Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sérþekking og listræn nálgun skila einstakri upplifun í verslun BIOEFFECT í Hafnarstræti

Verslun BIOEFFECT í Hafn­ar­stræti 19 var nýverið opnuð í sögu­frægu húsi sem reist var árið 1925 en margir þekkja það sem hús Ramma­gerð­ar­innar og eiga þaðan margar góðar minn­ingar. Bygg­ingin er sér­stök að form­inu til og minnir um margt á straujárnið í New York.

Sérþekking og listræn nálgun skila einstakri upplifun í verslun BIOEFFECT í Hafnarstræti
Verslun BIOEFFECT í Hafn­ar­stræti. Mynd/Hallur Karlsson

Sóley Þór­is­dóttir vöru­hönn­uður er aðal­hönn­uður fyr­ir­tæk­is­ins og hefur hún starfað hjá fyr­ir­tæk­inu um átta ára skeið eða allt frá því að fyrstu vörur fyr­ir­tæk­is­ins komu á markað. Hún segir að BIOEFFECT hafi boð­ist rýmið við Hafn­ar­stræti og hafi þau fljótt séð að þarna væri gott tæki­færi.

Bygg­ingin sé sér­stök á þessum reit, hefur sögu­legt yfir­bragð og að fólk þekki stað­inn mjög vel. Sóley segir einnig að tím­inn hafi verið knappur en frá því að hönn­un­ar­ferlið við versl­un­ina hófst og þar til því var lokið hafi aðeins liðið um tveir mán­uðir. Þar hafi þó reynslan skipt miklu máli en hún segir að þau hjá fyr­ir­tæk­inu búi yfir mik­illi og góðri reynslu, allt frá því að hanna ein­staka umbúðir yfir í heild­stæðar upp­lif­anir og rými. Þau hafi einnig ákveðið að leita til Basalts arki­tekta og því hafi þar sam­ein­ast góð sér­þekk­ing og reynsla sem skil­aði frá­bærri útkomu.

Mynd/Hallur Karlsson

Hvað hönnun rým­is­ins varðar voru Sóley og hönn­uðir Basalts, þau Marcos Zotes og Rut Sig­ur­mons­dóttir, strax sam­mála um að hafa efn­isvalið ein­falt.

„Basalt kemur inn með sína góðu reynslu, sér­þekk­ingu og list­ræna nálgun og gekk sam­starfið vonum framar. Hug­myndin að vinna með ylplast spratt upp frá gróð­ur­hús­unum okkar í Grinda­vík en útveggirnir í þeim húsum eru úr ylplasti og gleri. Okkur fannst mjög spenn­andi að skoða hvernig hægt væri að nýta efnið í hönn­un­ina og setur það sterkan svip á rýmið. Plast­þræð­irnir búa til hálf­gerða sjón­hverf­ingu inni í rým­inu og auka loft­hæð­ina sjón­rænt. Þeir tengja okkur líka við líf­tækn­ina og vís­indin sem við not­umst við í vöru­þróun okkar og fram­leiðslu en það starf fer fram í hátækni­gróð­ur­húsi í Grinda­vík og í höf­uð­stöðv­unum í Vík­ur­hvarfi, Kópavogi. Rýmið sjálft var tölu­verð áskorun en vegg­plássið er lítið og glugg­a­rnir stórir en lögun þess lagði lín­urnar fyrir hönnun inn­rétt­ing­anna,“ segir Sóley og bætir við að hill­urnar þjóni til að mynda þeim til­gangi að vera venju­legar hillur fyrir útstill­ingar og séu einnig hluti af rým­inu en ýmis tækni­leg atriði líkt og inn­byggð sér­hönnuð lýs­ing setji svo punkt­inn yfir i-ið og nái að draga fram þá eig­in­leika og auð­kenni sem varan býr yfir.

„Plast­þræð­irnir búa til hálf­gerða sjón­hverf­ingu inni í rým­inu og auka loft­hæð­ina sjón­rænt.“
Mynd/Hallur Karlsson

Sérþekking og alþjóðleg sérstaða Basalts nýttist vel

Basalt Arki­tektar hafa markað sér mikla sér­stöðu hér­lendis og á alþjóð­legum vett­vangi þegar kemur að hönnun tengdri heilsu og vellíðan og eru Bláa Lónið, Jarð­böðin við Mývatn, Vök og GeoSea gott dæmi um það. Því má segja að það hafi verið rök­rétt ákvörðun hjá BIOEFFECT að leita til Basalts þar sem sér­þekk­ingin sem þar hefur skap­ast í gegnum árin er gríð­ar­leg. Marcos Zotes arki­tekt og með­eig­andi Basalts og Rut Sig­ur­mons­dóttir hönn­uður hjá fyr­ir­tæk­inu sáu um hönnun versl­un­ar­innar fyrir hönd Basalts. Við spurðum þau Marcos og Rut nánar út í hönn­un­ina og tækni­legar útfærslur. Þau segja einnig að sam­starfið hafi verið sér­lega ánægju­legt.

Hverjar voru helstu hugmyndirnar varðandi efnis- og litaval?

Þegar BIOEFFECT leit­aði til okkar til að hanna flagg­skips­verslun þeirra í Reykja­vík, var það okkar fyrsta verk að heim­sækja gróð­ur­hús ORF líf­tækni í Grinda­vík og rann­sókn­ar­stofur þeirra til að glöggva okkur á grunn­gildum og fram­leiðslu­ferli BIOEFFECT. Við lærðum um ímynd vöru­merk­is­ins og ferlið við að rækta og vinna úr byggi sem er notað í BIOEFFECT-vör­unum. Við gerðum okkur strax grein fyrir því að nýja versl­unin ætti að end­ur­spegla þetta ein­staka ferli með því að nota byggverk­smiðj­una sem inn­blástur og efnis- og lita­pal­lettur gróð­ur­húss­ins til að skapa sterka ímynd fyrir versl­un­ina og vöru­merkið.

Mynd/Hallur Karlsson

Hver var upprunalega hugmyndin og breyttist hún eitthvað í ferlinu?

Upp­runa­lega hönn­un­ar­hug­myndin var að skapa mjög létt and­rúms­loft, hengja sýn­ing­ar­muni niður úr loft­inu og búa til leik­andi sam­spil efna, lita og gagn­sæis. Grænir, strekktir þræðir eru til­vísun í bygg­plönt­una en langar týtur sem teygja sig úr axi hennar eru ein­kenn­andi fyrir hana. Þræð­irnir þekja ýmsa inn­an­húss­fleti versl­un­ar­innar, svo sem hús­gögn, veggi, skápa og lýs­ing­ar­muni. Með því að vinna náið með BIOEFFECT, þró­uðum við þessar hug­myndir áfram í gegnum til­rauna­vinnu með þétt­leika þráð­anna, efni og liti, þar til við náðum fram full­komnu jafn­vægi sem hent­aði bæði rým­inu og vöru­merk­inu.

Mynd/Hallur Karlsson

Lögun rým­is­ins er heldur óhefð­bundin og vegg­pláss lítið. Hverjar voru helstu áskor­an­irnar varð­andi rýmið?

Inn­an­húss­hönnun og skipu­lag versl­un­ar­innar ræðst af þrí­hyrn­ings­laga rým­inu. Flæði gesta er skipu­lagt í kringum ein­ingu í því miðju, þar sem hægt er að skoða vör­urnar, fá upp­lýs­ingar um þær og prófa þær. Þar er líka hægt að fá sér sæti og einnig virkar hún sem hirsla þar sem vör­urnar eru geymdar. Plöntur hanga niður úr stóru þrí­hyrn­ings­laga ljósi og stuðla enn frekar að almennri vellíðan.

Útstill­ing­ar­hillur eru í öllum gluggum versl­un­ar­innar. Þær hanga niður úr loft­inu og snerta því hvergi gólfið. Þetta skapar létt­leika og rýmin inni og úti renna saman. Lýs­ing­ar­hönn­unin var unnin í sam­starfi við Lisku en lýs­ingin er inn­felld í öll útstill­ing­ar­hús­gögn sem gefur heild­stætt yfir­bragð lýs­ingar án óæski­legra skugga­myndana.

Mynd/Hallur Karlsson

Hvaða atriði finnst ykkur skipta mestu máli í hönnun þegar kemur að því að end­ur­spegla vöru­merki og þau gildi sem það stendur fyrir og hvaða leiðir ákváðuð þið að fara til að ná því fram?

Fyrir okkur er mjög mik­il­vægt að öðl­ast djúpan skiln­ing á ímynd fyr­ir­tæk­is­ins og vöru­merki þess áður en við byrjum á hönn­un­ar­ferl­inu. Þetta gefur okkur tæki­færi til að með­höndla hvaða rými sem er sem vöru­merk­is­upp­lifun (e. brand­ing experience), þar sem fólki finnst það til­finn­inga­lega tengt vöru­merk­inu, sam­þætta lyk­il­gildi þess og stuðla að holl­ustu við fyr­ir­tækið. Í því fel­ast fleiri atriði en bara að setja upp skilti því allir þættir verða að vinna saman að því að mynda gríp­andi skynj­un­ar­upp­lifun sem er ein­stök fyrir vöru­merkið.

Við hönnun flagg­skips­versl­unar BIOEFFECT, veltum við því vand­lega fyrir okkur hvernig koma mætti vöru­merk­inu á fram­færi með skipu­lagi, upp­lifun við­skipta­vina, vöru­út­still­ingu, efn­is­notkun, litum og lýs­ing­ar­hönnun til að ná fram loka­hlekknum í því sem vöruí­myndin bygg­ist á. Hver ein­asta hönn­un­ar­á­kvörðun hefur að lokum áhrif á við­skipta­vini og starfs­fólk og sendir sterk skila­boð um fyrir hvað Bioeffect stendur sem fyr­ir­tæki.

„Við hjá Basalt arki­tektum erum afar þakk­lát fyrir sam­starf okkar við BIOEFFECT og viljum óska þeim til ham­ingju með árangur þeirra fram til þessa og í fram­tíð­inni,“ segja Marcos og Rut að lokum.

Viðtalið í heild sinni birt­ist í 5. tölu­blaði Húsa og híbýla 2020.

Kaupa blað í vef­verslun

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni