Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fleiri möguleikar á Íslandi

Fleiri möguleikar á Íslandi

Færeyski tón­list­ar­mað­ur­inn Heið­ríkur hefur búið hér síð­ustu ár og útskrif­að­ist úr mynd­list­ar­deild Lista­há­skóla Íslands. Á meðan hann var í námi tók hann upp og gaf út aðra plötu sína, Funeral, og vann Færeysku tón­list­ar­verð­launin sem besti söngv­ari árs­ins 2017. Nú hefur Heið­ríkur sent frá sér sína þriðju plötu, Ill­usions, og segir hana ólíka öllu öðru sem er í gangi í tón­list­ar­sen­unni í dag.

„Hún er svo­lítið í anda tón­listar Hollywood-mynda þriðja ára­tug­ar­ins og James Bond-mynda fimmta ára­tug­ar­ins,“ segir Heið­ríkur, þegar hann er beð­inn um að lýsa tón­list­inni og bætir við að þemað snú­ist aðal­lega um það hvernig er að vera á fer­tugs­aldri og þær sam­fé­lags­legu kröfur sem er gerðar til fólks á þeim aldri um að lifa ham­ingju­sömu lífi.

„Maður á að vera búinn að kaupa sér eign, vera í stöðugri vinnu, stofna fjöl­skyldu og svo fram­vegis. Fókusinn er allur á þetta bull og skil­yrðin sem við teljum okkur þurfa að upp­fylla, sem verður til þess að við förum að elt­ast við ein­hverja „ham­ingju“ sem við höldum að sé að finna hjá öðrum en okkur sjálfum.“

„Maður á að vera búin að kaupa sér eign, vera í stöðugri vinnu, stofna fjöl­skyldu og svo fram­vegis.“

Heið­ríkur segir að það hafi verið mikil upp­lifun að taka plöt­una upp.  „Þetta var allt gert upp á gamla mát­ann, engin nútíma­leg hljóð­færi notuð, engir takt­mælar, bara gamlir míkra­fónar og við allir í einu her­bergi að spila „live“, eins og gert var hér áður fyrr. Svo voru strengirnir teknir upp í Búdapest, sem hljómar ótrú­lega vel,“ útskýrir hann og seg­ist vera mjög ánægður með útkom­una, en örlítið stress­aður líka því hún sé ólík öllu öðru í tón­list í dag. „Hún kemst kannski næst ein­hverju sem var gert fyrir hund­rað árum,“ segir hann og hlær.

Spurður út í tón­list­ar­sen­una í Færeyjum og ástæður þess að hann ákvað að flytja til Íslands, hugsar hann sig um. „Tón­listin mín er ekki beint dans­tón­list eða tón­list sem er spiluð á næsta bar,“ svarar hann svo, „þannig að mark­að­ur­inn í Færeyjum var of lít­ill fyrir hana. Þess vegna vildi ég flytja. Ég próf­aði fyrst að flytja til Dan­merkur en fann mig ekki þar vegna þess að Danir eru svo ólíkir okkur Fær­ey­ingum. Þannig að ég ákvað að flytja til Íslands sem er eins og stærri útgáfan af Færeyjum, bara með fleiri mögu­leika,“ segir hann og kveðst elska Ísland. Íslend­ingar séu eins og Fær­ey­ingar, bara örlítið klikk­að­ari, sem hann fíli í botn.

Talandi um það, hvernig finnst honum íslensk tón­list? Er hún að ein­hverju leyti frá­brugðin þeirri fær­eysku, að hans mati? „Þið eruð snill­ingar þegar kemur að tón­list, ég elska tón­list­ina ykkar. Íslend­ingar eru óhrædd­ari við að tjá sig en Fær­ey­ingar sem eru feimn­ari og kannski var­kár­ari út á við,“ segir hann en tekur skýrt fram að Færeyjar státi af mörgu hæfi­leik­ríku tón­list­ar­fólki og þaðan hafi komið mikið af góðri tón­list.

En hvað er ann­ars á döf­inni? „Bara meiri spila­mennska á Íslandi,“ svarar hann fullur til­hlökk­unar, „og áfram­hald­andi vinna við að koma tón­list­inni minni á fram­færi, en ég er ekki með neina umboðs­skrif­stofu eða útgá­fyr­ir­tæki á bak við mig þannig að ég er eig­in­lega allt í öllu,“ bendir hann. „Annars vona ég auð­vitað bara að sem flestir hlusti á plöt­una mína, og teng­ist tón­list­inni á sínum per­sónu­legu for­sendum.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Lydía Hansen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar