Umbra var stofnuð haustið 2014 og er skipuð fjórum atvinnutónlistarkonum. Sveitin gaf út tvær plötur hjá plötuútgáfunni Dimmu árið 2018; annars vegar plötuna Úr myrkinu, sem kom út í apríl 2018 og inniheldur forn lög úr evrópskum handritum sem tengjast dekkri hliðum mannlegrar tilveru, og hins vegar jólaplötuna Sólhvörf sem kom út í nóvember 2018.
Herlegheitin fara fram í Mengi og húsið opnar klukkan 20.30. Miðaverð er 2.500 krónur.































Athugasemdir