Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Lostæti í næsta nágrenni – staðir sem bjóða upp á þjóðlegt góðgæti

Lostæti í næsta nágrenni – staðir sem bjóða upp á þjóðlegt góðgæti
Litli Bær. Mynd / Guðný Hilm­ars­dóttir

Nú er hægt að nálg­ast á einum stað ítar­legt yfir­lit yfir veit­inga­hús, mat­sölu­staði og kaffi­hús sem leggja áherslu á þjóð­lega rétti og mat úr hér­aði. Vefsíðan Ekta vísar ferða­löngum á lost­æti í næsta nágrenni.

Guðný Hilm­ars­dóttir, ljós­mynd­ari, ferða­þjón­ustu­fröm­uður og stofn­andi Ekta.

„Þetta eru allt frá því að vera staðir sem bjóða kaffi og með því upp í mat af fín­ustu gerð. Þannig að þetta eru fjöl­breyttir og ólíkir staðir sem eiga það þó sam­eig­in­lega að leggja áherslu á íslenska rétti og íslenskt hrá­efni,“ lýsir Guðný Hilm­ars­dóttir, ljós­mynd­ari, ferða­þjón­ustu­fröm­uður og stofn­andi Ekta, nýrrar vef­síðu sem vísar ferða­mönnum á mat­sölu­staði þar sem íslensk mat­ar­menn­ing er í hávegum höfð.

Guðný segir að til þess að kom­ast á lista þurfi stað­irnir ein­fald­lega að upp­fylla fyrr­nefnd skil­yrði. „Stað­ur­inn þarf að bjóða rétti sem telj­ast þjóð­legir eða bjóða mat úr hér­aði til að telj­ast gjald­gengur. Við valið styðst ég við mat­seðla og reyni að heim­sækja stað­ina þegar ég get komið því við. Hins vegar forð­ast ég staði sem leggja áherslur á pít­sur, ham­borg­ara og annan skyndi­bita, þótt inn á milli séu vissu­lega mat­sölu­staðir sem bjóða slíkt í bland við hitt, þetta íslenska og þjóð­lega. Þetta er ekki alveg klippt og skorið.“

„Staðir og mat­seðlar geta auð­vitað breyst, þannig að ein­hverjir geta dottið út og aðrir bæst við og ég tek vel á móti ábend­ingum frá fólki sem finnst að til­tek­inn stað vanti eða að ein­hver staður eigi ekki heima þarna.“

Hún tekur fram að list­inn sé heldur ekki tæm­andi. „Nei, hann er alls ekki meit­l­aður í stein. Staðir og mat­seðlar geta auð­vitað breyst, þannig að ein­hverjir geta dottið út og aðrir bæst við og ég tek vel á móti ábend­ingum frá fólki sem finnst að til­tek­inn stað vanti eða að ein­hver staður eigi ekki heima þarna. Þetta á að vera lif­andi listi.“

Vill halda uppi heiðri íslenskrar matarmenningar

Sjálf seg­ist Guðný vera mikil áhuga­mann­eskja um íslenska mat­ar­gerð og það hafi átt stóran þátt í því að hún opn­aði Ekta. „Já, ég er mjög áhuga­söm um hana og reyndar bara mat­ar­menn­ingu yfir­leitt. Ég bjó til dæmis á Spáni í fimmtán ár og er mjög hrifin af Mið­jarð­ar­hafs­matar­æði en nú bý ég á Íslandi og mig langar til að halda uppi heiðri íslenskrar mat­ar­menn­ingar og koma henni á fram­færi,“ segir hún. „Mér finnst bara mik­il­vægt að bæði þjóðin og ferða­menn fái að njóta hennar því hún hefur tekið jákvæðum breyt­ingum á síð­ustu árum og ára­tugum, án þess þó að missa ein­kenni sín, og það er svo margt gott í boði.“

Eins og er eru allar upp­lýs­ingar á vefnum á íslensku, en Guðný segir að þær komi einnig til með að verða á ensku þegar erlendir ferða­menn fara aftur að koma til lands­ins í ein­hverjum mæli. Innan tíðar muni svo birt­ast á Ekta sér­stök kort sem auð­veldi not­endum að finna þá staði sem fjallað er um á vef­síð­unni.

Hugmyndin kviknaði í náminu

Vefsíðan Ekta vísar ferða­löngum á lost­æti í næsta nágrenni. Mynd / Fisk­fé­lagið

En hvernig skyldi hug­myndin að síð­unni hafa kviknað? „Hún byrj­aði sem meist­ara­verk­efni þegar ég lagði stund á menn­ing­ar­stjórnun við Bifrost,“ svarar Guðný. „Í nám­inu ein­blíndi ég mikið á menn­ing­ar­tengda ferða­þjón­ustu, enda búin að starfa í þeim geira í rúman ára­tug, og skoð­aði alls konar menn­ing­ar­tengda þætti. Svo fór ég að grúska í alls konar gögnum um íslenska mat­ar­menn­ingu og smám saman rann upp fyrir mér að það var auð­veld­ara að hafa uppi á benín­stöðvum sem gera út á skynd­bita en að finna staði sem bjóða upp á ósvik­inn íslenskan mat. Það vant­aði alveg almenni­legt yfir­lit yfir slíka staði.“

Meist­ar­verk­efnið var við­skipta­á­ætlun fyrir Ekta Iceandic food experience og fór svo að það var valið til þátt­töku í Virkjum hug­vitið á vegum Íslenska ferða­kla­s­ans, atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins, Icelandic Startups, Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands, og Ferða­mála­stofu, sem Guðný segir að hafi verið sér mikil hvatn­ing.

„Það var auð­veld­ara að hafa uppi á benín­stöðvum sem gera út á skynd­bita en að finna staði sem bjóða upp á ósvik­inn íslenskan mat.“

Vefsíðan var níu mán­uði í vinnslu, eða sem sam­varar einni með­göngu eins og hún orðar það, og ekki gekk átaka­laust fyrir sig að koma henni í loftið. „Satt besta að segja kom mér á óvart hversu erfitt var að fá svör frá eig­endum og rekstr­ar­að­ilum stað­anna. Ég veit ekki hvort þetta er eitt­hvað sér­ís­lenskt dæmi, en það tók alveg tíma að hafa uppi á fólki og fá við­brögð, þannig að það var svo­lítil vinna í kringum þetta. Ég tek þó fram að auð­vitað á það alls ekki við alla, sumir tóku strax við sér og voru mjög jákvæðir fyrir þessu.“

Þurfum öll að hjálpast að

Guðný getur þess að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hafi líka sett strik í reikn­ing­inn. „Upp­haf­lega hug­myndin með vef­síð­unni var til dæmis að skapa verk­efni sem ég gæti ekki endi­lega lifað af en haft smá tekjur af með sam­starfi við veit­inga­staði og aðra staði sem upp­fylla þessi áður­nefndu skil­yrði. En í ljósi þeirrar alvar­legu stöðu sem er komin upp innan ferða­þjón­ust­unnar og veit­inga­geirans á Íslandi vegna COVID-19 ákvað ég að fara af stað án þess að rukka þá staði, sem er getið á vef­síð­unni. Þannig ætla ég að hafa það fyrst um sinn. Svo sjáum við bara til hvernig ég útfæri þann hluta þegar aftur fer að birta til í sam­fé­lag­inu. Eins og staðan er þurfum við öll að hjálp­ast að þar til við komumst út úr þessu ástandi.“

Nánar á ektaiceland.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni