Góð vika – Bankastjórar
Hagfræðingurinn Gylfi Zoega átti rokkstjörnumóment í fréttum vikunnar þegar hann sagði bönkunum til syndanna fyrir ógagnsæi og bruðl. Hins vegar er ólíklegt að bankamennirnir hlusti á gagnrýnisrödd Gylfa frekar en annarra radda í samfélaginu, enda uppteknir við að hámarka góðærið. Allir bankastjórar stóru bankanna þriggja hækkuðu verulega í launum í fyrra þótt hagnaður þeirra hafi staðið í stað eða jafnvel helmingast frá árinu áður.
Myndarlegustu hækkunina fékk bankastjóri Landsbankans sem hækkaði um 82 prósent á einu ári en þarf samt að sætta sig við að vera með umtalsvert lægri laun en kollegar hennar hjá Íslandsbanka og Arion banka.
Slæm vika – Dagur B. Eggertsson
Það er mikil ásókn í þetta dálkapláss þessa vikuna. Forsvarsmenn bílaleigunnar Procar urðu uppvísir að svindli í viðskiptum með bíla og fengu í kjölfarið sparkið frá Samtökum ferðaþjónustunnar og sannkristnir hafa þurft að engjast á meðan þeir horfa upp á hljómsveitina Hatara rjúka upp á stjörnuhimininn. Fáir bíða þó jafnmikið eftir sumrinu og borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson sem hefur fengið holskeflu umdeildra mála í fangið upp á síðkastið.
Fokdýr braggi, horfnir tölvupóstar, pálmatré og nú síðast brot á persónuverndarlögum vegna SMS-sendinga á valinn hóp kjósenda í aðdraganda kosninga hafa skyggt á öll önnur mál meirihlutans í borginni.































Athugasemdir