Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Siðblind stórasystir

Siðblind stórasystir

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Frá barnæsku hefur eldri systir mín verið afar ómerkileg persóna. Hún blekkti, sveik, og stal og stjórnaði okkur systkinunum með harðri hendi. Á fullorðinsárum komst hún upp með mjög ósvífið athæfi gagnvart okkur.

Við erum fjögur systk­inin, þrjár systur og einn bróðir. Ekki get ég sagt að sam­lyndið hafi verið upp á sitt besta lengst af og það kenni ég Elsu, elstu syst­ur­inni, alfarið um. Hún virt­ist njóta þess að etja okkur yngri systkin­unum saman og gerði það iðu­lega á svo lúmskan hátt að við átt­uðum okkur ekki á því fyrr en í kringum ung­lings­árin.

Pabbi hafði látið sig hverfa þegar bróðir minn var árs­gam­all og stofnað nýja fjöl­skyldu. Mamma vann mikið og var iðu­lega dauð­þreytt svo hún vissi ekki hvernig ástandið var. Hún borg­aði Elsu fyrir að passa okkur og hafði eflaust ekki hug­mynd um hvað Elsu tókst að gera líf okkar erfitt í skjóli þess valds sem hún hafði yfir okkur sem barn­fóstra.

Hálsmenið sem hvarf

Ég fékk fal­legt háls­men í ferm­ing­ar­gjöf. Einn dag­inn hvarf það og ég var miður mín. Nokkrum dögum seinna sagði Elsa við mig að hún hefði séð Möggu systur læðu­pok­ast með háls­menið. Ég varð tor­tryggin en hún fékk mig þó til að leita í skápum og skúffum Möggu sem var ekki heima. Elsa var óvenju­hjálp­leg og viti menn, hún fann háls­menið mitt í einni skúff­unni.

„Ég varð tor­tryggin en hún fékk mig þó til að leita í skápum og skúffum Möggu sem var ekki heima.“

Magga sagð­ist ekki hafa snert háls­menið, henni fannst mjög und­ar­legt að það hefði fund­ist hjá henni. Elsa klag­aði í mömmu og Möggu var gert að halda sig inni í her­bergi sínu allt kvöldið. Það var slæm refs­ing á þessum árum að fá ekki að horfa á sjón­varpið.

Ég hafði sjálf verið þjóf­kennd af Elsu, alveg sak­laus, og það rifj­að­ist upp fyrir mér þetta kvöld þegar ég sá hvað hún var glað­hlakka­leg. Ég laum­að­ist inn til Möggu og spurði hana hvort það gæti verið að Elsa hefði sjálf tekið háls­menið og falið það til að koma sök­inni á Möggu. Það fannst henni lík­legt og ég treysti Möggu betur en Elsu.

Eftir þetta höfðum við yngri systk­inin alltaf var­ann á okkur gagn­vart Elsu. Hún reyndi annað slagið að segja eitt­hvað eða gera til að koma upp á milli okkar en það tókst sjaldn­ast hjá henni. Það var helst mamma sem trúði lygum hennar.

Elsa flutti að heiman í kringum tví­tugt og gift­ist fyrsta eig­in­manni sínum. Hjóna­bandið ent­ist í nokkur ár en þegar hún skildi átti hún þrjú lítil börn. Við Magga pössuðum oft fyrir hana og þótti vænt um börnin hennar.

Ósvífinn þjófnaður

Mamma missti heils­una á miðjum aldri, eða í kringum sex­tugt, og lést fáum árum seinna. Við Magga sáum að mestu um und­ir­bún­ing útfar­ar­innar og erfi­drykkj­una en enga hjálp var að fá frá Elsu sem hafði aldrei tíma … Bróðir okkar bjó í útlöndum og þegar hann kom til lands­ins aðstoð­aði hann á allan hátt.

Áður en hann flaug heim fórum við yngri systk­inin yfir reytur mömmu en Elsa mætti ekki þótt við hefðum öll ætlað að hitt­ast.

Mamma hafði alltaf sagt að hún ætl­aði sjálf að borga eigin útför. Hún hafði átt miklu meira fé en við vissum af, og hefði getað greitt fyrir tíu útfarir af dýr­ara tag­inu en banka­bókin hennar hafði verið tæmd skömmu fyrir dauða hennar. Við komumst að því að Elsa hafði tekið pen­ing­ana út með umboði frá mömmu en und­ir­skriftin var þó ekki mömmu.

Þegar við gengum á Elsu reidd­ist hún og sagði að mamma hefði gefið sér pen­ing­ana, hún hefði meiri þörf fyrir þá en við. Auðvitað vissum við að Elsa hefði stolið þessum pen­ingum en þrátt fyrir slæma reynslu okkar af henni kom okkur á óvart að hún skyldi leggj­ast svona lágt. Ef þetta er ekki sið­blinda veit ég ekki hvað sið­blinda er.

Við kærðum Elsu, annað var ekki hægt. Ekki af því að okkur lang­aði svona í pen­ing­ana, heldur til að kenna henni í eitt skipti fyrir öll að hún kæm­ist ekki upp með allt. Því miður töp­uðum við mál­inu. Ekki var hægt að sanna að und­ir­skriftin væri fölsuð eða afsanna að mamma hefði gefið Elsu pen­ing­ana.

„Ekki var hægt að sanna að und­ir­skriftin væri fölsuð eða afsanna að mamma hefði gefið Elsu pen­ing­ana.“

Við seldum litlu íbúð­ina hennar mömmu og and­virð­inu var skipt í fernt eftir að skatt­mann hafði tekið sitt. Elsa fékk sinn hlut og fannst það alveg rétt­látt. Hún upp­skar algjöra fyr­ir­litn­ingu okkar systk­in­anna. Það urðu engin form­leg og til­finn­inga­þrungin sam­bands­slit, við bara hættum öll að tala við hana.

Óvænt heimsókn

Rúm tutt­ugu ár liðu. Ég fékk alltaf annað slagið fréttir af Elsu í gegnum börnin hennar sem ég held góðu sam­bandi við. Hún gift­ist tvisvar í við­bót og skildi jafn­oft. Hún drakk mikið og það tók hana sorg­lega skamman tíma að sóa öllum arf­inum og pen­ing­unum illa fengnu, og fékk góða hjálp við það frá ræfl­unum sem hún lað­aði að sér.

Börn Elsu fluttu snemma að heiman. Eitt þeirra var ekki nema fimmtán ára. Þau hafa öll spjarað sig vel þrátt fyrir erf­iðan upp­vöxt. Öll búa þau á lands­byggð­inni og hafa skapað sér gott líf þar.

Einn fal­legan sum­ar­dag var ég við garð­vinnu heima þegar ókunnug kona vatt sér inn í garð. Ég stóð upp og bauð góðan dag en svo sá ég að þetta var Elsa og stirðn­aði. Hún var skæl­bros­andi, lét sem ekk­ert væri og sagði að það væri svo langt síðan hún hefði séð mig. Ég var orð­laus af undrun. Mér tókst þó að stynja upp: „Viltu ekki kaffi?“ og hún þáði það.

Elsa mas­aði enda­laust í eld­hús­inu og óð úr einu í annað. Hún var gengin í sér­trú­ar­söfnuð og vildi endi­lega fá mig til að koma með sér á sam­komu. Ónei, hugs­aði ég en leyfði henni að tala. Hún var óstöðv­andi. Henni tókst ein­hvern veg­inn að ná að rakka niður útlit mitt, fína eld­húsið og atvinnu mína, allt á innan við mín­útu. Ég upp­götv­aði að stóra­systir var orðin að óbæri­lega leið­in­legri kerl­ingu. „Voðalega ertu mjó, ertu með anor­exíu? Ekki? En væri samt ekki ráð að leita læknis, þetta er ekki eðli­legt.“ Og yfir í annað: „Ég man eftir þegar ég var með svip­aða eld­húsinn­rétt­ingu, mér fannst hún svo ljót að ég skipti.“ Eflaust fyrir pen­ing­ana sem þú stalst frá mömmu, hugs­aði ég. Enn mal­aði hún: „Hvað seg­irðu, ertu að vinna þarna, en ömur­legt, aldrei myndi ég nenna að vinna á skrif­stofu.“ Svona lét hún dæl­una ganga og ég var næstum fallin í öngvit af leið­indum.

Hvítar lygar

Þegar mað­ur­inn minn kom heim upp­veðr­að­ist hún enn frekar og byrj­aði að flissa eins og smá­stelpa. Áður en hún segði eitt­hvað and­styggi­legt við hann um mig, eins og henni var trú­andi til, flýtti ég mér að segja að við hjónin værum að fara út, sem var hvít lygi, og þyrftum að drífa okkur.

Ég bað Elsu um að hringja á undan sér ef hún ætl­aði að koma aftur í heim­sókn. „Ha! Ertu ekki að grín­ast, ég droppa í heim­sóknir þegar ég vil,“ sagði hún svo­lítið móðguð. „Mér er alveg sama um drasl,“ bætti hún við og leit á eld­hús­bekk­inn þar sem mátti sjá áhöld og fleira tengt garð­vinn­unni. Annað „drasl“ var ekki að sjá. Ég var mjög ákveðin þegar ég sagði henni að MÉR fynd­ist betra ef hún og aðrir gestir gerðu það.

Elsa heim­sækir mig reyndar ekki oft, kannski tvisvar, þrisvar á ári og myndi gera það oftar ef ég leyfði henni það. Nokkrum sinnum hef ég þurft að láta eins og ég væri ekki heima, þegar hún kemur án þess að gera boð á undan sér en þeim skiptum fer fækk­andi.

Ástæðan fyrir því að ég leyfi henni að koma er sú að ég hef nokkra samúð með henni. Hún er öryrki, missti heils­una vegna líf­ern­is­ins og er búin að brenna allar brýr að baki sér. Hún hefur komið sér alls staðar úr húsi nema í söfn­uð­inum, enda munar eflaust um tíund­ina af bót­unum hennar. Henni tókst ekki að end­ur­nýja sam­bandið við hin systk­ini mín, þau geta ekki hugsað sér að umgang­ast hana.

Meira að segja börn Elsu forð­ast hana. Þau treysta sér ekki einu sinni til að halda jól með henni, hún er svo leið­in­leg að hún eyði­leggur alla stemn­ingu, segja þau. Það létti mikið á þeim þegar hún gekk í söfn­uð­inn því hún ver miklum tíma með fólk­inu þar. Það er líka léttir fyrir mig, ég myndi ekki vilja vita af henni einni yfir jól og myndi jafn­vel gera eigin fjöl­skyldu brjál­aða í ein­hverri and­ar­taks­fljót­færni með því að bjóða henni í jólamat­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur