Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Áhættan borgaði sig

Leik­stjór­inn, leik­ar­inn og tón­list­ar­mað­ur­inn Magnús Jónsson var að senda frá sér sína fyrstu kvik­mynd í fullri lengd en hún var for­sýnd á IFF indý-hátíð­inni í London þann 21. febr­úar. Myndin sem ber tit­il­inn Taka 5 var þar til­nefnd sem besta erlenda myndin, Hilmir Jensson var til­nefndur sem besti leik­ari í erlendri mynd og Halldór Gylfason fyrir bestan leik karla í auka­hlut­verki.

Áhættan borgaði sig
|

„Það eru strax frá­bærar fréttir fyrir mynd­ina og kemur henni von­andi eitt­hvað áfram,“ segir Magnús, í skýj­unum með árang­ur­inn.

Magnús Jónsson.

Hann við­ur­kennir að upp­haf­lega hafi hann reyndar ætlað að skrifa hryll­ings­mynd sem átti að snú­ast um fólk sem er læst inni í her­bergi. „Helst óvini sem eru neyddir til að vera saman í lok­uðu rými þar sem flótti er algjör­lega óhugs­andi.

Vinna með skynj­anir og drauga for­tíðar hvers og eins þeirra við þessar aðstæður. Þar sem þau fá erf­iðar þrautir að leysa til að kom­ast út. En þá var hug­myndin orðin of „heví“, fannst mér, og í stað­inn ákvað ég að skrifa sögu um ungan bónda, leik­inn af Hilmi Jenssyni, sem hefur alist upp við amer­ískar bíó­myndir og er orð­inn félags­fæl­inn eftir að hafa ein­angr­ast á bæ sínum,“ lýsir hann og nokkuð greini­legt að sú nálgun á sög­una hefur hrifið breska kvik­mynda­brans­ann.

„Ótrúlega lærdómsríkt“

Magnús er fyrir löngu orð­inn lands­þekktur leik­ari en hefur einnig starfað sem tón­list­ar­maður og list­mál­ari und­an­farin ár auk þess að reka leik­tækni­skóla með Þor­steini Bachmann. Hann hefur gert nokkrar stutt­myndir í gegnum tíð­ina. Mjög súrar stutt­myndir, eins og hann orðar það sjálfur, en Taka 5 er hans fyrsta mynd í fullri lengd. „Mig lang­aði að kynn­ast öllum þráðum við að klára svona heila bíó­mynd,“ útskýrir hann.

„Sjá hvað ger­ist í klippi­her­berg­inu, hvernig tón­listar-score og fleira er unnið. Læra hand­verkið. Þessa heill­andi eft­ir­vinnslu. Að gera svona mynd frá a til ö hefur verið ótrú­lega lær­dóms­ríkt.“

Hann segir að þar að auki hafi hann farið nokkuð óhefð­bundnar leiðir við gerð mynd­ar­innar. „Bransinn hérna heima er mjög „pró“ sem er frá­bært, en mig lang­aði til að kom­ast eins langt frá honum og ég gat með því að gera eig­in­lega allt sjálfur í þessarri mynd. Taka 5 var því búin til án brans­ans að mestu, ef svo má að orði kom­ast. Það er að segja: Ég sótti ekki um fram­leiðslu­styrk frá KMÍ því ég vildi fara óháða leið að öllu leyti með mynd­ina. Leikarar og kvik­mynda­tökulið gerðu þessa mynd og eiga hana saman.“

Sérstök stemning á tökustað

Magnús seg­ist vona að hann komi til með að vinna meira á þessum nótum í fram­tíð­inni, því mjög sér­stök stemn­ing mynd­ist með lista­mönnum þegar unnið er hratt og undir tíma­pressu og á þessum for­sendum.

„Werner Herzog segir að besta reynslan sé að gera mynd sjálfur og gefur ekki mikið fyrir skóla. Segir að í kvik­mynda­skólum ættu að vera tvær vikur „topps“ til að læra á tækin en svo ætti maður að hoppa í djúpu laug­ina og læra af reynsl­unni við fram­kvæmd­ina. Ég reyndi að vera trúr þessu sjón­ar­miði.“

Eftir gott gengi á IFF er ekki úr vegi að spyrja hvert fram­haldið sé, hvað leik­stjór­inn ætli sér með mynd­ina sína. „Planið er bara að fara með hana á fleiri hátíðir þegar fram líða stundir. Það eru ein­hverjar 300 hátíðir sem eru í gangi í heim­inum, þannig að það er alla vega úr nógu að velja,“ svarar hann og glottir.

Þess má geta að ítar­legra við­tal við Magnús er að finna á albumm.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar