Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bjór og nokkur af mörgum andlitum hans

Á morgun, 1. mars, eru liðin 30 ár frá því að 74 ára bjór­banni á Íslandi var aflétt. Fyrsta dag­inn eftir að bjór­bann­inu var aflétt var hægt að fá fimm bjór­teg­undir í vín­búðum í Reykja­vík. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og bjórúr­val er orðið ansi gott á Íslandi. Í til­efni af þessum tíma­mótum skoðum við hér ýmsar gerðir af bjór.

Bjór og nokkur af mörgum andlitum hans

Pale ale

Pale ale er upp­runa­lega breskur bjór­stíll.

Segja má að það hafi verið pale ale sem kom hand­verks­bjóra­bylt­ing­unni af stað í Banda­ríkj­unum, þó að það sé í raun of mikil ein­földun, en þessi bjór­stíll lék stórt hlut­verk í gríð­ar­legum vin­sældum craft-bjóra þar í landi. Pale ale er upp­runa­lega breskur bjór­stíll þar sem malt er í for­grunni en Banda­ríkja­menn hafa með tím­anum þróað sinn eigin stíl sem er mun huml­að­ari og yfir­leitt með aðeins hærri áfeng­is­pró­sentu.

India pale ale (IPA)

Upp­runa­lega þró­að­ist þessi bjór­stíll til að þola langan flutn­ing sjó­leiðis frá Bret­landi til Indlands og var hærra áfeng­is­magn sem og meira magn humla það sem gerði úts­lagið. Eins og með pale ale þá er mik­ill munur á breskum IPA, sem er frekar malt­aður og með minni humlailm, og banda­rískum, sem er með mun meiri áherslu á huml­ana. Imperial IPA/Double IPA er svo afbrigði af IPA sem inni­heldur meira magn (stundum helm­ingi) malts og humla og eru þar af leið­andi hærri í áfeng­is­magni og mun bragð­meiri. Tripla IPA er líka til og þarf senni­lega ekki að útskýra mikið nánar. New England IPA (NE IPA) er svo nýjasta afbrigði IPA-fjöl­skyld­unnar og ein­kenn­ast þeir bjórar af minni beiskju en hinir venju­legu IPA og eru með mun meiri humlailm og -bragð.

Stout

Þessi dökki bjór­stíll kom fram í byrjun 18. aldar og var hann oft kenndur við sterk­ari útgáfur af porterum, sem er svo með annan dökkan bjór­stíl. Munurinn á porter og stout hefur síðan farið fram og til baka í gegnum ald­irnar og má færa rök fyrir því að hann sé nán­ast eng­inn í dag. Dry Stout (t.d. Guiness), milk stout (brugg­aður með laktósa) og oat­meal stout (brugg­aður með höfrum) eru nokkur dæmi um mis­mun­andi afbrigði stout (státa). Imperial stout er svo enn eitt afbrigðið og rétt eins og með Imperial IPA þá inni­heldur hann mun meira af malti og humlum sem gerir hann bragð­meiri og sterk­ari. Það sem þeir eiga allir sam­eig­in­legt er að þeir eru allir kol­svartir með rist­uðum tónum.

Hveitibjór

Í hveiti­bjór er hveiti notað til helm­ings á móti byggi.

Eins og nafnið gefur til kynna er hveiti notað til helm­ings á móti byggi sem gefur bjórnum hið skýj­aða útlit. Það eru strangt til tekið 3 afbrigði hveiti­bjórs – hinn belgíski Witbier, þýskur Hefeweissen og svo að sjálfs­sögðu amer­ískur hveiti­bjór. Munurinn milli Witbier og Hefeweissen liggur í ger­inu en einnig tíðkast að nota kórí­ander og app­el­sínu­börk í Witbier, sem er aug­ljós­lega gróft brot á hinum þýsku bjór­lögum (Rein­heits­ge­bot). Amer­ískur hveiti­bjór er svo hlut­laus­asti og huml­að­asta útgáfa hveiti­bjór­ana.

Lager

Í raun mætti flokka alla bjóra í tvo flokka – lager og öl. Það sem ein­kennir lag­er­bjór­inn er að hann gerj­ast við mun lægra hita­stig en öl og verður þ.a.l. mun bragð­minni. Yfir­leitt er lag­er­bjór­inn ljós­gull­inn á lit­inn og frekar bragð­lít­ill í sam­an­burði við ofan­greinda bjóra.

Pilsner

Pilsner er upp­runinn í tékk­neska bænum Pilsen.

Því miður höfum við í gegnum tíð­ina fest orðið pilsner við áfeng­is­lít­inn (2,25%) bjór en í raun er þetta gríð­ar­lega merki­legur bjór­stíll. Í grunn­inn er þetta lag­er­bjór sem er upp­runinn í tékk­neska bænum Pilsen (Plzeň) og var á þeim tíma einn fyrsti ljósi lag­er­bjór­inn sem var fram­leiddur. Yfir­leitt er hann bragð­meiri og aðeins beisk­ari en hinn venju­legi lag­er­bjór en klass­ískur pilsner á engu að síður að vera brak­andi og frekar léttur. Þýskur pilsner kom svo í kjöl­farið á hinum tékk­neska sökum vin­sældar hans og er oft létt­ari.

Umsjón / Eymar Plédel Jónsson og Dominique Plédel

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni