Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Síðasta verk fyrir svefninn

Síðasta verk fyrir svefninn

Það er fleira en bara bækur og vekjara­klukku að finna á nátt­borðum helstu snyrti­vörugúrúa heims, hvort sem það eru rit­stjórar tíma­rita, blogg­arar, stór­stjörnur eða æðstu yfir­menn snyrti­vöru­fyr­ir­tækja. Þar er nefni­lega yfir­leitt að finna úrval snyrti­vara sem er ætlað að hámarka áhrif næt­ur­svefns á húð­ina og tryggja að gúrú­arnir vakni end­ur­nærðir og fal­legir á morgn­ana. Hér eru nokkrar af algeng­ustu vör­unum sem þar er að finna.

Niður með varaþurrk

Til að vakna með mjúkar og fal­legar varir á morgn­ana til­búnar í vara­lit dags­ins verður maður að bera á sig vara­salva fyrir svefn­inn. Vara­sal­vinn verður að vera þykkur og helst ekki sleipur til þess að hann hald­ist á alla nótt­ina. Vara­sal­var sem inni­halda býflugna­vax, shea butter, kókosolíu, ull­arfitu eða aðra nátt­úru­lega fitu eru bestir. Vara­sal­var sem eru aðeins vaselín í grunn­inn halda aðeins raka inni en veita hvorki nær­ingu né raka og eru einnig mjög sleipir. Vin­sæl­ustu vara­sal­varnir meðal snyrti­vörugúrúa eru Rêve de Miel frá Nuxe, Baume de Rose frá By Terry og Minted Rose frá Smith’s.

Silkimjúkar hendur

Það er mikið á hendur okkar lagt á vet­urna þegar kólnar í veðri og flensur byrja að ganga. Við erum stöðugt að þvo okkur um hend­urnar og fara inn og út úr kulda. Þess vegna er mjög mik­il­vægt að nota hand­á­burð reglu­lega yfir dag­inn en því sleppa þó margir. Best er að bera feitan og góðan hand­á­burð á sig rétt fyrir svefn­inn þegar maður er ekki að fara að nota hend­urnar. Snyrti­vörugúrúar vita líka að það er mik­il­vægt að huga vel að nöglum til þess að þær vaxi og dafni. Þess vegna er nagla­banda­olía algeng á nátt­borðum þeirra auk hand­á­burðar.

Slakandi ilmur

Huggu­legt er að hafa ilm­kerti á nátt­borð­inu sem þú getir kveikt á þegar þú ferð snemma upp í að lesa eða horfa á sjón­varps­þátt á iPad-inum. Gæðailm­kerti kosta sitt en einn helsti kostur þeirra er sá að þau gefa frá sér ilm jafn­vel þótt það sé ekki kveikt á þeim. Til þess að maður þoli að hafa kertið á nátt­borð­inu má ilm­ur­inn ekki vera of þrúg­andi og auð­vitað þarf manni að þykja hann góður. Það er ekki verra ef ilm­ur­inn hefur slak­andi áhrif, eins og til dæmis lavender- eða rós­mar­ínilmur. Vin­sæl­ustu kertin eru lík­lega frá franska vöru­merk­inu Diptyque en kertin frá Voluspa eru einnig frá­bær og fáan­leg hér á landi.

Það er snið­ugt að geyma gott næt­ur­krem á nátt­borð­inu.

Mjúkt undir höfði

Þó að það sé ekki tækni­lega á nátt­borð­inu er einnig vert að minn­ast á að margir snyrti­vörupennar og -gúrúar sofa á kodda með silki­kodda­veri. Það er vissu­lega fjár­fest­ing en mun hafa gríð­ar­leg áhrif á heilsu bæði húðar og hárs. Vegna þess að silkið er mun sleipara en bóm­ull þá togar það síður í hárið svo það slitnar og flæk­ist síður. Eftir góðan næt­ur­svefn vaknar þú með slétt og fal­legt hár líkt og þegar þú fórst að sofa. Einnig er mjög slæmt að sofa með sítt hár slegið því þá hættir því frekar til að slitna þegar maður byltir sér á nótt­unni, hvort sem það er á silki­kodda eða ekki. Betra er að vera með hárið upp­sett á ein­hvern hátt, hvort sem það er í lausum snúð, fléttu eða á ein­hvern annan máta.

Lokaskref húðumhirðunnar

Öll snyrti­vöru­séní vita að húðin er í end­ur­nýj­unar- og við­gerð­ar­fasa á nótt­inni og því er það besti tím­inn til að nota bestu og virk­ustu vör­urnar í vopna­búr­inu. Þau allra hörð­ustu kjósa meira að segja að klára húð­um­hirð­una inni á baði, fara svo upp í rúm og rétt áður en þau fara að sofa bera þau eitt loka­lag á húð­ina, sem getur ýmist verið þykkt næt­ur­krem, húð­olía eða næt­urmaski. Þannig gefa þau fyrstu vör­unum tæki­færi til að smjúga dálítið inn í húð­ina og tryggja jafn­framt hámarks­nær­ingu alla nótt­ina.

Umsjón / Hildur Frið­riks­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur