Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sigurjón kemur aðdáendum á óvart

Sigurjón kemur aðdáendum á óvart

Sigurjón Pálsson, hús­gagna­hönn­uður og rit­höf­undur, og Ramma­gerðin hafa sett á markað nýja línu sem hefur hlotið frá­bærar við­tökur. Línan byggir á nor­rænni goða­trú og er frá­brugðin öllu öðru sem Sigurjón hefur áður sent frá sér.

„Við­brögðin sem ég hef fengið hingað til eru þó frá­bær og benda til að við höfum hitt í mark,“ segir Sigurjón, spurður hvernig við­tök­urnar hafi verið við nýju goða­lín­unni sem hann hefur sett á markað í sam­starfi við Ramma­gerð­ina, en um er ræða þrjár lit­ríkar tré­fígúrur af Óðni, Þór og Freyju sem eru rétt a byrja að sjást í versl­unum þessa dag­ana.

„Sem betur fer er goða­fræðin okkar nær ótæm­andi brunnur karakt­era svo stækk­un­ar­mögu­leikar ser­í­unnar eru eftir því þannig að það eru spenn­andi tímar framundan við að skapa nýja.“

Sigurjón segir von á fleiri fíg­urum innan tíðar. „Já, það er stutt í næstu goð; nú þegar eru sex næstu í und­ir­bún­ingi og komin mis­langt áleiðis. Sem betur fer er goða­fræðin okkar nær ótæm­andi brunnur karakt­era svo stækk­un­ar­mögu­leikar ser­í­unnar eru eftir því þannig að það eru spenn­andi tímar framundan við að skapa nýja,“ segir hann léttur í bragði.

Á fullt erindi við heimsbyggðina

Sigurjón hefur eins og kunn­ugt er getið sér góðs orðstírs fyrir fal­lega fugla, svo­kall­aða Vaðfugla, sem hið virta hönn­un­ar­fyr­ir­tæki Normann Copenhagen keypti til fram­leiðslu fyrir nokkrum árum og selur undir nafn­inu Shor­ebirds. Þeir slógu strax í gegn og eru nú meðal mest seldu vara þeirra. Hvað varð til þess að hann ákvað að snúa sér að nor­rænni goða­fræði?

„Þetta byrj­aði nú allt með því að Sigga Heimis, vöru­hönn­uður, sem starf­aði þá sem hönn­un­ar­ráð­gjafi hjá Ramma­gerð­inni, vildi kanna sam­starf við okkur feðga, en við Páll Þór, sonur minn, rekum fyr­ir­tækið Path ehf. sem sér um fram­leiðslu á allri minni hönnun nema þeirri sem erlend hönn­un­ar­fyr­ir­tæki hafa keypt,“ segir hann. „Við Palli sett­umst fyrst niður með Siggu og Bjarn­eyju Harð­ar­dóttur, eig­anda og stjórn­anda Ramma­gerð­ar­innar og veltum fyrir okkur hvað við gætum gert saman, en við vorum frá upp­hafi sam­mála um að útkoman þyrfti að upp­fylla kröfur um gæði og sam­keppn­is­hæf verð á alþjóða vísu. Eftir smá „brain­storm“ fannst okkur að æsirnir væru spenn­andi við­fangs­efni ekki síst vegna þess að allur heim­ur­inn þekkir orðið þessa karakt­era. Okkur þótti líka spenn­andi að vinna með þá kyn­slóð í huga sem nú er á fyrri hluta ævi­skeiðs síns sem upp­komið fólk, því það er sú kyn­slóð, fyrst og fremst, sem tekið hefur ást­fóstri við karakt­er­ana sem við erum að skapa í ser­í­unni. Þannig fór þetta af stað.“

Nýja línan sam­anstendur af þremur lit­ríkum tré­fígúrum af Óðni, Þór og Freyju sem eru rétt a byrja að sjást í versl­unum þessa dag­ana. Að sögn Sig­ur­jóns eru svo fleiri fígúrur vænt­an­legar. Mynd / Ramma­gerðin

Hann segir að kjöl­farið hafi verið ráð­ist í viða­mikla und­ir­bú­ings­vinnu sem fjöldi fólks tók þátt í, graf­ískir hönn­uðir, „ill­u­stratorar“, bún­inga­hönn­uðir, tækni­teikn­arar, þrí­vídd­ar­hönn­uðir, umbúða­hönn­uðir, texta­höf­undar og fleiri, fyrir utan Siggu Heimis og Bjarn­eyju og hennar fólk hjá Ramma­gerð­inni. „Þetta hefur verið afar skemmti­legt og gef­andi sam­starf, þannig að útkoman er ekki mitt verk eitt og sér, heldur stórs, opins teymis topp-fag­fólks, íslensku sem erlendu, sem við hand­völdum og ég leiddi en með aðkomu Páls Þórs. Hann er mjög vand­látur og naskur að finna nákvæm­lega réttu verk­smiðj­urnar fyrir hvert verk­efni og þurfti auð­vitað að segja til um hvað var mögu­legt og hvað ekki þegar kæmi að fram­leiðslu­þætt­inum í þessu verk­efni,“ útskýrir Sigurjón og nefnir sér­stak­lega aðkomu lista­manns­ins Ásgeirs Jóns Ásgeirs­sonar að verk­efn­inu. „Ásgeir Jón og texta­höf­und­ur­inn, Huldar Breið­fjörð hafa mikla inn­sýn í þennan heim nor­rænnar goða­fræði og Ásgeir Jón hefur unnið mörg verk­efni sem byggja á honum. Það var Ásgeir Jón sem lagði lín­urnar að karakt­er­út­liti ser­í­unnar. Maðurinn er snill­ingur á sínu sviði.“

Spurður hvort hann sé sjálfur mik­ill áhuga­maður um nor­ræna goða­fræði hugsar Sigurjón sig um dálitla stund. „Við getum sagt að ég sé að minnsta kosti orð­inn það núna því und­ir­bún­ingur verk­efn­is­ins krafð­ist mikil lest­urs um við­fangs­efnið,“ segir hann svo og kímir. „Ég hafði mikla ánægju af lestr­inum og komst að því að goða­fræðin er einn helsti menn­ing­ar­fjár­sóður okkar Íslend­inga. Það er því mál til komið að sýna umheim­inum með ein­hverjum hætti hverra arfur nor­ræna goða­fræðin er.”

Normann Copenhagen opnaði ýmsar dyr

Þetta er í fyrsta sinn sem Sigurjón og Ramma­gerðin taka höndum saman en hingað til hefur Epal verið einn helsti sam­starfs­að­ili þeirra feðga. Hann fer þó ekki í graf­götur með að það hafi verið sam­starfið við Normann Copenhagen sem kom honum fyrst á kortið. „Það opn­aði tví­mæla­laust ýmsar dyr. Það er til dæmis orðið auð­veld­ara fyrir mig að fá við­brögð fram­leið­enda núna þegar ég sendi eitt­hvað til þeirra og jafn­vel leitað þeir til mín og biðja um hug­myndir að ein­hverju sem þeir vilja fram­leiða. En þessi heimur er harður, sam­keppnin mikil og ekk­ert gefið að þú kom­ist að þótt þú hafir gert eitt­hvað sem slegið hefur í gegn,“ lýsir hann og segir COVID-19 hafa haft mikil áhrif á starf sitt eins og allra.

„Þessi heimur er harður, sam­keppnin mikil og ekk­ert gefið að þú kom­ist að þótt þú hafir gert eitt­hvað sem slegið hefur í gegn.“

„Spenn­andi verk­efni sem ég var með í vinnslu með rót­grónu, dönsku hönn­un­arf­irma og annað, sería, fyrir þekkt banda­rísku hönnuna­fyr­ir­tæki, eru nú komin á ís, sem dæmi, auk þess sem nýtt verk­efni sem var í gerjun með Normann Copenhagen var sett í bið. Við Palli erum þó á fullu og mörg járn í eld­inum hjá okkur en það er eins þar, kór­ónan setur sitt strik í reikn­ing­inn. Við erum þó að búa í hag­inn fyrir fram­tíð­ina því þetta ástand gengur yfir og hjólin fara aftur að snú­ast fyrr en varir og þá verðum við til­búnir með mörg ný verk,“ segir hann bjart­sýnn.

Með handrit að nýrri glæpasögu

Sigurjón hefur líka feng­ist við rit­störf og hlotið bæði lof­sam­lega dóma og góðar und­ir­tektir. Fyrsta bók hans, Klækir, hlaut til dæmis verð­laun Hins íslenska glæpa­fé­lags, Blóð­dropann 2012 og önnur bók hans, Blekking, gekk einnig vel í les­endur. Hvernig fer þetta eig­in­lega saman, skrift­irnar og hönn­un­ar­vinnna? „Svo vel að ég hef nán­ast ekk­ert skrifað síðan ég fór aftur að helga mig hönn­un­inni,“ svarar hann og skelli­hlær. „Ég hef satt best að segja nán­ast alfarið feng­ist við hönnun eftir því sem Normann Copenhagen fugl­arnir og verk­efnin fyrir Epal hafa verið að aukast og það jafn veru­lega og raun ber vitni.“

Sigurjón hefur vakið heims­at­hygli fyrir Vaðfugla sína. Mynd / Poul Madsen Ceo Normann Copenhagen

Hann bætir við að flétt­urnar sem hann vilji skapa í bókum sínum sé oft­ast dálítið flóknar og marg­slungnar með duldum vís­bend­ingum sem svo smella saman á síð­ustu blað­síð­unum. „Það krefst mik­illar nákvæmni og skýrrar hugs­unar þannig að fátt annað kemst fyrir á meðan ég er að koma flétt­unum mínum af mjúka disk­inum í hausnum á mér yfir á harða diskinn í tölv­unni. Skrift­irnar eru oft mik­ill elt­ing­ar­leikur við smá­at­riðin. Ef maður breytir einu atriði fram­ar­lega í sögu­þræð­inum getur það rakið sig í gegnum alla bók­ina og ef þú klikkar á að upp­færa stað­reynd­irnar á bara á einum stað, fellur bókin,“ útskýrir hann en tekur fram að það sé ótrú­lega gaman að „hanna“ flóknar fléttur.

„Reyndar á ég ófull­gert hand­rit að nýrri bók með sömu aðal­karakt­erum á harða disknum í tölv­unni. Sögu­sviðið í henni er mikið til minn gamli, fal­legi heima­bær, Húsavík og reyndar Norður-Þingið allt því upp­hafið – aðdrag­and­inn að marg­slungnum endi – og óvæntur snún­ingur í lokin, eiga sér stað á Brima­lóni á Mel­rakka­sléttu, bæ sem er mín hug­ar­smíð en í lok bókar, tveimur ára­tugum eftir upp­hafið, er Brimalón orðið eyði­býli. Þessi saga inni­heldur bestu flétt­una mína hingað til,“ segir hann með blik í augum.

En nú er það sem sagt hönn­un­ar­vinnan sem á hug hans allan og auð­heyri­legt að þeir feðgar, Sigurjón og Páll hafa nóg fyrir stafni. „Já, það er sko alltaf nóg í píp­unum,“ segir Sigurjón og brosir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni