Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Framtíðin með tækninni – iPad og forritun í kennslu

Forritun er stór hluti af okkar dag­lega lífi, hvort sem við erum að senda tölvu­pósta, taka ljós­mynd á snjall­síma, borga með korti, horfa á Netflix eða taka strætó, þá eru þetta allt athafnir sem krefj­ast for­rit­unar á ein­hvern hátt. Margir telja að störf fram­tíð­ar­innar komi til með að byggja í meira mæli á staf­rænu læsi og for­rit­un­ar­þekk­ingu.

Framtíðin með tækninni – iPad og forritun í kennslu

Jafn­framt er því haldið fram af World Economic Forum að 65% starfa fram­tíðar séu ekki enn þá til og að flest þeirra komi til með að teng­ist tækni á ein­hvern hátt. Því er mik­il­vægt að skólar séu sam­ferða þess­ari þróun með mark­vissri for­rit­un­ar­kennslu fyrir nem­endur. Ávinn­ing­ur­inn af for­rit­un­ar­kennslu er mik­ill. Að þekkja og nota for­rit­un­ar­tungu­mál er ákveðið læsi á staf­rænni öld. Nemendur fær­ast þannig úr því að vera neyt­endur tækn­innar eða not­aðir af henni, yfir í að vera not­endur og nýta sér tækn­ina til sköp­unar. Við spjöll­uðum við Álf­hildur Leifs­dóttir, sem er grunn­skóla­kenn­ari í Árskóla Sauð­ár­króki og með APL vottun frá Apple, um hvernig hægt er að nýta sér tækn­ina í kennslu og vekja áhuga kenn­ara og nem­enda um leið.

Forritunarkennsla

„Með því að læra for­ritun geta nem­endur skapað sín eigin hug­ar­fóstur, gert hugs­anir sínar að gagn­virkum raun­veru­leika og er það í raun­inni ein­ungis þeirra eigið ímynd­un­ar­afl sem er hindrun í þeirri sköpun. Þegar unnið er með for­ritun þjálfast bæði rök­hugsun og lausn­ar­miðuð hugsun á annan hátt en með stærð­fræði. Það er vegna þess að nem­endur sjá afrakst­ur­inn á gagn­virkan hátt um leið og þeir for­rita og eitt­hvað sýni­legt verður til. Nemendur þjálfast í sam­vinnu og þol­in­mæði því það að leita lausna saman og sýna þraut­seigju lærist vel með for­ritun. Nemendur læra að hugsa leið­ina að tak­mark­inu í litlum skrefum, brjóta vanda­málin í minni ein­ingar og finna lausnir á hverri þraut með gagn­rýnni hugsun. Leikni á þessu sviði gefur nem­endum færni sem getur orðið þeim mik­il­væg í fram­tíð­inni,“ segir Álf­hildur.

„Forritun er góð leið til að læra af mis­tökum, því leiðir að mark­mið­inu geta verið margar og alls ekki sjálf­gefið að ná réttri leið í fyrstu til­raun. Þá þarf að greina mis­tökin, læra af þeim og gera betur. Oft ná þeir nem­endur sem ekki finna sig eins vel í öðrum bók­legum náms­greinum góðum tökum á for­ritun og þannig getur hún aukið sjálfs­traust og almennan áhuga á námi hjá þeim ein­stak­lingum. Mark­miðið með for­rit­un­ar­kennslu er ekki að allir verði for­rit­arar, heldur að allir fái tæki­færi til að kynn­ast for­ritun. Þannig er verið að þjálfa marg­þætta færni sem nýt­ist nem­endum okkar í fram­tíð­inni. Alveg eins og allir þurfa að kynn­ast heim­il­is­fræði, smíðum og fleiri greinum í grunn­skóla.“

Hún segir að sumir gætu talið það óraun­hæft að hinn almenni kenn­ari, sem ekki hefur for­rit­un­ar­menntun geti kennt for­ritun í grunn­skólum. En með þjálfun, aðgengi að góðu kennslu­efni og réttu hug­ar­fari geti allir kenn­arar kennt fyrstu skref í for­ritun. „Það er ein­fald­lega vegna þess að kenn­arar eru upp til hópa mjög góðir í að til­einka sér nýja þekk­ingu og deila henni áfram. Hægt er að sam­þætta for­ritun við önnur fög, hvort sem það er stærð­fræði, tón­list eða tungu­mála­kennsla og að auki gæti for­ritun verið áhuga­vert val í skap­andi skilum á verk­efnum.“

Mikil vakn­ing er varð­andi for­rit­un­ar­kennslu bæði erlendis og hér­lendis og er margt í boði sem hægt er að nýta sér í kennslu, bæði öpp og ýmis tækja­bún­aður.
Apple hefur gefið út ókeypis for­rit­unar-app fyrir IOS-tæki, sem kall­ast Swift Playgrounds, en það nýtur mik­illa vin­sælda bæði í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Swift Playgrounds er eins og raf­ræn bók með mis­mun­andi verk­efnum sem þarf að leysa. Það er hannað til að vera byrj­enda­vænt og það krefst engrar for­rit­un­ar­þekk­ingar af nem­endum.  Þannig er það frá­bær leið til að byrja að læra for­ritun. Verk­efnin í app­inu eru auð­veld til að byrja með en þyngj­ast með góðum stíg­anda. Appið er gagn­virkt þannig að nem­endur sjá eitt­hvað ger­ast á skjánum um leið og þeir keyra kóð­ann sinn sem gerir verk­efnin lif­andi. Swift Playgrou

nds er hægt að tengja gagnauknum veru­leika og ýmsum auka­hlutum sem margir skólar hafa nú aðgang að. Til dæmis Sphero-kúlum, drónum og for­rit­an­legum vél­mennum.

Swift Playground-app í boði Apple

„Það koma reglu­lega inn ný og spenn­andi verk­efni í Swift-appið svo áhuga­samir nem­endur verða ekki verk­efna­lausir,“ segir Álf­hildur. „Apple leggur mikla áherslu á að vinna með þann raun­veru­leika sem nem­endur tengja við þannig að verk­efnin séu áhuga­verð. Þegar nem­endur hafa náð góðri færni í kóðun geta þeir sjálfir hannað sín verk­efni frá grunni í  app­inu. Í Swift Playgrounds geta nem­endur valið for­rit­un­ar­skip­anir með því að smella á þær. Þannig er komið í veg fyrir inn­slátt­ar­villur sem hindra að kóð­inn virki og getur tekið langan tíma að laga. Þetta er frá­bær eig­in­leiki þegar byrjað er í for­ritun en jafn­framt er hægt að slá inn kóða sjálfur þegar leikn­inni hefur verið náð.

For­rit­un­ar­mál er eins og tungu­mál með mörgum mál­lýskum, um leið og nem­andi hefur fengið þjálfun í einu for­rit­un­ar­máli þá er hann fljótur að ná til­einka sér önnur. Mörg vin­sæl öpp eru skrifuð í Swift-kóða frá Apple þó að það sé ekki gam­alt for­rit­un­ar­mál. Þannig að Swift er full­kom­lega sam­keppn­is­hæft for­rit­un­ar­mál sem er öllum aðgengi­legt og býr nem­endur undir þeirra fram­tíð.“

Myndir: / Úr safni Epli
Í sam­starfi við Epli

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur