Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Falleg perla í Eyjum

Vest­manna­eyjar skört­uðu sínu feg­ursta þegar okkur bar að garði í reisu­legt hús snemma dags í sept­em­ber­mán­uði. Það leynir sér ekki þegar inn í húsið er komið að þarna býr mikið smekk­fólk. Hugguleg lita­pal­letta og vandað efn­is­val ein­kenna heim­ilið sem skreytt er fal­legum mál­verkum og munum sem margir hverjir hafa til­finn­inga­legt gildi fyrir fjöl­skyld­una.

Falleg perla í Eyjum
Berglind Sig­mars­dóttir

Frá því að hjónin góð­kunnu, Berglind Sig­mars­dóttir rit­höf­undur og Sigurður Gíslason mat­reiðslu­meist­ari, keyptu húsið fyrir fimm árum hafa þau lagst í ýmis­konar fram­kvæmdir. Þau hafa meðal ann­ars byggt við húsið til þess að stækka eld­húsið og útkoman er hreint út sagt æðis­leg. „Húsið var upp­haf­lega byggt í kringum 1920, síðan var byggt ofan á það árið 1960. Þegar við keyptum húsið árið 2013 var efsta hæðin alveg hrá svo við þurftum að byrja á því að klára hana alla. Eins þurftum við að gera heil­mikið á neðstu hæð­inni en þar var meira að segja mold­ar­gólf í einu her­berg­inu, það hafði aldrei verið steypt,“ segir Berglind bros­andi þegar hún rifjar upp fram­kvæmd­irnar sem þau hafa ráð­ist í und­an­farin ár.

Við­bygg­ing og eld­húsinn­rétt­ing sem hæfa hús­inu
Berglind og Siggi, eins og hann er gjarnan kall­aður, eru bæði fædd og upp­alin í Vest­manna­eyjum. Þau fóru ung að árum á vit ævin­týr­anna en það var ekki fyrr en árið 2013 að þau ákváðu að flytja aftur heim á æsku­slóð­irnar með börnin sín fjögur. „Mér finnst alveg æðis­legt að vera svona nálægt fjöl­skyld­unni, eins er með krakk­ana, hérna eru þau svo frjáls og geta kíkt yfir til ömmu og afa hvenær sem er,“ segir hún alsæl á heima­slóðum. Hjónin fóru í miklar fram­kvæmdir síð­ast­liðið sumar þegar þau ákváðu að byggja við húsið til þess að stækka og opna eld­húsið. ,,Okkur fannst mikið atriði að við­bygg­ingin yrði þannig að það væri eins og hún hefði alltaf verið hluti af hús­inu. Við vildum ekki timbur eða eitt­hvað slíkt heldur er við­bygg­ingin bara steypt rétt eins og húsið,“ útskýrir Berglind.

Í eld­hús­inu eru hvítar flísar lagðar í fiski­beina­mynstri upp í loft og borð­plata úr carrara-marm­ara sem fer ein­stak­lega vel með grárri eld­húsinn­rétt­ing­unni en Berglind segir þau hjónin hafa verið sam­mála um mik­il­vægi þess að velja eld­húsinn­rétt­ingu sem hæfði hús­inu frekar en að finna ein­hverja nýtísku­legri. Þau viti sömu­leiðis vel hvað þau vilja enda fer líf þeirra að miklu leyti fram í eld­húsum. ,,Það kom til dæmis ekk­ert annað til greina en að hafa gas. Okkur finnst lýs­ingin líka skipta miklu máli og sömu­leiðis skipu­lagið og vinnu­að­staðan.“ Í eld­hús­inu, má meðal ann­ars finna krana fyrir ofan elda­vél­ina og upp­þvotta­vél sem þrí­fur leir­tauið á einni mín­útu, þetta eru atriði sem mögu­lega aðeins fólk sem brennur fyrir mat­ar­gerð og starf sitt hugsar fyrir.

Elda líka heima
Okkur lék for­vitni á að vita hvort þetta fal­lega eld­hús væri mikið notað eða hvort mat­ur­inn kæmi frekar úr öðrum eld­húsum þeirra hjóna. Berglind og Siggi eiga tvo veit­inga­staði hérna í bænum, GOTT og Pít­su­gerð­ina. Eru þið samt dug­leg að elda heima líka? „Já, við erum það. Það er bara hluti af fjöl­skyldu­sam­fé­lag­inu okkar. Að setj­ast niður og borða saman eða halda mat­ar­boð. Ég er meira í því að baka á meðan Siggi eldar,“ segir Berglind sem vill að allir séu vel­komnir inn á heim­ilið, jafnt vinir þeirra, vinir barn­anna, fjöl­skylda og aðrir.

Bláir tónar og verk sem gefa kraft
Inni í stof­unni er sama nota­lega stemn­ingin og í eld­hús­inu. Stofan var nýlega máluð í föl­bláum lit en Berglind virð­ist ein­stak­lega lagin við að skapa hlý­lega stemn­ingu þrátt fyrir kalda grunn­tóna. „Ég elska liti, ég reyni samt að hafa hús­gögnin frekar klass­ísk og skreyta með litum.“ Og það þarf varla að spyrja Berg­lindi hver hennar upp­á­halds­litur sé; „blár, allir bláir tónar,“ segir hún bros­andi. Við borð­stofu­borðið, sem Berglind keypti á mark­aði í Reykja­vík og lét setja á nýtt leður, stendur bóka­hilla. Þar er bók­unum smekk­lega raðað eftir litum en hver ein­asta bók í hill­unni er mat­reiðslu­bók ,,Þetta er svona þegar líf manns snýst um mat,“ segir Berglind sem sjálf hefur gefið út þrjár mat­reiðslu­bækur.

Í stof­unni er líka að finna fal­legan mynda­vegg en ætli sé saga á bak við allar mynd­irnar? ,,Já, eig­in­lega. Prests­frúin hérna í bænum, Gíslína Dögg, hélt sýn­ingu sem hét Konur í þátíð þar sem hún vildi mála allar þær konur sem ekki hafði verið getið í mann­kyns­sög­unni. Það eru til svo margar styttur af karl­mönnum en þetta er sagan þeirra, kvenn­anna. Þar sem ég er jafn­rétt­is­sinni og femínisti finnst mér mynd­irnar tvær af kon­unum gefa mér ákveð­inn kraft,“ en á veggnum má ein­ing finna vegg­spjald eftir lista­mann­inn Odee og fal­legt kort, sem yngsti sonur Berg­lindar gaf henni, í bland við eldri verk.

Texti / Katrín Andr­és­dóttir
Myndir / Unnur Magna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni