Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ekkert neikvætt að vera nörd

Ekkert neikvætt að vera nörd
Unnur Anna Valdi­mars­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Unnur Anna Valdi­mars­dóttir, pró­fessor í far­alds­fræði við lækna­deild Háskóla Íslands, prýðir for­síðu Vikunnar að þessu sinni. Unnur hefur lengi unnið að rann­sóknum á þeim áhrifum sem áföll hafa á and­lega- og lík­am­lega heilsu fólks. Hún leiðir rann­sókn­ina Áfalla­saga kvenna og er í for­svari fyrir Íslands­hluta fjöl­þjóð­legrar rann­sóknar á líðan þjóðar á tímum Covid-19 sem verið er að vinna. Hún seg­ist sjálf hafa verið heppin í líf­inu og ekki lent í stórum áföllum, en henni þyki afskap­lega áhuga­vert að skoða afleið­ingar áfalla og hversu mikil áhrif til­finn­ingar okkar hafa á heilsu okkar.

Unnur Anna Valdi­mars­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Eftir stúd­ents­próf frá MA lá leið Unnar í HÍ og það var sál­fræðin sem varð fyrir val­inu. Fljót­lega vakn­aði áhugi hennar á því að rann­saka hvaða áhrif áföll hefðu á and­lega og lík­am­lega heilsu fólks og loka­verk­efni hennar við Háskól­ann fjall­aði um um tengsl áfalla við þróun krabba­meina. Í dokt­ors­verk­efn­inu við við Karol­inska Institu­tet í Stokk­hólmi tók hún þá rann­sókn svo skref­inu lengra og skrif­aði um and­leg og lík­am­leg áhrif þess á konur að missa maka sinn úr krabba­meini. Hvernig stóð á því að þessi mál heltóku huga hennar?

„Það ein­hvern veg­inn æxl­að­ist þannig,“ segir Unnur hugsi. „Mér fannst þetta sam­band áfalla og heilsu­fars svo spenn­andi, sér­stak­lega sá mögu­leiki að áföll gætu haft áhrif á lík­ams­starf­semi okkar og þar með gert okkur ber­skjölduð fyrir hinum ýmsu sjúk­dómum. En rann­sóknir á þessu sviði voru þá – fyrir ald­ar­fjórð­ungi síðan – nokkuð skammt á veg komnar og flestar voru þær það tak­mark­aðar að erfitt var að draga af þeim óyggj­andi álykt­anir. Þessar spurn­ingar heill­uðu mig gjör­sam­lega og mig lang­aði til að leggja mitt af mörkum til að við öðl­uð­umst betri skiln­ing á áhrifum áfalla á heilsu­far þeirra sem fyrir þeim verða, ekki bara and­lega heilsu heldur sér í lagi lík­am­lega. Mér finnst einnig mjög áhuga­vert hvernig margir þeir sem lenda í slíkum hremm­ingum hafa seiglu og þraut­seigju til að halda áfram með líf sitt og halda heilsu. Ég von­ast til að þessar rann­sóknir okkar geti meðal ann­ars kennt okkur hvernig efla megi þessa þætti þannig að stækka megi þann hóp sem á aft­ur­kvæmt heilsu­fars­lega í kjöl­far áfalla.“

Stigma að vera eiginkona fótboltamanns?

Ástæða þess að Svíþjóð varð fyrir val­inu fyrir dokt­ors­námið var ekki síst sú að þáver­andi kær­asti og núver­andi eig­in­maður Unnar, Pétur Mart­eins­son, fór á samn­ing hjá sænska fót­boltalið­inu Hammarby og var síðan atvinnu­maður í fót­bolta í Svíþjóð, Englandi og Noregi í ell­efu ár. Hvernig fór það saman að vera eig­in­kona fót­bolta­manns og vís­inda­maður? Er ekki ákveðið stigma bundið því að vera „footballer’s wife“ í Evrópu?

„Þú segir nokkuð,“ segir Unnur og hlær. „Jú, kannski hefur fylgt því ákveðið stigma eftir sjón­varps­þætt­ina um konur knatt­spyrnu­manna þar sem dregin var fram mynd af konum sem hugs­uðu aðal­lega um útlitið og efn­is­leg gæði, voru svíns­legar hver við aðra. En inni­hald þeirra þátta hefur sam­kvæmt minni reynslu óskap­lega lítil tengsl við raun­veru­leik­ann. Þetta voru mjög góð ár, við kynnt­umst mörgu skemmti­legu fólki og eign­uð­umst góða vini á þessu flakki okkar um Evrópu. Ég var auð­vitað alltaf með annan fót­inn í Stokk­hólmi, var á kafi í mínum vís­indum og við upp­lifðum ekki þetta glam­úr­líf sem margir tengja við líf atvinnu­manna í fót­bolta. Bæði leik­menn­irnir og eig­in­konur þeirra eru bara ósköp venju­legt og gott fólk sem gaman var að umgang­ast og okkur þótti vænt um.“

Alltaf verið nörd

Það fer ekk­ert á milli mála þegar talað er við Unni um rann­sóknir hennar að hún er hug­fangin af verk­efnum sínum og þau eiga huga hennar allan. Ósjálfrátt hrekkur upp úr mér spurn­ingin hvort hún hafi alltaf verið nörd, spurn­ing sem vekur hjá henni mik­inn hlátur.

„Ég lít alls ekki á það sem eitt­hvað nei­kvætt að vera nörd,“ segir hún og hlær enn meira. „Ég hef alltaf sökkt mér ofan í hluti og reynt að skoða þá frá öllum hliðum. Hef til dæmis mik­inn áhuga á heim­speki og get algjör­lega gleymt mér í því að grafa djúpt í hlut­ina og nán­ast lifa og hrær­ast í þeim. Fólk verður oft undr­andi á því hvað ég fylgist illa með öðru en því sem ég hef áhuga á. Ég hef til dæmis aldrei hug­mynd um það hverjir eru „frægir“ á Íslandi og þess vegna mikið í umræð­unni. Það fer bara alveg fram­hjá mér. Ég hef verið svona síðan ég man eftir mér svo, já, senni­lega hef ég alltaf verið nörd.“

Lestu allt við­talið við Unni í Vikunni sem kom í búðir í dag.

Kaupa blað í vef­verslun

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur