Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Enn perluvinir eftir allt sem á undan er gengið

Maus er ein af þekkt­ustu rokksveitum Íslands. Sveitin var stofnuð af fjórum vinum úr Árbænum árið 1993. Ári seinna vann hún Mús­íktil­raunir og þá var ekki aftur snúið. Síðan þá hefur sveitin sent frá sér fjölda platna og nú fagnar hún 20 ára afmæli breið­skífu sinnar, Í þessi sek­úndu­brot sem ég flýt, með nýrri end­ur­bættri útgáfu á vín­yl­plötu.

Enn perluvinir eftir allt sem á undan er gengið
Biggi í Maus gaf út nýtt lag í vik­unni

Sveitin gróf upp 20 ára gömul teip í því skyni að vinna í end­ur­bættu útgáf­unni en hljóð plöt­unnar var end­ur­unnið frá grunni af tón­list­ar­mann­inum Curver Thorodd­sen. Birgir Örn Stein­ars­son, söngv­ari og gít­ar­leik­ari sveit­ar­innar, segir að ferlið hafi verið mjög skemmti­legt, það hafi verið gaman að rifja upp lögin á plöt­unni en svo­lítið erfitt að láta þau eiga sig. „Já, það erf­ið­ast var að fikta ekk­ert í þessu. Bæta ekki ein­hverju inn í eða laga. Að halda fókus og vinna bara með hljóðið en ekki að vera sparsla upp í eitt­hvað sem maður spil­aði eða söng fyrir 20 árum,“ segir hann og við­ur­kennir að hann hefði nú alveg viljað syngja eitt til tvö lög á plöt­unni upp á nýtt.

Á sínum tíma lof­uðu gagn­rýnendur breið­skíf­una og sögðu hana vera eina af betri ef ekki bestu plötu árs­ins. Maus hlaut sex til­nefn­ingar fyrir plöt­una á Íslensku tón­list­ar­verð­laun­unum og vann til tvennra verð­launa. Birgir var val­inn texta­höf­undur árs­ins og Daníel Þor­steins­son trommari árs­ins. „Restina fengu Sigur Rós og Björk,“ segir Birgir og bætir við að sam­keppnin hafi verið hörð.

Aðspurður um ástæðu þess að ákveðið var að þrykkja plöt­una á vínyl svarar Birgir mik­il­vægt að tón­list sé aðgengi­leg á sem fjöl­breyti­leg­astan máta. „Fyrir 20 árum var ekki í boði að þrykkja vínyl, það var þá talið útdautt format. En svo benti ýmis­legt til að geisla­disk­ur­inn væri að deyja og vín­yll­inn að rísa aftur. Þess vegna ákváðum við að end­ur­út­gefa plöt­una okkar Lof mér að falla að þínu eyra, á vínyl þegar hún átti 20 ára afmæli fyrir tveimur árum. Sú plata seld­ist upp þannig að okkur fannst til­valið að færa þessa plötu yfir á vínyl líka. Ef manni þykir vænt um fer­il­inn sinn þá verður maður að passa upp á að hægt sé að nálg­ast tón­list­ina eftir öllum leiðum sem eru í boði.“

Á plöt­unni sjálfri eru inn­greipt leyniskila­boð við lok beggja hliða, en Birgir er aldeilis ekki á þeim bux­unum að ljóstra neinu upp varð­andi þau. „Þau yrðu nú ekki mjög leyni­leg ef ég færi að kjafta því hér,“ segir hann hlæj­andi. „Náðu þér í ein­tak, skoð­aðu það vel við enda hvorrar hliðar.“

„Ég hef oft sagt að ef það yrði nokkurn tíma gerð kvik­mynd um Maus þá yrði það leið­in­leg­asta mynd allra tíma.“

Talið berst þá að með­limum sveit­ar­innar, eru þeir enn reglu­lega í bandi? „Við strák­arnir erum enn perlu­vinir eftir öll þessi ár og það hefur ekk­ert alvar­legt komið upp á sem hefði getað eyði­lagt vin­skap­inn. Ég hef oft sagt að ef það yrði nokkurn tíma gerð kvik­mynd um Maus þá yrði það leið­in­leg­asta mynd allra tíma,“ segir hann og hlær. „Ekkert alvar­legt drama, ekk­ert of mikið rugl. Bara enda­laus vin­átta og metn­aður. Það nennir auð­vitað eng­inn að horfa á þannig bíó­mynd.“

En hvað er fram undan? „Vá, síð­ast var planið að hjálpa Curver að mála íbúð­ina sína. Hver veit hvað tekur við næst? Kannski spenn­andi mat­ar­boð eða bjór­hitt­ingur. Við erum alla vega dug­legir við að segja nei þegar ein­hver biður okkur um að spila. En stundum segjum við já. Við erum ekki búnir að negla neitt niður sem stendur. Þetta sam­tal um „næsta skref“ er sífellt í gangi á milli okkar engu að síður. En við erum auð­vitað allir fárán­lega upp­teknir í einka­líf­inu og við dag­leg störf,“ segir hann. Það sé því ekk­ert ákveðið. „Verið bara vak­andi. Fylgist með Fés­bók­ar­síðu Maus. Við eigum það til að kasta svona hlutum fram með litlum sem engum fyr­ir­vara.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar