Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Þurftum á stuðningi hvors annars að halda“

Álft­nes­ing­arnir Fannar Ingi Frið­þjófs­son og Jökull Breki Arnarson úr hljóm­sveit­inni Hipsum­haps eiga eitt vin­sælasta lag lands­ins um þessar mundir, Lífið sem mig langar í. Kapp­arnir voru einnig að senda frá sér plöt­una Best gleymdu leynd­ar­málin, sem hefur sömu­leiðis fengið frá­bærar við­tökur. Vinirnir stofn­uðu bandið í júlí á síð­asta ári þegar þeir voru á vissum tíma­mótum í líf­inu sem varð til þess að þeir ákváðu að gefa tón­list­inni séns.

„Þurftum á stuðningi hvors annars að halda“

„Við vorum báðir að vinna í sjálfum okkur og þurftum á stuðn­ingi hvors ann­ars að halda,“ segir Fannar, en hann og Jökull hafa þekkst síðan sum­arið 2013. „Fyrst þegar við vorum að kynn­ast þá leit­aði hann mikið til mín með alls konar vanga­veltur. Ég er sjö árum eldri en Jökull og hef alltaf verið til staðar fyrir hann. Svo dag einn vakn­aði ég upp við það að hann var orð­inn tví­tugur og ég átt­aði mig á því að ég gat líka leitað ráða hjá honum. Vinátta okkar er ein­stök og við erum heppnir hvor með annan. Vináttan er grunn­ur­inn að öllu saman. For­sendan fyrir tón­list­inni.“

„Vinátta okkar er ein­stök og við erum heppnir hvor með annan. Vináttan er grunn­ur­inn að öllu saman.“

Aðspurður hvort þeir hafi átt von á þeim góðu við­tökum sem tón­list þeirra hefur hlotið og hvort lífið hafi tekið ein­hvern snún­ing í kjöl­farið, segir Fannar að svo sé ekki. Fyrir utan að þeim líði betur eftir að hafa komið tón­list­inni frá sér.

„Fólki finnst þetta allt saman áhuga­vert og er ófeimið að spyrja spurn­inga. Við erum byrj­aðir að fá bók­anir sem er bara jákvætt en við erum nú hvor­ugur að fara að segja upp vinn­unni, í bili,“ útskýrir hann og bætir við að þeir hafi skilið sáttir við við plöt­una eftir mikla vinnu. „Eftir útgáf­una höfum við reynt að halda okkur á jörð­inni og hlakkað til að sjá hvernig fólk tengdi við plöt­una. Nú mán­uði eftir útgáfu er búið að vera magnað að fylgj­ast með hvað við­tök­urnar eru góðar og við erum virki­lega þakk­látir fyrir alla sem eru að hlusta. Sér­stak­lega þá sem hafa gefið sér tíma til að hafa beint sam­band og hrósa okkur.“

Text­arnir á plöt­unni eru allir skrif­aðir af Fannari sjálfum, nema í lag­inu Feika brosið, þar sem Jökull á vers. Aðspurður hvert þeir sæki inn­blástur í tón­list­ar­sköpun sinni svarar Fannar að það sé mis­jafnt. „Það er ótæm­andi listi af tón­list sem við fílum og við höfum ekki verið feimnir við að blanda saman ein­hverju tvennu ólíku, útkoman á plöt­unni var því hipsum­haps,“ segir hann og bætir við að oft fái hann inn­blástur í aðstæðum sem vekja upp nýjar eða blendnar til­finn­ingar.

Að sögn Fannars fengu þeir alls konar frá­bært fólk til liðs við sig við gerð plöt­unnar. „Við erum með hljóð­færa­leik­ara með okkur „live“. Magga Jó, sem á mikið í plöt­unni með okkur, Bergur, Óli Alex­ander, Lexi og Eiki. Allt topp­mann­eskjur,“ segir hann þakk­látur. Hann bætir við að bandið hafi haldið útgáfu­tón­leika 20. októ­ber síð­ast­lið­inn og þar sem það hafi verið upp­selt á þá hafi verið ákveðið að halda aðra tón­leika 22. nóv­em­ber. Auk þess standi til að koma fram á Airwaves.

„Síðan ætlum við bara að hafa gaman, halda áfram að læra eitt­hvað nýtt og nýta hvert tæki­færi sem gefst. Muna að sýna þakk­læti fyrir það sem við erum að gera og að lífið er líka meira en tón­list.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Svan­hildur Gréta

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar