Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Tónleikahald eins og gefur að skilja er algjör verkur í rassgatið“

Hljóm­sveitin Horrible Youth var stofnuð fyrir þremur árum af Ágústi Bent og eru með­limir sveit­ar­innar stjörnum prýddir í íslensku sen­unni. Nú er von á fyrstu plöt­unni þannig að Albumm hitti Ágúst og byrj­aði á því að spyrja hvernig bandið varð til.

„Tónleikahald eins og gefur að skilja er algjör verkur í rassgatið“

„Ég stofn­aði Horrible Youth þegar ég var í Noregi að drep­ast úr leið­indum fyrir þremur árum. Vetur, kuldi og við­bjóður. Ég kom mér upp heima­stúd­íói, lærði á það og fatt­aði loks að töfr­arnir í tón­list­ar­sköpun minni ger­ast þegar ég er alls­gáður við tölv­una, ekki fullur eða freð­inn í æfinga­hús­næð­inu,“ útskýrir Ágúst. Konan hans vann mikið á kvöldin og Ágúst segir að sá tími hafi verið nýttur í tón­list frekar en Netflix og hangs. „Svo þegar ég var kom­inn með haug af lögum sem voru til­búin fyrir stúdíó byggði ég bandið smátt og smátt upp, með­lim fyrir með­lim. Allir koma strák­arnir með sitt „input“ sem gerir þetta að skemmti­legum og frum­legum bræð­ingi.“

Ágúst er sjálf­mennt­aður gít­ar­leik­ari og seg­ist seint titla sig sem alvöru­söngv­ara. „Ég hef verið í Hooker Swing (subbu­rokki), Truckload of Steel (skíta­pönki) og Blues Willis (vibbakán­trí), allt jaðar og lít­ill árangur,“ segir hann. „Strák­arnir eru hins vegar stjörnum prýddir í íslensku sen­unni. Frosti er í Legend og var í Klink og svona. Maggi var í Úlpu. Hálfdán er að spila með Svölu, Himbrima, Legend, KUL og bara öllum hinum og Helgi frontar Benny Crespo´s Gang auk þess að riffa í Elínu Helenu og KUL.“

Spurður hvaðan hann fær drif­kraft til að semja tón­list, svarar hann að drif­kraft­ur­inn komi með vinnu­sið­ferði sem hann lærði sem iðn­að­ar­maður. „Vera skipu­lagður og klára eitt áður en ég fer í annað. Svo verður maður svo­lítið háður vellíð­un­ar­til­finn­ing­unni sem fylgir því að klára lag,“ segir hann og tekur fram að það séu engir pen­ingar í þessum leik lengur. „Okkur langar bara að spila fyrir fullt af fólki og koma plöt­unni inn á sem flest heim­ili.“

Hann segir að platan hafi þró­ast smám saman. „Ég ætl­aði bara að gera þung­arokks­plötu og fá ein­hvern til að syngja fyrir mig en fann engan. Svo þegar ég fór að syngja sjálfur varð þetta melódískara þar sem ég er ekki með metal-rödd og sæki mikið í gruggið þegar ég sem söng­meló­díur,“ svarar hann aðspurður hvernig hann myndi lýsa nýju plöt­unni. „Ég var alinn upp af Kurt eins og margir aðrir og situr það býsna fast í und­ir­með­vit­und­inni. Þá skap­að­ist þessi crossover-hljómur, sem ein­kennir okkur nátt­úr­lega, og er full­kom­lega líf­rænn. Það var aldrei fundað um stefnu­mál og ekki reyndum við að hljóma eins og eitt­hvað sér­stakt. Text­arnir eru til­komnir af til­vist­ar­kreppu og meló­dramat­ískum sam­ræðum sem ég á við verstu útgáf­una af sjálfum mér,“ útskýrir hann og glottir en bætir svo við að það sé strang­lega bannað að útskýra texta of mikið. „Fólk þarf að túlka þá á sinn eigin hátt.“

Ágúst Bent er nýfluttur heim frá Noregi . „Ég stofn­aði Horrible Youth þegar ég var í Noregi að drep­ast úr leið­indum fyrir þremur árum.“

Ágúst er nýfluttur heim en hann bjó áður í Drammen sem er 30 kíló­metra suður af Ósló þar sem hann vann sem verk­stjóri hjá raf­virkja­fyr­ir­tæki. Hann segir að það hafi verið furðu auð­velt að halda hljóm­sveit­inni gang­andi þó að með­lim­irnir byggju ekki í sama landi.
„Inter­netið og upp­töku­tæknin gerir þetta frekar ger­legt að því gefnu að kunn­áttan sé til staðar. Ég var svo hepp­inn að fá þessa meist­ara með mér í þetta og Maggi, sem tók upp plöt­una með mér, var mér til halds og trausts. Þessi plata hefði verið tíu sinnum erf­ið­ari án hans enda er hann algjör meist­ari á sínu sviði. Að vísu var allt tón­leika­hald eins og gefur að skilja algjör verkur í rass­gatið. Flug fram og til baka, mara­þonæf­ingar dag­ana fyrir gigg og síð­ast en ekki síst mikil þol­in­mæði frá kon­unni. Guði sé lof fyrir það.“

„Text­arnir eru til­komnir af til­vist­ar­kreppu og meló­dramat­ískum sam­ræðum sem ég á við verstu útgáf­una af sjálfum mér.“

Fram undan hjá hljóm­sveit­inni er að halda litla útgáfu­tón­leika strax við útgáfu. „Við ætlum svo að reyna að vera dug­legir á Íslandi í haust. Svo er á teikni­borð­inu stærra útgáfupartí sem við ætlum að halda með vinum okkar í Óværu. Platan okkar fær að auki ansi góða dreif­ingu þannig að það er aldrei að vita nema það opn­ist fyrir tæki­færi í útlöndum. Það væri nátt­úr­lega algjör draumur í dós en við erum full­orðnir menn með báða fætur á jörð­inni og höfum lít­inn áhuga á táfýlut­úrum. Að lokum viljum við þakka þeim sem hafa hlustað, líkað, komið og deilt. Við erum þið.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar