Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heyrnarlausa parið Hanna og Hilmar ætla að sigra heiminn

Heyrnarlausa parið Hanna og Hilmar ætla að sigra heiminn

„Við ætlum að sigra heim­inn, auð­vitað. Okkur langar til að ferð­ast mikið meira næstu árin, erum alls ekki hætt og látum ekk­ert stoppa okkur,“ segir Hanna K. Jóns­dóttir ferða­langur sem hefur síð­ast­liðin fjögur ár ferð­ast mjög víða með kærasta sínum, Hilmari Thoraren­sen Pét­urs­syni. Þau eru bæði heyrn­ar­laus og hafa lent í ýmsum ævin­týrum á ferða­lögum sínum.

Ferðalag heyrn­ar­lausa pars­ins hófst árið 2016 og síðan þá hafa þau ferð­ast til Póllands, Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmanna, Sví­þjóðar, Englands, Hollands, Taílands, Noregs, Ástralíu, Nýja-Sjálands, Indónesíu, Sín­ga­pore, Malasíu, Sri Lanka, Kambódíu, Katar, Mala­sísíu, Maldíves­eyja og Víetnam. Þau skipu­leggja öll sín ferða­lög sjálf og ætla ekki að hætta fyrr en þau hafa sigrað heim­inn.

Geta allt nema heyrt

„Okkur finnst best að skipu­leggja allt sjálf. Við kaupum flug­miða, finnum gist­ingu og alls konar afþr­ey­ingu. Við látum heyrn­ar­leysið alls ekki að stoppa okkur og látum drauma okkar ræt­ast. Við getum gert hvað sem okkur langar til, nema heyrt, auð­vitað,“ segir Hilmar.
Unga parið hefur kynnst fjölda fólks á ferða­lögum sínum, bæði öðru heyrn­ar­lausu fólki frá öðrum löndum og þau hafa einnig verið dug­leg að tjá sig með bend­ingum við þá sem ekki kunna tákn með tali. „Við höfum hitt ótrú­lega margt heyrn­ar­laust fólk frá mörgum löndum en tákn­málið er alls ekki það sama alls staðar. Það hefur verið virki­lega gaman og kynn­ast mis­mun­andi menn­ingu þess. Vel hefur gengið hjá okkur að tala saman á tákn­máli en þetta hefur verið skraut­legra gagn­vart þeim sem heyra,“ segir Hanna.

„Okkur finnst best að skipu­leggja allt sjálf.“
Hér eru Hanna og Hilmar með inn­fæddum á Balí í Indónesíu.

Ótrúleg ævintýri

„Við fórum til dæmis í fjög­urra daga sigl­ingu á Komodo-eyj­arnar í Indónesíu sem var algjör­lega topp­ur­inn af öllum okkar ferðum. Þarna sváfum við í tjaldi fyrir ofan bát­inn. Einn starfs­mað­ur­inn var alveg ynd­is­legur og við náðum mjög vel saman þrátt fyrir tungu­málið. Við heyrn­ar­laus, hann heyr­andi en við not­uðum mikið af lát­bragði, svip­brigðum og handa­bend­ingum. Við grín­uð­umst mjög mikið saman og hann gerði allt fyrir okkur þannig að í það skiptið græddum við hell­ing á því að vera heyrn­ar­laus,“ bætir Hanna við.

Hilmar er sam­mála því að þessi sigl­ing hafi verið topp­ur­inn. Hann seg­ist aldrei munu gleyma öllu dýra­líf­inu. „Við sáum þarna 11 metra stings­kötur og það var magnað að synda með þeim. Þá syntum við með sæskjald­bökum og skraut­legum fiskum. Að kvöld­lagi flugu yfir okkur þús­undir leð­ur­blaka í ætis­leit. Það besta var þó að sjá risa­stóra kómó­dódreka „í nær­mynd“ en þeir eru víst alveg stór­hættu­legir fólki. Þeir geta fundið blóð­lykt úr mik­illi fjar­lægð,“ segir Hilmar.

Ekki bara dans á rósum

Aðspurður segir Hilmar það ekki alltaf hafa ein­göngu verið dans á rósum að ferð­ast svona lengi og víða. Erf­ið­asta lífs­reynslan var þegar Hanna fór í bak­inu eftir að þau höfðu bæði borið 15 kílóa bak­poka á bak­inu svo dögum skipti. „Við vorum í Sihanoukville á Kambódíu og höfðum verið á ferða­lagi í tvo mán­uði. Þá fékk hún rosa­lega sprengju­til­finn­ingu í mjó­bak­inu, missti mátt­inn og lypp­að­ist niður. Hún gat ein­fald­lega ekki hreyft sig vegna verkja. Hringt var á sjúkra­bíl og farið með Hönnu á spít­ala. Þar var allt rosa­lega skítugt og gam­al­dags, þjón­ustan ekki alveg upp á það besta, svo ekki sé meira sagt,“ segir Hilmar. „Við þurftum að bíða enda­laust, Hanna fékk ekki einu sinni að pissa og ekk­ert að borða heil­lengi. Til að tjá  okkur skrif­uðum við í sím­ann með hjálp Google Translate. Það var mjög sér­stakt að upp­lifa þetta. Eftir nokkra klukku­tíma missti Hanna með­vit­und og þá varð ég skít­hræddur um að missa hana. Við sváfum tvær nætur á skítugu spít­ala­her­bergi með blóð­blettum upp um alla veggi þar sem okkur heyrn­ar­lausa fólk­inu var bara sagt að hringja þyrftum við aðstoð. Sem betur fer frétti hót­el­stjór­inn af okkur á spít­al­anum og kom okkur til bjargar, við erum miklir vinir í dag.“

Hér eru Hanna og Hilmar hopp­andi kát á Maldives-eyjum.

Vegabréfið horfið

Á ferða­lagi um Nýja-Sjáland leigðu Hanna og Hilmar sér bíla­leigu­bíl. Ferða­lagið gekk vel að mestu leyti, fyrir utan að þau lögðu bílnum ógæti­lega er þau fóru í árdeg­is­verð í borg­inni Auckland. „Við lögðum bílnum fyrir framan prent­smiðju sem okkur sýnd­ist vera lokuð. Eftir ynd­is­lega stund komum við til baka og þá var bíl­inn bara horf­inn. Við misstum hjartað í bux­urnar og vissum ekk­ert hvað við áttum að gera,“ segir Hanna. „Við báðum fólkið á veit­inga­staðnum að hjálpa okkur og kom þá í ljós að prent­smiðjan var opin og þeir höfðu hringt á drátt­ar­bíl þrátt fyrir að það voru tóm stæði allt í kring. Við þurftum að punga út 25 þús­und krónum til að fá bíl­inn aftur. Það tókst sem betur fer því við upp­götv­uðum líka að vega­bréfin okkar voru í hanska­hólfi bíls­ins og voru þar þegar við fengum bíl­inn því við áttum ferð til Balí eftir nokkra daga. Þetta kenndi okkur að skilja aldrei vega­bréfin okkar eftir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur