Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Ísland á svartan lista í júní vegna aðgerðarleysis gegn peningaþvætti

Ísland hefur frest fram í júní til að bæta lagaum­hverfi og auka varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka ellegar enda á svörtum lista.

Ísland á svartan lista í júní vegna aðgerðarleysis gegn peningaþvætti

Þetta kemur fram í umsögn frum­varps um skrán­ingu raun­veru­legra eig­enda sem nú er í fyrstu umræðu. Skylt verður að halda skrá um raun­veru­lega eig­endur fyr­ir­tækja verði frum­varp Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra að lögum en frum­varpið er umtals­vert skref í átt að upp­fyll­ingu skil­yrð­anna.

Hugtakið „raun­veru­legur eig­andi“ fjallar um þá ein­stak­linga sem í raun eiga starf­semi eða stýrir þeim við­skipta­manni, lög­að­ila eða ein­stak­lingum sem form­lega eiga eða stýra við­skipt­unum.

Með laga­breyt­ing­unni verður því skylda að greina frá ein­stak­lingum sem til að mynda „ráða yfir meira en 25% atkvæð­is­réttar eða telj­ast á annan hátt hafa yfir­ráð yfir lög­að­ila; ákvæðið á þó ekki við um lög­að­ila sem skráðir eru á skipu­legum mark­aði sam­kvæmt skil­grein­ingu laga um kaup­hallir.“ Raun­veru­legir eig­endur eru skil­greindir í lögum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka sem sam­þykkt voru af Alþingi í des­em­ber á síð­asta ári.

Hið nýja frum­varp er áfram­hald á aðgerðum yfir­valda gegn pen­inga­þvætti en Alþjóð­legur vinnu­hópur gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, FATF, gerði árið 2017 úttekt á vörnum Íslands gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. „Ísland gekk til sam­starfs við FATF í sept­em­ber 1991 og með aðild sinni skuld­batt Ísland sig til að sam­ræma lög­gjöf og laga starfs­reglur að til­mælum FATF. Tilmæli FATF hafa verið leið­andi á heims­vísu og hafa til­skip­anir Evr­ópu­sam­bands­ins um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka verið í sam­ræmi við þau. Tilmælin mynda því grund­völl sam­eig­in­legra við­bragða við fram­an­greindum ógnum við sjálf­stæði fjár­mála­kerf­is­ins og tryggja jafn­vægi innan þess,“ segir í umsögn um frum­varpið.

Ísland fékk aðvörun í fyrra um að stjórn­völd yrðu að taka sig taki og inn­leiða betri varnir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka ellegar yrði Ísland sett á alþjóð­legan lista yfir ósam­vinnu­þýð ríki. „Í úttekt sam­tak­anna á stöðu mála Íslandi, sem var gerð opin­ber í apríl 2018, fengu varnir Íslands gegn pen­inga­þvætti fall­ein­kunn,“ segir í úttekt Kjarnans vegna máls­ins. „Íslandi var gefið fram á mitt ár 2019 til að bregð­ast við. Ef úrbætur yrðu ekki nægj­an­legar, og Ísland færi á lista FATF yfir ósam­vinnu­þýð ríki myndi það, að mati inn­lendra hags­muna­að­ila, leiða til þess að orðstír og trú­verð­ug­leiki Íslands á alþjóða­vett­vangi biði veru­lega hnekki.

Ef Ísland yrði sett á slíkan lista myndi það einnig leiða til þess að gerðar yrðu strang­ari kröfur til lands­ins og aðila sem þar búa um hvers konar fjár­mála­starf­semi, stofnun úti­búa, dótt­ur­fé­laga og umboðs­skrif­stofa og jafn­vel útgáfu aðvar­ana um að við­skipti við íslenska aðila sem gætu falið í sér hættu á pen­inga­þvætti.“

Með frum­varpi ráð­herra er að mörgu leyti komið til móts við athuga­semdir hóps­ins. Ísland hefur frest fram í júní á þessu ári til að bregð­ast við nið­ur­stöðu úttekt­ar­innar.

Gert er ráð fyrir að skráðar verði upp­lýs­ingar um þá ein­stak­linga sem í raun geta tekið ákvörðun um ráð­stöfun fjár­muna, stjórnun aðil­ans eða sem njóta góðs af þeim eignum sem um ræðir.

„Lagt er lagt til að skrif­stofa fjár­mála­grein­inga lög­reglu, Fjár­mála­eft­ir­litið, rík­is­skatt­stjóri, lög­regla, hér­aðs­sak­sókn­ari og toll­stjóri hafi aðgang að öllum upp­lýs­ingum og gögnum um raun­veru­lega eig­endur lög­að­ila. Einnig er lagt til að skatt­yf­ir­völd hafi aðgang að öllum upp­lýs­ingum og gögnum um raun­veru­lega eig­endur vegna skatt­eft­ir­lits, upp­lýs­inga­skipta milli landa og skatt­rann­sókn. Lagt er til að til­kynn­ing­ar­skyldir aðilar í skiln­ingi laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka hafi aðgang að nauð­syn­legum upp­lýs­ingum og gögnum þegar þeir fram­kvæma áreið­an­leika­könnun og að almenn­ingur hafi aðgang að upp­lýs­ingum um nafn raun­veru­legs eig­anda, fæð­ing­ar­mánuð og ár, búsetu­land, rík­is­fang og stærð og teg­und eign­ar­halds.“

Sjá einnig: Eftirlit Íslend­inga með pen­inga­þvætti fær fall­ein­kunn

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ