Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Vaknaði með þá fullvissu í hjartanu að dauði hans ætti að verða til einhvers góðs

Vaknaði með þá fullvissu í hjartanu að dauði hans ætti að verða til einhvers góðs

Aðal­björg Stefanía Helga­dóttir komst heldur betur í sviðs­ljósið þegar hún sendi frá sér bók­ina Sam­skipta­boð­orðin árið 2016. Í bók­inni notar hún eigin reynslu til að und­ir­strika mik­il­vægi góðra sam­skipta og segir við­brögðin hafa verið betri en hún þorði að vona. Hún vinnur nú að skrifum á bók um ein­mana­leika auk dokt­ors­rit­gerðar og fyr­ir­lestra- og nám­skeiða­halds um Sam­skipta­boð­orðin. Hún segir dauða föður síns, sem svipti sig lífi árið 2005, hafa sýnt sér að það skipti miklu máli að nota áföllin í líf­inu til að hjálpa öðrum.

Þegar Aðal­björg skrif­aði Sam­skipta­boð­orðin nýtti hún eigin reynslu mjög mikið sem dæmi, var ekk­ert erfitt að gefa þá bók út og opin­bera einka­líf sitt fyrir heim­inum?

„Nei, veistu, það varð í raun­inni auð­veld­ara en ég bjóst við,“ segir hún og hljómar hálf­hissa. „Ég man að þegar ég fékk fyrsta ein­takið af bók­inni í hend­urnar þá fannst mér hún eig­in­lega vera sjötta barnið mitt. Ég var búin að leggja þennan texta á þessar blað­síður en svo varð bókin sjálf­stæð og fær að fljúga um heim­inn og snerta fólk og gefa af sér áfram. Auðvitað var ég að segja þarna frá hlutum sem tengj­ast fjöl­skyldu minni, til dæmis því þegar pabbi minn, Helgi Jós­efs­son, kom út úr skápnum 2004 og fyr­ir­fór sér ári síðar. Ég skrif­aði um sorg­ina og þau áhrif sem þetta hafði á mig og vissi að ég var að tala um hluti sem eru mörgum í fjöl­skyld­unni erf­iðir. En ég reyndi að hafa í huga virð­ingu fyrir umfjöll­un­ar­efn­inu og öllum hlut­að­eig­andi, því þótt ég hafi upp­lifað hlut­ina á ákveð­inn hátt er ekki þar með sagt að allir aðrir hafi upp­lifað þá á sama hátt.“

Aðal­björg kann­ast vel við sekt­ar­kennd­ina sem aðstand­endur þeirra sem fyr­ir­fara sér finna fyrir og seg­ist auð­vitað hafa ásakað sjálfa sig fyrir að hafa ekki gert meira fyrir hann.

„Ég gerði það vissu­lega og það hellt­ist lengi vel yfir mig annað slagið,“ segir hún hrein­skiln­is­lega. „Nóttina sem hann dó svaf ég auð­vitað ekki neitt nema ég dott­aði aðeins og vakn­aði með þá full­vissu í hjart­anu að dauði hans ætti að verða til ein­hvers góðs og að ég gæti ein­hvern veg­inn stuðlað að því. Svona mikil þján­ing og sárs­auki einnar mann­eskju þarf ekki að leiða til þján­ingar og sárs­auka hjá fullt af öðru fólki, hann hefði alls ekki viljað það. Auðvitað fór maður þús­und sinnum yfir þessa síð­ustu daga hans í hug­anum og spurði sig hvort maður hefði getað gert eitt­hvað meira en ég held að fólk gangi alveg frá sér ef það situr fast í þeirri hugsun.“

Aðal­björg Stefanía Helga­dóttir segir sína sögu í for­síðu­við­tali við Vikuna. Mynd / Unnur Magna

Aðal­björg Stefanía er í for­síðu­við­tali Vikunnar sem kom í versl­anir í dag.

Kaupa blað í vef­verslun

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur