Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sköpunarkrafturinn og lífsgleðin voru horfin

Tón­list­ar­konan Alex­andra B. Elfar sendi nýverið frá sér lagið Chained sem fjallar um til­finn­ingar en Alex­andra semur oft­ast lög um hluti sem hún hefur upp­lifað sjálf. Tónlist hefur alltaf haft mikil áhrif á hana en árið 2013 breytt­ist margt í lífi Alexöndru.

Sköpunarkrafturinn og lífsgleðin voru horfin

„Ég er frekar gam­al­dags þegar kemur að tón­list. Fer eftir því hvernig stuði ég er í,“ segir Alex­andra spurð út í tón­list­arsmekk­inn og bætir við að hljóm sveitin Queen sé í mestu uppá haldi.

Fyrir stuttu sendi hún frá sér lagið Chained sem fjallar um álag, upp gjöf, sorg og höfn un en hún segir að flestir ættu að geta tengt með ein­hverj um hætti við við­fangs­efnið. Alex­andra semur oft­ast lög um það sem hún hefur upp­lifað sjálf og segir að oft fái hún meló­díur til sín bæði í draumum og dagdraumum.

„Ég heyri öll hljóð­færin í hausnum á mér og þar sem ég kann ekki nótur er mjög þægi­legt að vinna með fólki sem hlustar á mig raula hvert hljóð­færi fyrir sig þegar ég er í stúd­íó­inu.“ Hún vinnur mikið með Stefáni Erni Gunn­laugs­syni í Studio Bambus og segir að sam­starfið sé æðis­legt. „Hann veit og skilur alltaf nákvæm­lega það sem ég er að hugsa og pæla.“

Áhuginn á tón­list kvikn­aði þegar Alex­andra heyrði afa sinn, Árna Elfar, spila á píanó, en hann kenndi Alex­öndru að spila eftir eyr­anu og spil­uðu þau oft saman í marga klukku tíma. „Hann var minn lærifaðir og besti vinur.“

Þegar Alex­andra varð 9 ára fékk hún löngun til að læra á gítar og þar sem faðir hennar spil­aði sjálfur á gítar kenndi hann henni hljóma. Í kjöl­farið jókst áhugi hennar á tón­list til muna og Alex­andra fór að syngja og hún spilar nú að auki á alls konar hljóð­færi, allt frá ukul­ele upp í píanó.

Fékk ranga greiningu og var sett á sjö lyf

Árið 2013 tók líf Alexöndru hins vegar stakka­skiptum þegar hún fékk tauga­á­fall út frá þung­lyndi og streitu sem hún hafði glímt við í langan tíma. Hún var lögð inn á geð­deild og rang­lega greind með geð­hvörf og í kjöl­farið sett á sjö teg­undir af lyfjum. „Áður en ég vissi af var ég orðin 115 kíló og leit út eins og upp­vakn­ingur. Ég fún­ker­aði engan veg­inn sem mann­eskja. Sköp­un­ar­kraft­ur­inn og lífs­gleðin voru horfin, enda var ég orðin algjör­lega gegn­sósa af geð­lyfjum sem ég í raun þurfti ekki á að halda,“ segir hún.

„… enda var ég orðin algjör­lega gegn­sósa af geð­lyfjum sem ég í raun þurfti ekki á að halda.“

Alex­andra seg­ist hafa fengið nóg einn dag­inn og hætt á öllum lyfj­unum en tekur fram að hún mæli engan veg­inn með því við neinn. „Auðvitað hefði ég átt að gera það í sam­ráði við lækni.“

Næsta hálfa árið upp­lifði Alex­andra mikla van­líðan. Eftir að hafa háð erf­iða bar­áttu og misst 55 kíló seg­ist hún nú loks­ins farin að vera hún sjálf aftur. Spurð hvernig hún hafi kom­ist í gegnum veik­indin segir hún að svarið við því sé ein­falt. „Það er alltaf hægt að sjá eitt­hvað fyndið, sama hversu erfitt er hjá manni,“ segir hún.

„Mér líður mjög vel í dag, ég er ekki á lyfjum og full af orku, enda með ADHD á háu stigi, en finnst það alls ekki nei­kvætt. Ég lít á ADHD sem snilli­gáfu,“ segir hún peppuð og full þakk­lætis. Hún hvetur alla sem eru að berj­ast við kvíða og van­líðan að leita sér hjálpar. „Tala við sál­fræð­ing eða tala um vanda­málið við fólk sem maður treystir. Það er ekki hægt að vinna sig frá tauga­á­falli einn. Aldrei gef­ast upp því lífið hefur upp á svo margt að bjóða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar