Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Rafrænt ferðalag um Reykjavík

Raf­tón­list­ar­há­tíðin Extreme Chill Festival verður haldin í tíunda sinn dag­ana 12.-15. sept­em­ber í Reykja­vík. Tón­list­ar­menn­irnir og feðgarnir Pan Thoraren­sen og Óskar Thoraren­sen standa að baki henni, en þeir fengu hug­mynd­ina að hátíð­inni á Hellisandi árið 2009 og segj­ast hafa það að mark­miði að gera allt betur með hverju ári.

Rafrænt ferðalag um Reykjavík

„Við vorum í upp­tökum á plöt­unni okkar Hypnogogia með Stereo Hypnosis, þegar við fjöl­skyldan rák­umst á fal­legt félags­heim­ili, Röst, í einni af okkar göngum um Hell­issand. Um leið og við sáum það vissum við að þarna ætl­uðum við að halda útgáfu­tón­leik­ana okkar um haustið 2009. And­rúms­loftið og umhverfið reynd­ist síðan svo stór­feng­legt, ekki síst með ambient-tón­list­inni okkar, að við ákváðum að gera meira úr þessu og ári seinna var fyrsta hátíðin haldin undir jökli á Snæ­fells­nesi,“ segir Pan, spurður að því hvernig hug­myndin að Extreme Chill Festival hafi kviknað.

Hátíðin er nú tíu ára og verður að þessu sinni haldin í Reykja­vík í ár. „Þetta á eftir að verða fjög­urra daga tón­list­ar­veisla þar sem íslenskir og erlendir lista­menn með ólíkan bak­grunn á öllum aldri mæt­ast í sköpun sinni,“ útskýrir Pan spenntur og segir að þótt þetta sé raf­tón­list­ar­há­tíð í grunn­inn þá hafi hún færst meira út í til­rauna­kennda tón­list, klass­íska, „ambient“ og alveg út í jazz.

Pan Thoraren­sen stendur ásamt föður sínum, Óskari Thoraren­sen, að baki Extreme Chill Festival.

„Það opnar nátt­úr­lega fleiri dyr fyrir okkur og hlust­and­ann.“ Hann bætir við að mark­mið hátíð­ar­innar sé að kynna íslenska og erlenda raf­tón­list­ar­menn og vídeó/mynd­list­ar­menn og tengja saman ólík list­form, hljóð­heim raf­tón­list­ar­innar og lif­andi mynd­heim. Ásamt því auð­vitað að vekja athygli á Reykja­vík sem raf­tón­list­ar­höf­uð­borg Íslands. 

Laðar að sér stór nöfn

Á þessum tíu árum hefur hátíðin verið haldin bæði víða um land og í Berlín og verið í sam­starfi við ýmsar hátíðir, hér­lendis sem og ytra. Ekki nóg með það heldur hefur hátíðin og starfið í kringum hana leitt af sér fjölda útgáfa, tón­leika, ferða­laga erlendis, sam­starf við erlenda sem inn­lenda tón­list­ar­menn að ótöldum ógleym­an­legum upp­setn­ingum á hátíðum erlendis og inn­an­lands. Þá hefur hátíðin laðað að sér þekkt erlent tón­list­ar­fólk, eins og The Orb, Mixmaster Morris, Biosphere og nú Tan­gerine Dream.

Er ekk­ert mál að fá þessi stóru nöfn til að spila á Íslandi?

„Það hefur nátt­úr­lega verið mikil vinna að standa í þessu,“ við­ur­kennir Pan fús­lega. „Síðustu ell­efu ár höfum við mikið verið að spila erlendis og á þessum ferða­lögum hafa mynd­ast góð sam­bönd ýmist við tón­list­ar­fólk og tón­leika­hald­ara, umboðs­menn, útgefandur og blaða­menn. Tengsla­netið er orðið mjög sterkt, þetta er ekki eitt­hvað sem þú færð úti í búð.“

Vann með syni Charlie Chaplin

Sjálfur er hann tón­list­ar­maður; hóf fer­ill­inn í hip hop-i og rappi undir nafn­inu Beat­makin Troopa og færði svo sig yfir í electro- og ambient-tón­list og út frá því stofn­aði hann Stereo Hypnosis með föður sínum. Spurður hvort hann sé enn undir áhrifum frá hip hop-i segir hann að svo sé, og þá aðal­lega instru­mental hip hop-i. „En það er voða lítið í gangi í hip hop-heim­inum, allt hljómar eins, og taktar og texta­gerð ekki upp á marga fiska. Maður þarf að grafa svo­lítið djúpt niður í mold­ina til að finna alvöru­texta og -takta. Hefur reyndar alltaf verið þannig en er mjög slæmt núna.“

„En það er voða lítið í gangi í hip hop-heim­inum, allt hljómar eins, og taktar og texta­gerð ekki upp á marga fiska.“

Pan seg­ist þó ekki ætla að láta það aftra sér frá því að gefa út plöt­una Best of Beat­mak­ing Troopa á þessu eða næsta ári, en hún mun inni­halda nýtt efni í bland við lög frá 2004-2012. Ekki nóg með það, heldur hefur hann sent frá sér glæ­nýja plötu með Stereo Hypnosis sem kall­ast Bjarmi og er unnin í sam­starfi við tón­list­ar­mann­inn Christopher Chaplin, son stór­leik­ar­ans og -leik­stjór­ans sál­uga Charlie Chaplin. „Við kynnt­umst Christopher þegar hann spil­aði með Hans-Joachim Roedelius á Extreme 2016 og eftir það höfum við spilað með honum á mörgum tón­leikum, bæði í Berlín og hér heima. Síðasta sumar settum við svo upp saman upp­töku­ver á Hvamms­tanga og þar var platan okkar tekin upp „live“ á einum degi.“ Hann bætir við að Christopher sé skugga­lega líkur pabba sínum. „Já, þeir eru mjög líkir. Sömu taktar og hreyf­ingar, magnað að sjá það.“

Aftur að Extreme Chill, bjóstu ein­hvern tím­ann við því að hátíðin yrði þetta lífseig og næði á þennan stað? „Já, ég gerði það. Þetta hefur bara gengið vel, enda mikil eft­ir­spurn og áhugi fyrir svona hátíðum um allan heim. Margt fólk orðið lang­þreytt á öllum þessum stóru tón­list­ar­há­tíðum og farið að sækja í eitt­hvað ein­stakt. Sér­hæfðar tón­list­ar­há­tíðir eru málið í dag.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Myndir / Brynjar Snær

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar