu í árs­byrjun 2018. Nafnið á fyr­ir­tæk­inu kom til mín í spjalli við vin­konu á veit­inga­stað þar sem ég var enn eina ferð­ina að útskýra þessa hug­mynd og að ég hefði svo mikla trú á þessu, mér fynd­ist ég bara vera svo á réttri hillu með þetta. Hún segir að svip­ur­inn á mér hafi verið kostu­legur þegar við átt­uðum okkur á að þarna væri rétta heitið loks­ins fundið. Þá var ekki aftur snúið og dag­inn eftir tók ég frá lénið www.arettrihillu.is.“

Virpi segir við­tök­urnar hafa verið mjög góðar og hún fagnar því hversu margir hafa sett sig í sam­band við sig. „Það er ekki alltaf auð­velt að óska eftir svona per­sónu­legri þjón­ustu, hvað þá að fá ein­hvern gjör­ó­kunn­ugan heim til sín. Ég hugsa að mér sé óhætt að full­yrða að flestum ef ekki öllum við­skipta­vinum mínum hingað til hafi þótt þjón­ustan koma sér vel og að mögu­leg feimni þeirra við að velja þessa þjón­ustu hafi snú­ist í ánægju yfir að hafa áttað sig á þessum mögu­leika og stigið það erf­iða skref að hafa sam­band. Við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins eru breiður hópur fólks, ein­stak­lingar til jafns við fjöl­skyldur, fólk með eigin rekstur, yngra og eldra fólk. Það sem einna helst ein­kennir við­skipta­vin­ina er að þeir eru oft á tíðum með mjög skýrar hug­myndir um loka­mark­miðið eða í það minnsta með mjög sterka til­finn­ingu fyrir þörf á ákveð­inni breyt­ingu á nákvæm­lega þessum tíma­punkti. Út frá því er þjón­ustan einnig hugsuð. Á réttri hillu er til aðstoðar á þeim tíma­punkti í líf­inu, verk­efn­inu eða ferl­inu þegar hennar er þörf. Að mínu mati er engin skömm að því að óska eftir aðstoð en það er aftur á móti dap­urt að neita sér um það ef brýn þörf er fyrir hendi.“

Meginatriði að gefa sér góðan tíma

Hingað til hafa öll verk­efni sem Virpi hefur tekið að sér snú­ist um hluti í eigu ein­stak­linga og fyr­ir­tækja. Hún aðstoðar við að finna leiðir til að fækka þeim og koma því sem eftir verður betur fyrir. Í sam­starfi við við­skipta­vini hefur hún meðal ann­ars létt á ýmiss konar hlutum á heim­ilum, fækkað papp­írum, tekið til í bíl­skúrum, geymslum og háa­loftum, und­ir­búið flutn­inga og útbúið vinnu­her­bergi.

Aðspurð um ráð fyrir þá sem vilja taka heim­ilið sitt í gegn telur Virpi meg­in­at­riði að gefa sér góðan tíma. „Að ætla heilt ár í að létta á venju­legu heim­ili er ekki langur tími, í mörgum til­fellum örugg­lega bara alveg mátu­legur. Í upp­hafi er nauð­syn­legt að sjá loka­mark­miðið fyrir sér og gefa sér góðan tíma til að móta það, jafn­vel skrifa það niður. Ef um fjöl­skyldu er að ræða er mik­il­vægt að fá sjón­ar­mið allra um það hvað hver og einn telur mik­il­vægt til að tryggja að útkoman þjóni öllum á heim­il­inu sem best. Ég tel að það sé lítið gagn að lista sem á stendur allt sem er að, en allt öðru máli gegnir um lista þar sem kemur fram hvernig maður vill hafa ákveðna hluti. Ég á við að í stað þess að hugsa eða skrifa hjá sér „bíl­skúr­inn er fullur af dóti“ væri betra að skrifa „ég vil geta keyrt bíl­inn inn í bíl­skúr“ eða „ég vil geta gengið að verk­fær­unum vísum á sínum stað og í lagi“. Þarna eru komin skýr mark­mið sem hægt er að fara að vinna að.

Ítar­legra við­tal við Virpi og fleiri góð ráð frá henni má finna í nýjasta tölu­blaði Vikunnar.

/Texti: Margrét Björk Jóns­dóttir
Myndir: Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur