Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Hörmungarnar afskiptar af hálfu íslenskra stjórnvalda

Mikil flóð urðu á Costa Blanca-svæð­inu á Spáni í síð­ustu viku, þau verstu í 130 ár. Afleið­ing­arnar eru þær að fimm þús­und manns hafa misst heim­ili sín og sjö ein­stak­lingar hafa fund­ist látnir.

Hörmungarnar afskiptar af hálfu íslenskra stjórnvalda
|Hluti af hjálp­ar­gögnum sem íslenski hóp­ur­inn hefur safnað.|Rúnar fyrir miðri mynd ásamt nokkrum Íslend­ingum. Allir leggj­ast á eitt við hjálp­ar­starfið

„Það er þó talið lík­legt að sú tala muni hækka, þar sem í mörgum hús­anna á ham­fara­svæð­inu býr eldra fólk og ekki er vitað hvort allir íbúar komust út,“ segir Rúnar Ásþór Ólafsson sem búsettur hefur verið á svæð­inu í fimm ár.

Á svæð­inu sem verst varð úti búa um eitt þús­und Íslend­ingar og hafa flestir þeirra tekið þátt í hjálp­ar­starfi á svæð­inu í kjöl­far flóð­anna, bæði full­orðnir og börn, og margir þeirra sinnt hjálp­ar­starf­inu alla vik­una. Eftir hjálp­ar­beiðni stjórn­valda hafa íbúar á svæð­inu allir lagst á eitt við aðstoð og öll fyr­ir­tæki sem geta hafa gefið starfs­fólki frí úr vinnu til að sinna neyð­ar­að­stoð. Segir Rúnar að mik­ill sam­taka­máttur sé á meðal Íslend­ing­ana. Hópurinn hefur safnað fé til að kaupa helstu nauð­synjar fyrir þá ein­stak­linga sem misst hafa heim­ili sín og allar ver­ald­legar eigur vegna flóð­anna. „Við höfum tekið á móti fjár­fram­lögum á veit­inga­staðnum Pablo´s International. Fyrir söfn­un­ar­féð höfum við keypt bleyjur, barna­vörur, mat, hrein­læt­is­vörur og fleira. Teppi, sængur og annað höfum við fengið að gjöf og gefið til nauð­staddra.“

Skólum hefur verið haldið opnum til að hýsa þann mikla fjölda ein­stak­linga sem eru í neyð. Margir bæir eru lok­aðir vegna hættu­á­stands.

Flóðin hófust seinni­part­inn á föstu­dag­inn í síð­ustu viku, á þeim tíma þegar flestir voru á heim­leið frá vinnu og skóla. Sjálfur var Rúnar heima hjá sér. „Það hafði verið gefin út rauð við­vörun vegna yfir­vof­andi storms, en vegir hér og hús eru ekki byggð fyrir þetta veður, hér er sól 320 daga á ári,“ segir Rúnar og bætir við að ef flóðin hefðu átt sér stað síðar um kvöldið eða nótt­ina, hefði ástandið orðið mun verra og mann­fallið meira.

Rúnar fyrir miðri mynd ásamt nokkrum Íslend­ingum. Allir leggj­ast á eitt við hjálp­ar­starfið, bæði full­orðnir og börn.

Ný vá blasir við íbúum á svæð­inu í kjöl­far flóð­anna. Skólp flýtur um allt með til­heyr­andi óhrein­indum og er varað við móskítófar­aldri. Auk þess er hætta á veik­indum, til dæmis vegna kulda.

„Það versta sem ég hef upplifað“

„Það er mik­ill reiði í íslenska hópnum yfir því að íslensk stjórn­völd hafi ekk­ert látið sig ástandið hér varða, en á Costa Blanca og í kring búa um fimm þús­und Íslend­ingar. Einnig hafa íslenskir fjöl­miðlar lítið fjallað um það hörmu­lega ástand sem nú ríkir hér,“ segir Rúnar en bætir við að nálægar þjóðir hafi sinnt hjálp­ar­beiðni með fjár­fram­lögum og aðstoð. Spænski her­inn og Rauði kross­inn eru á svæð­inu og sjá um að keyra hjálp­ar­gögn til nauð­staddra.

„Það er mik­ill reiði í íslenska hópnum yfir því að íslensk stjórn­völd hafi ekk­ert látið sig ástandið hér varða.“

Rúnar er ekki með á hreinu hve margir búa á svæð­inu en segir að tala heim­il­is­lausra eftir ham­far­irnar, fimm þús­und manns, sé mjög hátt hlut­fall af heildar­í­búa­fjölda.

Hluti af hjálp­ar­gögnum sem íslenski hóp­ur­inn hefur safnað.

„Ég verð að við­ur­kenna að ég beygði af þegar ég upp­lifði neyð­ina hjá fólki fyrsta dag­inn. Við fórum í skóla hér nálægt og þar stóðu flestir uppi alls­lausir, ekki með nein föt, mat eða aðrar nauð­synjar. Ég hef nú upp­lifað margt per­sónu­lega, en þetta er það versta sem ég hef upp­lifað,“ segir Rúnar. „Það jákvæða í hörm­ung­unum er sam­hugur Íslend­ing­anna sem standa saman í því að láta gott af sér leiða og hjálpa þeim sem þurfa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ