Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Færri greinast með krabbamein af völdum reykinga

Í árs­skýrslu Krabba­meins­fé­lags­ins kemur m.a. fram að íslenskt heil­brigð­is­kerfi standi frammi fyrir miklum áskor­unum næsta ára­tug­inn enda er áætlað að nýgreind krabba­meinstil­fellum fjölgi um fjórð­ung til árs­ins 2030. Ástæðan er breytt ald­urs­sam­setn­ing þjóð­ar­innar en hlut­fall aldr­aðra fer hratt hækk­andi. Árið 2017 greindust um 1600 Íslend­ingar með krabba­mein, en 2030 er áætlað að fjöld­inn verði 2000.

Færri greinast með krabbamein af völdum reykinga
reyk­ingar

Það er því mik­il­vægt að finna leiðir til að draga úr þró­un­inni en breyt­ingar á lífs­háttum geta dregið úr hætt­unni á að fá krabba­mein um allt að 50%. Þættir eins og að neyta áfengis aðeins í hófi, borða hollan og fjöl­breyttan mat og reglu­lega, forð­ast ofþyngd, hreyfa sig reglu­lega, stunda öruggt kyn­líf og gæta þess að brenna ekki í sól ásamt því að stunda sól­böð aðeins í hófi geta dregið úr áhættu.

Sá þáttur sem er þó mik­il­vægastur í þessu sam­hengi er að reykja ekki. Íslend­ingum sem hættir eru að reykja eða hafa aldrei reykt hefur fjölgað ört und­an­farna ára­tugi og hafa for­varnir og hert­ari reglur um sölu og neyslu tóbaks skilað ótví­ræðum árangri.

Nýgengi reykingatengdra krabbameina lækkar

Elínborg Jóna Ólafs­dóttir, sér­fræð­ingur hjá krabba­meins­skrá stað­festir í sam­tali við Mannlíf að nýgengi krabba­meina af völdum reyk­inga fari lækk­andi.

„Staðfest er að reyk­ingar séu áhættu­þáttur í myndun nokk­urra teg­unda krabba­meina í önd­un­ar­vegi, nýrum, þvag­vegum og brisi,“ segir Elínborg og bætir við að til við­bótar sé ætlað að þau hafi áhrif á myndun krabba­meina í lifur, maga, leg­hálsi og hvít­blæði en það sé óstað­fest. „Ætla má að 2/3 þess­ara krabba­meina sem orsakast nú af reyk­ingum séu í lungum og 1/6 í þvag­vegum, sam­tals yfir 80% reyk­inga­tengdra meina.“

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Krabba­meins­skrá eru yfir 80% meina í lungum talin orsakast af reyk­ingum og rúm­lega 40% meina í þvag­vegum.

„Nýgengi lungna­krabba­meins hætti að hækka þegar draga tók úr reyk­ingum, en það var á hraðri upp­leið fram að því,“ útskýrir Elínborg. Hún segir jafn­framt að hjá körlum hafi nýgengið auk­ist fram til 1985 og hald­ist nokkuð stöðugt í mörg ár. „Það hefur nú farið lækk­andi frá alda­mót­unum. Hjá konum jókst nýgengið einnig fram til 1985 á sama hraða og hjá körlunum, þá tók við tíma­bil með hæg­ari hækkun fram til 2012 en síðan þá hefur nýgengið hjá konum farið lækk­andi.“

Ef lækkun nýgengis lungna­krabba­meins er skoðað eftir ald­urs­hópum þá sést að hjá báðum kynjum undir 60 ára hefur verið lækkun frá 2005. Lækkun hefur einnig mælst hjá körlum í ald­urs­hópnum 60-69 ára frá 1983 og hjá körlum eldri en 70 ára frá 2009.

Nýgengi lungna­krabba­meins hjá konum í sömu ald­urs­hópum hefur hins vegar verið að lækka allra síð­ustu ár.

„Stórir hópar af yngra fólki hafa aldrei reykt eða hættu mjög snemma og það end­ur­spegl­ast í því að lækkun nýgengis lungna­krabba­meins kemur fyrr fram hjá yngri ald­urs­hópum. Hjá eldri hóp­unum hefur aftur á móti stór hluti verið reyk­inga­menn og þótt áhættan lækki umtals­vert við að hætta þá hverfur hún ekki alveg,“ segir Elínborg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ