Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Lagt á borð

Ertu að velta fyrir þér hvernig þú ætlar að leggja á borð yfir hátíð­ina? Syst­urnar Þórdís og Hrafn­hildur Þor­leifs­dætur dekka hér upp fal­legt hátíð­ar­borð til að gefa les­endum skemmti­legar hug­myndir um hvernig hægt sé að nýta blóm og plöntur til að skreyta hátíð­ar­borðið.

Lagt á borð

Lágstemmd og notaleg litapalletta í forgrunni

Hvernig myndir þú lýsa stílnum á heim­ili þínu? ,,Ætli hann sé ekki nokkuð skand­in­av­ískur og klass­ískur. Ég er mikið nátt­úru­barn og lita­pal­letta heim­il­is­ins er svona frekar lág­stemmd og nota­leg. Ég hef mikla þörf fyrir að hafa jarð­teng­ingu heima­fyrir.  Mér finnst gaman að blanda grófu og fínu saman.  Hjá mér snýst þetta mikið um áferð, fal­lega efn­is­notkun, lita­val og gæði,“ segir Þórdís.

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Blandað greni og þykkblöðungar í aðalhlutverki

Kransinn við úti­dyra­hurð­ina fangað athygli okkar enda veg­legur og fal­legur.  ,,Við not­uðum blandað greni og greni­teg­undir eins og normans­þin, blá­greni, cryptomeriu, mimósu og grófar eucalyptus-greinar.  Svo skreyttum við hann aðeins með þykk­blöð­ungum og útkoman er frá­bær,“ útskýrir Þórdís.  Aðventu­krans­inn er líka afar eft­ir­tekt­ar­verður og lit­irnir róm­an­tískir: „Hrafn­hildur systir bjó til aðventu­krans­inn og not­aði ýmsar teg­undir af greni. Ólík efni geta myndað svo fal­lega heild séu þau rétt sett saman.“

Kop­arkannan á miðju borð­inu er frá Heima­hús­inu. Kop­ar­jóla­tré-kerta­stjak­arnir og lit­uðu gler­eplin eru frá Blómagall­eríi og stærri stjak­arnir frá Heimilum og hug­myndum og AFF conseptstore. Platt­arnir undir stell­inu eru úr The Pier. Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Matarstellið í miklu uppáhaldi

Hátíð­ar­borðið er glæsi­legt og plönt­urnar vekja athygli, hvaða plöntur eru þetta? ,,Á hátíð­ar­borðið settum við afskorna jólarós í fal­lega kop­ar­könnu frá Heima­hús­inu á miðju borðs­ins. Út frá miðj­unni lékum við okkur svo með blöndu af stórum og litlum þykk­blöð­ungum og  tveimur stórum til­landsiu-plöntum.

Serví­ett­urnar á borð­inu eru líka fal­lega skreyttar. ,,Þetta er fjaðra­skraut sem við rák­umst á í Ilva  og fannst skemmti­legt að nota til skrauts. Mat­ar­stellið á borð­inu er yfir fimm­tíu ára gam­alt en for­eldrar okkar fengu það í brúð­ar­gjöf frá föð­ur­ömmu og -afa. Við systur höfum dáðst að því í gegnum árin og eigum dýr­mætar minn­ingar tengdar stell­inu.“

Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Fegurðina má finna úti í náttúrunni

Hvernig myndir þú lýsa upp­á­hald­s­jóla­stíl ykkar systra? „Við erum í grunn­inn mikil nátt­úru­börn, fæddar og upp­aldar á Ísafirði þar sem nátt­úran skartar sínu feg­ursta allt um kring.  Ein­fald­leiki og eleg­ans er svona það sem ein­kennir okkur einna helst.  Við sækjum mikið í að nota efni sem finna má í nátt­úr­unni og leggjum mikla áherslu á gott hand­verk og gæði í því sem við erum að gera. En svo dettum við líka alveg í bling­stuð á aðvent­unni og þá má nota allt, glimmer, gull, silfur og allan pakk­ann, sem er rosa­lega gaman líka.“

Texti /  Sjöfn Þórð­ar­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni