Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fjögur ráð til að breyta kjördegi í kjörfjör

Fjögur ráð til að breyta kjördegi í kjörfjör

Mikið er talað um að kjör­sókn eigi eftir að dvína þar sem Íslend­ingar eru orðnir leiðir á kosn­ingum, og skildi engan undra. Það þarf hins vegar ekki að vera íþyngj­andi að kjósa en ef að þú ert ein/n af þeim sem finnst drep­leið­in­legt að kjósa og sérð ekki til­gang­inn í að keyra á stað til þess eins að setja lítið X á miða þá erum við með fimm skot­held ráð til að breyta kjör­degi í kjör­fjör.

1. Háleynileg aðgerð

Ímyndaðu þér að þú sért í þætti af 24 þar sem þú ert að keppa við tím­ann til að bjarga heim­inum. Búðu þess vegna til kapp­hlaup á kjör­stað án þess að nokkur sjái. Gefðu þér aðeins visst margar mín­útur til að koma þér á kjör­stað, inn í kjör­klefa og setja x við þinn flokk. Ímyndaðu þér að það sé ein­hver á hött­unum eftir þér og búðu til spennu sem drífur þig áfram. Passaðu þig samt að gera þig ekki of grun­sam­lega/n svo þú fáir nú örugg­lega að kjósa.

2. Haltu fyrirpartí

Bjóddu fullt af vinum og ætt­mennum í fyr­ir­partí þar sem þú býður upp á kosn­inga­tengdar veit­ingar eins og vöfflur (já, það verða alltaf að vera vöfflur), sós­í­alista­sam­lokur, lýð­ræð­is­límón­aði og fram­sæknar tertur. Þú getur skipu­lagt alls kyns leiki eins og ræðu­keppni þar sem hver gestur fær eina mín­útu til að halda ræðu og reyna að sann­færa hina um að kjósa eins og hann, eða Hver er mað­ur­inn? þar sem partí­gestum er skipt í hópa og einn úr hverju liði reynir að geta hvaða fram­bjóð­enda er verið að tala um. Síðan fjöl­menna allir á kjör­stað, mettir af kjör­kræs­ingum.

3. Klæddu þig eftir flokki

Svo getur verið ein­stak­lega skemmti­legt að klæða sig í mjög „bók­staf­legan“ klæðnað eftir því hvað þú kýst. Ef þú ert hlið­holl/ur Pírötum get­urðu tekið þér sjó­ræn­ingj­ann Johnny Depp úr Pirates of the Caribbean til fyr­ir­myndar og jafn­vel fengið gúmmí­s­verð lánað hjá krökk­unum til að full­komna útlitið. Ef Sjálf­stæð­is­menn heilla þig mest er lyk­il­at­riði að vera í vel pressuðum jakka­fötum, jafn­vel djúp­bláum og ekki gleyma bláa bind­inu. Ekki væri verra ef þú gætir mætt með upp­stopp­aðan Fálka, en Fálka­bangsi dugar líka. Eldrauð múnd­er­ing fyrir Sam­fylk­ing­una klikkar ekki og VG-ingar sóma sér vel í lopa­peysu hald­andi á latte með stórri skeið. Svo væri synd að missa af Mið­flokks-bún­inga­tæki­færi ef sá gáll­inn er á manni, en þar liggur bein­ast við að klæða sig upp sem vík­ingur. Þetta getur ekki verið leið­in­legt!

4. Illu er best aflokið

Ef ekk­ert af þessu heillar þig þá er það kannski bara ekk­ert fyrir þig að hafa gaman. Vaknaðu þá bara eldsnemma og drífðu þig hrein­lega á kjör­stað. Kjör­staðir opna klukkan 9 og reyndu að vera mætt/ur fimm mín­útum fyrir til að geta gengið hreint til verks, þram­mað í kjör­klef­ann, sett þitt X og farið svo heim að sofa. Svo ekki sé minnst á Facebook-færsl­una sem þú getur skrifað þar sem þú mont­aðir þig yfir því hvað þú sért mik­ill lýð­ræð­is­sinni og morg­un­hani.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ