Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Kristinn sat orðlaus á blaðamannafundinum – „Réttarfarslegur skandall“

Kristinn sat orðlaus á blaðamannafundinum – „Réttarfarslegur skandall“
Kristinn Hrafns­son. Mynd / EPA

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks og félagi Julian Assange, segir rann­sókn á meintu kyn­ferð­is­brota­máli Assange vera „rétt­ar­fars­legan skandal.“

Greint var frá því á blaða­manna­fundi í hádeg­inu að rann­sókn á nauðgun, sem Julian Assange er sagður hafa gerst sek­ur um í Stokk­hólmi árið 2010, hafi verið látin niður falla.

Kristinn segir frá því í Facbook-færslu að hann hafi setið orð­laus á blaða­manna­fund­inum.

„Ég sat áðan orð­laus yfir blaða­manna­fundi frá sænska sak­sókn­ar­anum sem ákvað nú að fella niður rann­sókn á meintu kyn­ferð­is­brota­máli Julian Assange. Þetta er sum sé í þriðja sinn sem málið er fellt niður. Sak­sókn­ar­inn tal­aði um veikan vitn­is­burð hins meinta fórn­ar­lambs og ónógar sann­anir til að byggja undir málið. Það tók sum sé níu ár að kom­ast að þessu,“ skrif­aði hann meðal ann­ars.

„Þetta er ekk­ert annað en rétt­ar­fars­legur skandall,“ bætti hann við. 

Kristinn segir að þegar upp er staðið snú­ist málið um ákæru Banda­ríkja­for­seta gegn Assange þar sem kraf­ist er 175 ára fang­elsis vegna leka á trún­að­ar­gögnum. Hann segir það mál vera „árás á lýð­ræðið“.

„Hvenær ætlar fólk að vakna og sjá hversu alvar­legt það mál er? Þetta snýst ekki bara um Julian sem er núna píndur í ógeðs­legri vist í mesta örygg­is­fang­elsi Bret­lands, að mestu leyti í ein­angrun, og bíður rétt­ar­halda í febr­úar þar sem tek­ist verður á um fram­sals­kröfu banda­rískra stjórn­valda. Málið gegn Assange er byggt á njósn­a­lög­gjöf­inni banda­írsku sem aldrei áður hefur verið mis­beitt gegn blaða­manni. Þetta er alvar­leg­asta aðför að frelsi fjöl­miðla á Vest­ur­löndum á síð­ari tímum. Þetta er árás á lýð­ræðið.“

Færslu Kristins má lesa hér fyrir neðan:

Sjá einnig: Rannsókn á máli Julian Assange í Svíþjóð látin niður falla

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Straumurinn bar bílinn í gegnum ræsi og þurfti að draga hann úr ánni áður en hægt var að ná öðrum ferðamanninum út.
Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Heimur

Ísra­elskur sjón­varps­maður lát­inn víkja eftir rasísk ummæli

Heimur

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Lík þriggja fundust á heimili hins grunaða eftir árásina. Talið er að fólkið hafi verið honum skylt.
Heimur

Dæmd í fang­elsi fyrir að van­rækja börn og fela þau fyrir for­eldrum

Heimur

Hand­tek­inn eftir að hafa brot­ist inn á lóð LeBron James

Heimur

Flóð leggja flótta­manna­búðir á Gaza í rúst

Heimur

Blóðbað á mark­aðs­torg­inu í Kraká

Heimur

Níu ára stúlka lést eftir að hafa orðið fyrir bíl á Kanarí­eyjum