Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Skiptir viðurinn og stærðin máli?

Fróð­leikur um mis­mun­andi vín­tunnur og áhrif þeirra á vínið sjálft.

Skiptir viðurinn og stærðin máli?

Það var fyrst hjá Gaul­verjum sem við­ar­tunnan leit dags­ins ljós fyrir rúm­lega 2000 árum, þá var hún aðal­lega notuð fyrir mjöð eða öl. Róm­verjar, Grikkir og allir sem höfðu þurft að flytja vín á milli staða áður not­uðu leir­í­lát, „amfórur“ sem eru að kom­ast aftur í tísku. Tunnu­gerð hefur verið mjög öflug alla tíð síðan og þessi 2000 ára saga tunn­unnar hefur sett sitt mark á nútíma­vín­gerð. Líklega hafa margar mis­mun­andi teg­undir af víði verið not­aðar og einnig hafa stærð­irnar á tunn­unum verið mis­mun­andi eftir því hvar þær voru fram­leiddar enda hafa þær fengið mörg nöfn alla vega í Frakk­landi þaðan sem tunnu­notk­unin er upp­runnin.

Viðurinn

Í dag er nán­ast ein­göngu notuð eik í tunnu­gerð en það hefur ekki alltaf verið til­fellið, allar teg­undir sem voru við hönd­ina voru not­aðar. Í seinni heims­styrj­öld­inni var til dæmis not­aður hlynur eða akasíu­víður í Suður-Frakk­landi, aðal­á­staðan fyrir því var sá að norð­ur­hluti lands­ins var undir hæl Þjóð­verja og ómögu­legt að ná í eik. Árang­ur­inn var reyndar slakur en ekki hægt að gera annað á þessum tímum.

Í dag er nán­ast ein­göngu notuð eik í tunnu­gerð.

Á Ítalíu hefur villikirsu­berja­viður verið not­aður eins og í bals­amedik en þó sjaldan. Eikin getur verið frá Frakk­landi eða Banda­ríkj­unum og er munur þar á milli. Franska eikin kemur frá skógum í eign franska rík­is­ins því hún verður að vera full­þroska þegar hún er notuð en eik getur orðið 250-300 ára gömul og þar þarf að huga að end­ur­nýjun með frekar löngu fyr­ir­vara. Hún er þétt­ari en amer­íska eikin og gefur af sér ristaða bragð­tóna í vínið.

Amerísk eik er laus­ari í sér, með laus­ari trefjar og gefur meira af sætum vanillu- og kókós­tónum. Tunnan er brennd að innan, mis­mikið en algeng­ast er „medium +“ óal­gengt er að óbrennd tunna sé notuð nema með sér­með­höndlun (t.d. látin liggja í vatni) til að forð­ast hörðu tannínin.

Stærðin

Allar stærðir eru not­aðar, allt eftir því hvað vín­gerð­ar­mað­ur­inn velur, hvort hann kýs að hafa mik­inn eða lít­inn eik­ar­keim af vín­inu en það er ekki bara bragðið heldur sam­setn­ingu á þrúg­unum eða frá hvaða ekrum þrúg­urnar koma. Í ald­anna rás hafa sum héruð og sér­stak­lega í Frakk­landi, fest sig í ákveðnar stærðir sem allar bera ákveðið nafn.

Algengastar eru þó „barrique bor­dela­ise“ frá Bordeaux sem er 225 lítrar, og „barrique bourguignonne“ sem er 228 lítrar. Önnur nöfn sem heyr­ast enn mjög víða eru „pièce“ (140-420 l ), „botte/botta“ (450-500 l), „feuil­lette“ (114-120 l), „muid“ (13-600 l – aðal­lega í Norður-Frakk­landi. Portvínstunnan er kölluð „pipe“ og er 522 l, svo eru tunn­urnar sem not­aðar eru undir sérrí 600 l. Loks er „foudre“, 1000 l eða meira, sem eru fastir á sínum stað og eru not­aðir eins og stál- eða sem­ent­stank­arnir til að gerja vínið í eða geyma.

Myndir / Unsplash

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni