Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tók mér aldrei tíma til að vera góð við mig

Þótt leik­listin eigi hug leikkon­unnar Láru Jóhönnu Jóns­dóttur nán­ast allan hefur hún þó fleiri áhuga­mál, hún er meðal ann­ars útskrif­aður kundal­ini-jóga­kenn­ari. Svo notar hún tón­list til að kjarna sig.

Tók mér aldrei tíma til að vera góð við mig

Lára Jóhanna hefur und­an­farið fengið mikla athygli fyrir frá­bæra frammi­stöðu í hlut­verkum sínum í Lof mér að falla og Flat­eyj­ar­gátu. Í Flat­eyj­ar­gátu leikur Lára ein­stæðu móð­ur­ina Jóhönnu og eflaust ekki ein­falt að setja sig inn í tíð­ar­anda þess tíma sem þætt­irnir ger­ast á. „Ég var nátt­úr­lega ekki fædd á þessum tíma og get ekki sett mig inn í hvernig fólk hugs­aði þá,“ segir hún.

„Nema auð­vitað út frá hand­rit­inu, eins og maður gerir alltaf. Það er nefni­lega á end­anum þannig að allt sem maður er að fjalla um er í hand­rit­inu þannig að ég reyni bara að tengja við sög­una sem við erum að segja. Hún inni­heldur allt sem þetta sam­fé­lag var að takast á við. Ég lagð­ist ekki mikið í ein­hverjar sögu­legar pæl­ingar, nema hvað ég kynnti mér sögu femínista á þessum tíma  og hlust­aði á franska tón­list frá tíma­bil­inu, þar sem karakt­er­inn er að flytja heim frá París þegar þætt­irnir byrja. Ég er mjög mikið með tón­list í eyr­unum á töku­stað til að kjarna mig, ann­ars stekkur hug­ur­inn bara út um allt og það er erfitt að ein­beita sér.“

Þegar Lára er spurð hvort hún hafi lesið bók­ina Flat­eyj­ar­gátan, fer hún pínu­lítið hjá sér og seg­ist ekki vita hvort hún eigi að vera að upp­ljóstra því, en nei hún hafi aldrei lesið hana.

Ég for­gangs­rað­aði þannig að bókin væri ekki hluti af und­ir­bún­ingi fyrir hlut­verkið.

„Ég byrj­aði reyndar að lesa hana og var komin vel á veg þegar ég átt­aði mig á því að karakt­er­arnir í bók­inni og karakt­er­arnir í þátt­unum eru mjög ólíkir. Þannig að ég for­gangs­rað­aði þannig að bókin væri ekki hluti af und­ir­bún­ingi fyrir hlut­verkið. Ég er mjög spennt fyrir að lesa hana samt og geri það kannski núna þegar ég hef tíma. Þetta er svo stórt hlut­verk og ég þurfti að nýta tím­ann vel til að setja mig inn í þetta þannig að ég vildi ekki sóa tíma í eitt­hvað sem kæmi ekki að gagni, mér fannst það bara rugla mig hvað þessir karakt­erar eru ólíkir.“

Lára fer með lítið hlut­verk í annarri seríu af Ófærð sem verður frum­sýnd um jólin en annað er ekki vænt­an­legt á skjá­inn frá henni. Hún er nú á fullu að æfa í sýn­ing­unni Þitt eigið leik­rit eftir bekkj­ar­bróður hennar úr List­há­skól­anum, Ævar Þór Bene­dikts­son.

Það er ansi erfitt hlut­verk, þar sem áhorf­endur fá að velja fram­vindu verks­ins. „Ég er ekki hund­rað pró­sent viss um töl­una en ég held það séu 36 útgáfur af leik­rit­inu sem við þurfum að læra,“ útskýrir hún. „Það verður frum­sýnt í lok jan­úar og ég er rosa­lega spennt að taka þátt í þessu. Síðan fer ég að æfa í upp­færslu Stefans Metz á Lodd­ar­anum, Tartuffe, sem verður frum­sýnd í vor. Annað er ekki komið á dag­skrána hjá mér ennþá, enda er þetta feyk­inóg til að takast á við í bili.“

Jóga kennir manni hvað skiptir máli

Þótt leik­listin eigi hug hennar nán­ast allan hefur Lára þó fleiri áhuga­mál, er meðal ann­ars útskrif­aður kundal­ini-jóga­kenn­ari. „Ég kenni reyndar ekk­ert núna,“ segir hún.

„Ég kenndi svo­lítið á tíma­bili en það fer bara ekki vel saman við vinn­una mína. Það byrj­aði með því að ég fór í kundal­ini-jóga­tíma og bara heill­að­ist algjör­lega af því. Það var í fyrsta sinn sem ég kynnt­ist því að veita sjálfri mér nokk­urs konar helgi­stundir í dag­lega líf­inu. Ég hafði aldrei tekið mér tíma til að vera bara í núinu og vera góð við sjálfa mig. Mér fannst jóga­kenn­ara­námið eig­in­lega bara rök­rétt fram­hald. Ég hafði aldrei verið í neinum and­legum pæl­ingum, ég var svo mik­ill nörd og jógað setti hlut­ina í sam­hengi fyrir mér.“

Ég er reyndar ekki græn­metisæta eins og margir sem stunda jóga

„En ég stunda alls konar jóga og allan þann lífs­stíl sem teng­ist því; fer í jóga­tíma og hug­leiði, mæti á mön­tru­kvöld og svo fram­vegis. Eitt af því sem heillar mig við jógað er að þar kynn­ist maður félags­lífi sem er dálítið ólíkt því sem maður er vanur, til dæmis syngjum við mikið saman sem er eitt­hvað sem maður gerir yfir­leitt ekki nema vera í kór. Ég er reyndar ekki græn­metisæta eins og margir sem stunda jóga en ég borða rosa sjaldan kjöt, kannski fimm sinnum á ári, og er mjög með­vituð um að borða sem minnst af því, en auð­vitað breytir jógað lífs­stílnum heil­mikið. Ég held að það hafi haft mjög djúp­stæð áhrif á mig að læra jóga, ekki bara á lífs­stíl­inn heldur líka á lífs­sýn­ina, á það hvernig maður tæklar hlut­ina og hvernig maður metur hvað það er sem skiptir máli. Mér finnst það eig­in­lega stærsta gjöfin sem jógað hefur gefið mér. Ekki það að vera í súper­formi eða vera ótrú­lega liðug, heldur meira bara slaki gagn­vart líf­inu almennt.“

Þrátt fyrir að jóga­iðkun geti kennt fólki hvað skiptir máli í líf­inu, segir Lára erfitt að svara því hvað skipti hana máli. „Það er erfitt að svara því þannig að það meiki sens,“ segir Lára hik­andi.

„En ég er til dæmis mjög lítið fyrir það að setja mér mark­mið eða að ætla að ná eitt­hvert eða sjá fyrir mér hvar ég verð eftir ein­hvern ákveð­inn tíma. Það er auð­vitað frá­bært ef maður hefur virki­lega drauma um að kom­ast eitt­hvert ákveðið, en mér finnst jógað hafa kennt mér að ekk­ert skiptir í raun og veru máli – og ég meina það í jákvæðum skiln­ingi. Engin ein ákvörðun skiptir máli heldur eru það allar 170 ákvarð­an­irnar sem þú tekur á hverjum degi sem móta líf þitt. Það eru litlu hlut­irnir sem skipta máli þegar upp er staðið. Það virkar alla vega fyrir mig að vera ekki á þönum við að fylla upp í ein­hverja mynd af því hvernig maður heldur að lífið eigi að vera, heldur bara að leyfa hlut­unum að vera eins og þeir eru og muna að það sem maður er að gera í dag er nóg. Að bara vanda sig við hvert ein­asta verk­efni, það nægir. Að vera bara hér og nú í góðum sam­skiptum við fólk og vera ekki alltaf að reyna að hafa allt frá­bært. Það þarf ekk­ert alltaf allt að vera eitt­hvað ótrú­lega æðis­legt, heldur er æðis­leg­ast þegar hlut­irnir eru venju­legir. Stundum gef ég hlutum of mikið vægi og verð stressuð yfir þeim en ef ég tek aðeins úr sam­bandi og skoða stóra sam­hengið þá eru hlutir sjaldn­ast eins mik­il­vægir og maður heldur.“

Ég hef drauma um að fá að vinna við það sem ég hef áhuga á og er ótrú­lega þakk­lát fyrir það ef ég fæ verk­efni í mínu fagi.

Lára seg­ist ekki hafa drauma um að kom­ast á samn­ing í Hollywood og slá í gegn á heims­mæli­kvarða. „Nei, alls ekki,“ segir hún og hristir höf­uðið. „Ég hef drauma um að fá að vinna við það sem ég hef áhuga á og er ótrú­lega þakk­lát fyrir það ef ég fæ verk­efni í mínu fagi. En ef það ger­ist ekki þá verð ég nátt­úr­lega bara að búa mér til eitt­hvað annað að gera. Það nægir mér alveg. Frægð og frami heilla mig ekki. Aðal­at­riðið er að vera sátt í deg­inum, hvað sem hann býður mér upp á. Njóta þess að vera með dóttur minni og kærust­unni að gera hvers­dags­lega hluti saman. Það er alveg nóg.“

Viðtalið við Láru má lesa í heild sinni í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son
Förðun / Perla Kristín förð­un­ar­fræð­ingur Urban Decay

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ