Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Bláa lónið segir upp 164 starfsmönnum: „Þungbær en óhjákvæmileg aðgerð“

Bláa lónið segir upp 164 starfsmönnum: „Þungbær en óhjákvæmileg aðgerð“
Bláa lónið – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint

164 starfs­mönnum Bláa lóns­ins var sagt upp í dag, fengu þeir til­kynn­ingu um upp­sögn­ina sím­leiðis og var upp­sögn­unum síðan fylgt eftir með tölvu­pósti.

Í febr­úar störf­uðu 764 starfs­menn hjá fyr­ir­tæk­inu, en starfs­menn verða um 600 eftir upp­sagn­irnar í dag.

Bláa lónið lok­aði 23. mars vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, til 30. apríl hið minnsta. Lokunin nær til starf­semi Bláa lóns­ins, fyr­ir­tæk­is­ins í Svarts­efni auk versl­ana á Lauga­vegi og á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Grímur Sæmund­sen for­stjóri Bláa lóns­ins sendi til­kynn­ingu til starfs­manna í dag, þar sem hann segir aðgerð­ina þung­bæra en óhjá­kvæmi­lega í ljósi aðstæðna.

Áætlað er að rúm­lega 400 starfs­mönnum verði boðið að nýta sér tíma­bundin úrræði um hluta­störf þar sem Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóður greiðir hluta launa á móti fyr­ir­tæk­inu.

Til­kynn­ing Gríms fylgir hér á eftir orð­rétt:

„Kæru sam­starfs­fé­lagar

Mér þykir mjög leitt að til­kynna ykkur að nú í morgun þurftum við að ráð­ast í upp­sagnir hjá Bláa lón­inu. Aðgerðin er okkur þung­bær en óhjá­kvæmi­leg í ljósi aðstæðna. Alls nemur fækk­unin 164 starfs­manni. Fjöldi starfs­manna eftir þessar aðgerðir verður um 600.Það er alltaf erfitt að sjá á eftir góðum sam­starfs­fé­lögum. Eins og áður hefur komið fram erum við að glíma við for­dæma­lausar aðstæður sem dundu nán­ast yfir okkur á einni nóttu.

Ég vil þakka öllum þessum starfs­mönnum, sem nú hverfa frá fyr­ir­tæk­inu, fyrir frá­bær störf og það er ein­læg von mín að leiðir okkar geti legið saman að nýju þegar Bláa Lónið er komið aftur á full skrið.

Það er ljóst að skamm­tíma­á­hrif Covid-19 heims­far­ald­urs­ins eru gríð­ar­leg en hver þau verða á fram­tíð­ar­rekstur félags­ins er óljóst að svo stöddu. Þessar aðgerðir eru liður í því að vernda, eins og kostur er, þau störf sem eftir standa hjá félag­inu og jafn­framt tryggja rekstur Bláa Lónsins til fram­tíðar.

Í ljósi þess­ara miklu áhrifa munum við einnig þurfa að horfa til úrræða rík­is­stjórn­ar­innar hvað varðar að bjóða starfs­mönnum, tíma­bundið, hluta­starf í stað fulls starfs þar sem at-vinnu­leys­is­trygg­inga­sjóður kemur til móts við starfs­menn með bóta­greiðslum. Vegna þessa úrræðis munu starfs­menn annað hvort hafa heyrt í sínum yfir­manni í dag eða þá fá sent skjal á morgun, föstu­dag, þar sem boð um skert starfs­hlut­fall kemur fram og óskað er raf­rænnar und­ir­rit­unar, sam­þykki starfs­maður að ganga að því boði. Svo öllum sé það ljóst, tel ég skylt að taka fram, að þetta úrræði mun skerða laun starfs­manna tíma­bundið.

Stjórn­endur munu svara þeim spurn­ingum sem upp kunna að koma í tengslum við þessa aðgerð. Það er mik­il­vægt að við höfum það öll í huga að þessar aðstæður eru tíma­bundnar og við von­umst til að starf­semin kom­ist í eðli­legt horf sem allra fyrst.

Ég hef fulla trú á því að við munum kom­ast í gegnum þennan skafl saman. Á tímum sem þessum er mik­il­vægt að við stöndum þétt saman og hjálp­umst að við að byggja upp góðan vinnu­stað til fram­tíðar.

Með þökkum og góðri kveðju,
Grímur“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ