Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hættuleg heimsókn

Hættuleg heimsókn

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Um það bil einu og hálfu ári eftir að ég kynntist konu í gegnum Netið, konu sem sagðist vera frænka mín, ákvað ég að þiggja boð hennar um að koma í stutta heimsókn til hennar í Bandaríkjunum.

Ég er félags­lynd en samt var­kár í sam­skiptum og tel mig vera ágætis mann­þekkj­ara. Þegar ókunnug kona, íslensk og búsett í Banda­ríkj­unum, sendi mér vina­beiðni á Facebook lét ég sem ég sæi það ekki. Hún skrif­aði mér þá bréf á svo bjag­aðri íslensku að ég hélt fyrst að þetta væri svindl. Í öðru bréfi sagð­ist hún vera skyld mér og það gat alveg verið. Ég skil samt ekki hvernig hún fann mig og af hverju hún vildi verða vin­kona mín á fés­inu. Á end­anum sam­þykkti ég vina­beiðni hennar en fannst þó ekki lík­legt að við værum frænkur.

Kata var ekki upp­á­þrengj­andi Facebook-vin­kona og mér fór að finn­ast hún indæl og skemmti­leg. Hún sagði mér lítið af sjálfri sér, ég vissi bara að hún hefði verið korn­ung þegar hún flutti út, að Bob, mað­ur­inn hennar, ynni hjá hernum og börnin tvö væru upp­komin. Sjálf væri hún hætt að vinna úti.

Heimboð

Við Kata færðum okkur fljót­lega yfir á Skype-ið og töl­uðum yfir­leitt saman á þann hátt. Alltaf á íslensku þótt hún væri ryðguð í henni. Um það bil ári eftir að við kynnt­umst fór hún að tala um hvað það væri gaman ef ég kæmi í heim­sókn. Ég tók það ekki alvar­lega í fyrstu en mað­ur­inn minn hvatti mig til að fara ef mig lang­aði. Kata tal­aði mikið um alla stað­ina sem hún ætl­aði að sýna mér og búð­irnar þar sem ég gæti gert góð kaup. Hálfu ári eftir að hún tal­aði fyrst um þetta ákvað ég að fara í tíu daga heim­sókn til hennar. Hún sendi mér mynd af Bob svo ég þekkti hann því hann sótti mig á flug­völl­inn.

Bob virt­ist vænsti maður og við spjöll­uðum mikið saman á leið­inni heim til hans og Kötu, eða Katie, eins og hann kall­aði hana. Þegar við komum að hús­inu hringdi Bob bjöll­unni sem mér fannst skrítið. Ég sá að hann kíkti inn í gegnum gægju­gatið á hurð­inni og svip­ur­inn á honum var svo furðu­legur að ég gægð­ist líka. Fyrir innan stóð Kata með byssu í hönd og mið­aði á dyrnar.

Hvað er ég komin út í? hugs­aði ég. Bob kall­aði: „Hæ, Katie, þetta erum við.“ Þá opn­aði hún dyrnar og bauð mig vel­komna. Mér létti en var samt hugs­andi. Þetta var bara fyrsta und­ar­lega atvikið af mörgum. Síðar átt­aði ég mig á því að hún hefði mögu­lega skotið okkur Bob ef hann hefði opnað með lykl­inum. Hún var hrædd við ókunn­uga og sagði alla hættu­lega. Fljót­lega komst ég að því að hún hafði alltaf fjað­ur­hníf innan seil­ingar og svaf með hagla­byssu undir rúmi.

Erfiðir dagar

Næstu daga komst ég að því að Kata var væg­ast sagt mjög sér­stök mann­eskja.

Hún fór fljót­lega að tala um að Bob væri ósáttur við veru mína hjá þeim. Það kom mér á óvart því hann hafði ekki sýnt mér annað en vin­semd. Ég reyndi að afsaka mig við hann, sagði að það væri ekk­ert flug heim fyrr en á brott­far­ar­dag­inn minn en mér fannst hann bara verða undr­andi.

Kata var með holda­far sitt á heil­anum og ég fór nokkrum sinnum með henni í rækt­ina. Á lík­ams­rækt­ar­stöð­inni var maður sem brosti og blikk­aði mig, ég brosti á móti en tal­aði ekk­ert við hann. Þegar Kata sagði Bob frá þessu varð hann bál­reiður og sagði mér að kæra hann og stöð­ina fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni. Það nán­ast datt af mér and­litið, þetta var svo langt frá því að vera áreitni og ég sagði að engin ástæða væri til að kæra.

Kata eld­aði bara rétti eftir sér­stökum mat­ar­kúr, svip­uðum Danska kúrnum. Þótt grönn væri létt­ist ég um fimm kíló í ferð­inni. Hún vék aldrei frá þessum kúr og var því aldrei til í að koma með mér á kaffi­hús eða út að borða.

Við fórum ekki í neinar af þeim ferðum sem Kata hafði lofað mér. Bob hringdi dag­lega úr vinn­unni og stakk upp á ýmsum skemmti­legum stöðum sem við gætum heim­sótt en Kötu leist aldrei á neitt. Við skruppum reyndar nokkrum sinnum í mollið skammt frá. Miðað við hvað Kata hafði sagt mér um fólkið þarna, að það skyti fyrst og spyrði svo, fannst mér furðu­legt hvernig hún hag­aði sér í moll­inu. Hún lék sér að því að rekast á fólk og biðj­ast síðan inni­lega afsök­unar. Ég gat ekki stillt mig um að segja: „Þú ert ekki hrædd við að vera skotin núna?“

Eitt sinn fékk ég hjól Kötu lánað og skrapp í smá­ferð um hverfið þrátt fyrir við­var­anir hennar. Hún vildi meina að fólkið í þessu ann­ars rólega hverfi væri hættu­legt og myndi skjóta mig. Fólkið reynd­ist þó vera afar vin­gjarn­legt og margir veif­uðu til mín og spjöll­uðu.

Eftir nokkra daga var ég farin að leita að öðru flugi heim en án árang­urs. Kata end­ur­tók reglu­lega hvað Bob fynd­ist óþægi­legt að hafa mig. Þótt mig grun­aði að það væri bara lygi, leið mér illa yfir því. Um leið og hann kom heim úr vinnu, fór ég inn í her­bergið mitt og hékk þar ein allt kvöldið. Bob hafði lánað mér far­tölvu og það bjarg­aði mér alveg.

„Eftir nokkra daga var ég farin að leita að öðru flugi heim en án árang­urs.“

Einn dag­inn hringdi mað­ur­inn minn og ég fór að skæla, ég var að deyja úr heim­þrá. Ég skrökvaði að honum að ég væri bara kvefuð því Kata gat heyrt hvað ég sagði. Þarna var ég orðin smeyk við hana.

Í hættu stödd?

Brott­far­ar­dag­ur­inn rann loks upp, ég gat ekki beðið eftir að kom­ast í burtu. Ég hafði pantað leigu­bíl út á völl fljót­lega eftir hádegi. Veðrið var sér­lega gott og ég hafði sagt við bæði Kötu og Bob að ég ætl­aði að setj­ast út í sól­ina. Áður en Bob fór í vinn­una hafði hann beðið mig um að finna myndir frá Ísland. Ég gat þó fátt sýnt honum áður en hann fór til vinnu. Ég ætl­aði að halda leit­inni áfram úti í garði og vista myndir í tölv­unni hans.

Kata fór í sturtu og ég þurfti að sækja eitt­hvað inn í her­bergi áður en ég sett­ist út í sól­ina. Ég fór síðan fram en hug­boð fékk mig til að stoppa á miðri leið. Ég sneri við og skildi ekki hvað hafði komið yfir mig. Þetta end­ur­tók sig svo ég sett­ist inn í her­bergi í smá­stund. Þegar ég fór fram aftur og ætl­aði að gera þriðju til­raun­ina til að fara út heyrði ég þrusk fyrir aftan mig, þar stóð Bob víga­legur á svip. Mér dauð­brá en heils­aði. Hann virt­ist áhyggju­fullur og spurði hryss­ings­lega hvar Kata væri. „Hún er í sturtu,“ svar­aði ég hissa.

Bob fór inn í bað­her­bergi og ég heyrði að þau hjónin rifust hástöfum. Hann kom fram, kvaddi mig og dreif sig í vinnunna. Kata kom glott­andi fram og spurði hvort ég hefði tekið eftir því að Bob hefði verið með hníf. Nei, sagði ég en önnur hönd hans var reyndar fyrir aftan bak. Nú vissi ég ástæð­una. Hún sagði mér nán­ast hlakk­andi að hún hefði sent honum SMS áður en hún fór í sturtu og sagst vera í hættu stödd. Því hefði hann komið heim. Hún sagði mér líka að hún hefði sett örygg­is­kerfið á þegar Bob fór og ef ég hefði reynt að fara út í sól­bað, hefði það farið af stað og allt fyllst af löggum.

Ég starði á hana, hvaða rugl var þetta? Þarna var mér end­an­lega nóg boðið, ég sótti ferða­tösk­una mína og sagð­ist ætla að bíða eftir leigu­bílnum úti. Ég þakk­aði síðan fyrir mig og struns­aði út. Hún kall­aði á eftir mér: „Getum við samt ekki verið vin­konur áfram?“ Ég svar­aði: „Helst ekki.“ Klukku­tíma seinna kom leigu­bíll­inn og í flug­vél­inni á heim­leið leið mér eins og ég hefði sloppið úr háska.

Ég heyrði ekk­ert frá Kötu í tvö ár. Ég var stödd London í helg­ar­ferð með mann­inum mínum og þegar ég fékk Facebook-skila­boð frá henni. Hún sagði að ég væri léleg vin­kona að spyrja hana ekki um líðan hennar eftir skurð­að­gerð sem hún hafði farið í. Ég sagð­ist þekkja fólk sem hefði það miklu verra en hún. „Viltu þá ekki bara fleygja mér út af Facebook?“ spurði hún og þótt ég vissi að hún meinti það ekki, tók ég hana á orð­inu og eyddi henni þaðan og blokker­aði, sama gerði ég á Skype-inu.

Ég hélt að ég þekkti Kötu, ég leit á hana sem góða vin­konu. Svo reynd­ist hún vera snar­rugluð og gott dæmi um hvað fólk getur leynt á sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur