Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Öryggið í fyrirrúmi á þjóðvegum landsins

Öryggið í fyrirrúmi á þjóðvegum landsins

Eft­ir­vagnar verða áber­andi á þjóð­vegum í sumar enda ætla flestir lands­menn að ferð­ast inn­an­lands.  Mik­il­vægt er að huga að örygg­is­þáttum áður en lagt er af stað í fyrstu ferð sum­ars­ins.

Það stefnir í fjörugt ferða­sumar inn­an­lands hjá lands­mönnum enda ferð­ast fæstir Íslend­ingar til útlanda næstu mán­uð­ina. Sala ýmissa eft­ir­vagna hefur tekið kipp und­an­farnar vikur og ljóst að þjóð­vegir lands­ins verða þétt­skip­aðir stærri bif­reiðum og jeppum með nýjum og eldri eft­ir­vögnum á leið í spenn­andi sum­ar­frí.

„Þegar ferð­ast er um Ísland yfir sum­ar­tím­ann þarf alltaf að setja öryggið á odd­inn,“ segir Sigrún A. Þor­steins­dóttir, sér­fræð­ingur í for­vörnum hjá VÍS, „ekki síst þegar eft­ir­vagnar eru með í för. Við sjáum fyrir mikla aukn­ingu ferða­laga í sumar hjá lands­mönnum. Samkvæmt nýlegri rann­sókn EMC-rann­sókna stefna um 59% Íslend­inga á að gista í hús­bíl eða nota eft­ir­vagn á ferða­lögum í sumar. Þetta er ansi hátt hlut­fall sem þýðir að það er sér­stak­lega mik­il­vægt að huga að ýmsum örygg­is­þáttum, ekki síst áður en lagt er af stað í fyrstu ferð sum­ars­ins.“

Sigrún A. Þor­steins­dóttir, sér­fræð­ingur í for­vörnum hjá VÍS

Ekki ofhlaða eftirvagninn

Nokkur af helstu örygg­is­at­riðum sem þarf að hafa í huga fyrir sum­arið snúa að bílnum, vagn­inum sjálfum, eld­vörnum og ekki síst vind­inum sem hefur mjög mikil áhrif á öryggi ferða­langa í landi þar sem allra veðra er von, meira segja yfir sum­arið. „Bíl­eig­endur geta fundið í skrán­ing­ar­skír­teinum upp­lýs­ingar um hversu þungan eft­ir­vagn við­kom­andi bif­reið má draga. Það má því ekki draga þyngri eft­ir­vagn en þar kemur fram. Um leið er mik­il­vægt að hlaða ekki of miklum bún­aði og auka­hlutum á eft­ir­vagn­inn svo hann fari yfir leyfða heild­ar­þyngd.“

Stærri eft­ir­vagnar geta byrgt bak­sýn öku­manns og í þeim til­fellum er nauð­syn­legt, að hennar sögn, að setja hlið­ar­spegla á bíl­inn, báðum megin. „Svo er rétt að ítreka það að virða hámarks­hraða bif­reiðar á hverjum og einum stað.“

Gott er að hugsa að öllum örygg­is­þáttum

Notið öryggislínuna

„Einnig þarf að hafa ýmis­legt í huga varð­andi eft­ir­vagn­inn sjálfan,“ bætir hún við. „Ef vagn­inn vegur t.d. meira en 750 kg verður hann að vera búinn hemlum. Hér er gott að hafa í huga að ef bif­reiðin sjálf er útbúin ABS-hemlum, en eft­ir­vagn­inn ekki, er hætt við að vagn­inn fari ekki sömu leið þegar þarf að nauð­hemla, t.d. getur hann lagst með­fram bílnum.“

Hún minnir bíl­eig­endur á að ganga vel frá tengi­bún­aði eft­ir­vagns við bíl­inn og að nauð­syn­legt sé að nota örygg­is­lín­una. „Svo þarf auð­vitað að fara með eft­ir­vagn­inn í skoðun annað hvert ár.“

Eldvarnir skipta miklu máli

Nauð­syn­legar eld­varnir skipta auð­vitað mjög miklu máli þar sem bæði þarf að huga að ýmsum örygg­is­málum og nauð­syn­legum bún­aði, að sögn Sigrúnar. „Þar sem fastar gaslagnir eru til staðar þarf að sjálf­sögðu að huga sér­stak­lega vel að eld­vörnum. Líklegt er að eft­ir­vagn­inn sé á stöðugri hreyf­ingu yfir sum­arið, frekar en að hann sé stað­settur á sama stað yfir tíma­bilið, og því þarf að fylgj­ast reglu­lega með gaslögnum og teng­ingum í vagn­inum. Við mælum með því að fag­menn séu látnir yfir­fara lagnir og tengi á fimm ára fresti og um leið að skipta út þeim sem þörf er á.“

Nauð­syn­legur bún­aður á borð við slökkvi­tæki, eld­varn­ar­teppi, reyk­skynjara og gasskynjara þurfa að sjálf­sögðu alltaf að vera til staðar. „Þennan búnað þarf síðan að yfir­fara reglu­lega og tryggja að hann sé í lagi, m.a. út frá líf­tíma.“

Að lokum bendir hún á að það sé skyn­sam­legt að stað­setja sig ekki of nærri öðrum eft­ir­vögnum á tjald­svæð­inu. „Þannig minnkum við lík­urnar á að eldur ber­ist á milli vagna ef kviknar í.“

Vindurinn hættulegur

Mikill vindur getur verið mjög hættu­legur, meira að segja yfir sum­arið. „Eft­ir­vagnar taka á sig mik­inn vind og því er afar nauð­syn­legt að haga akstri í sam­ræmi við aðstæður,“ segir Sigrún. „Að sjálf­sögðu þarf að kynna sér veð­ur­spá og vinda­far áður en lagt er af stað en ekki síður að fylgj­ast vel með spánni því veð­ur­spáin getur breyst skjótt þótt það sé sumar.“ Hún nefnir sem dæmi að ef vind­hviður fari í 15 til 25 m/sek geti vind­ur­inn haft mikil áhrif á umferð­ar­ör­yggi. „Við þannig aðstæður mælum við með því að ferða­langar end­ur­skoði ferða­planið. Ef ekki er hægt að fresta ferð er nauð­syn­legt að draga úr hraða. Ef það síðan hvessir enn frekar ber skil­yrð­is­laust að stoppa og leggja upp í vind­inn.“

Að lokum bendir hún á gát­lista sem finna má á vef VÍS sem hún mælir með að not­aður sé í und­ir­bún­ingi ferða­laga sum­ars­ins.

Nánari upp­lýs­ingar inn á www.vis.is.

Stúdíó Birtíngur í sam­starfi við VÍS.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur