Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Byrjaði að taka upp á fermingargræjur bróður síns

Hljóm­sveitin Warmland var að senda frá sér sína fyrstu plötu, Unison Love, en sveit­ina skipa Arnar Guð­jóns­son og Hrafn Thorodd­sen sem hafa komið víða við. Margir þekkja Arnar úr hljóm­sveit­inni Leaves og Hrafn úr hljóm­sveit­unum Ensíma og Jet Black Joe. Albumm hitti á Arnar á dög­unum.

Byrjaði að taka upp á fermingargræjur bróður síns

„Ég og Hrafn kynnt­umst fyrir um það bil 10 árum þegar við túruðum með Barða Jóhanns­syni og hljóm­sveit­inni Bang Gang. Það var mjög skemmti­legur tími og við fórum nokkrum sinnum til Kína og Frakk­lands,“ segir Arnar. „Fljót­lega eftir að við kynnt­umst deildum við saman hljóð­veri, ég var með stúd­íóið á dag­inn og Hrafn á kvöldin. Fyrir rúmum tveimur árum fannst okkur vera kom­inn tími til að prófa vinna saman þannig að við héldum fund. Þegar við bárum saman bækur okkar komumst við að því að við vorum alveg á sömu línu og áttum slatta af lögum sem pössuðu vel saman.“

„Það sem stendur helst upp úr hjá mér er að hafa gert þetta allt með æsku­vinum mínum.“

Kapp­arnir hafa fengið góðar við­tökur bæði hér heima og erlendis. Spurður hvort stefnan sé sett á útlönd og tón­leika­hald svarar hann að svo sé, þeir séu að vinna í þeim málum og spenntir yfir að spila meira á tón­leikum. Arnar ætti að vera vel vanur að pakka ofan í töskur og túra um heim­inn en eins og fyrr segir var hann í hljóm­sveit­inni Leaves sem hefur gert mjög góða hluti hér heima og erlendis. Hljóm­sveitin túraði út um allan heim með mörgum af þeirra upp­á­halds hljóm­sveitum á borð við Supergrass og fleirum. Einnig var spilað á mörgum stærstu tón­list­ar­há­tíðum heims eins og Gla­ston­bury.

„Það voru ótrú­leg for­rétt­indi að fá að ferð­ast um allan heim með Leaves. Það hlýtur að vera draumur alls tón­list­ar­fólks að fá svona tæki­færi,“ segir hann. „Það sem stendur helst upp úr hjá mér er að hafa gert þetta allt með æsku­vinum mínum.“

Hljóðritaði fyrstu plötu Kaleo

Arnar á og rekur Aeronaut Studios sem er lítið hljóð­ver úti á Granda og hefur komið að fjölda tón­list­ar­verk­efna í gegnum tíð­ina. Hann hefur verið að taka upp frá því að hann byrj­aði að spila á gítar tíu ára gam­all.

„Ég byrj­aði að taka upp á Goldstar-ferm­ing­argræjurnar hans Sigga bróður til þess að heyra gít­ar­leik­inn minn og svo hef ég oft tekið upp það sem ég hef verið að gera. Fyrsta heila platan sem ég tók upp fyrir ein­hverja aðra en sjálfan mig var með hljóm­sveit­inni Tenderfoot (Without grafity) árið 2004. Síðan þá hef ég tekið upp fjöld­ann allan af tón­list­ar­fólki,“ segir Arnar.

Hann vann til dæmis fyrstu plötu Kaleo og einnig helm­ing­inn af A/B-plöt­unni þeirra. „Það hefur verið ótrú­legt að fylgj­ast með Kaleo-strák­unum. Hlut­irnir gerð­ust á svo miklum hraða og algjör­lega verð­skuldað að mínu mati. Ég get samt ekki sagt að ég hafi búist við því sem kom í kjöl­farið af fyrstu plöt­unni því það þarf alltaf mikla heppni til þess að allt gangi upp. Þeir eru ótrú­lega vinnu­samir og alltaf trúir sjálfum sér þannig að það er algjör­lega frá­bært að þetta hafi farið á flug.“

Hvað er svo fram undan hjá þér og Warmland? „Fram undan hjá mér eru mörg spenn­andi verk­efni í stúd­íó­inu. Ég er að fara gera tón­list við heim­ild­ar­mynd eftir franska leik­stjór­ann Thierry Robert en ég hef unnið mikið með honum und­an­farin ár. Þetta er fjórða myndin sem ég geri með honum en tón­listin mín við mynd­ina La Forêt kom út í júní. Svo eru spenn­andi tímar fram undan með Warmland. Fleiri tón­leikar og svo ætlum við að fara vinna nýja tón­list fljót­lega.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar