Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fann sína hillu í lífinu og vinnur nú með stjörnum

Fann sína hillu í lífinu og vinnur nú með stjörnum
Sigríður Ágústa Finn­boga­dóttir. Mynd / Aðsend

Sigríður Ágústa Finn­boga­dóttir hefur hlotið athygli fyrir fata­hönnun sína eftir að hún útskrif­að­ist úr Lista­há­skóla Íslands á síð­asta ári. Á stuttum tíma hefur hún unnið með stórum nöfnum í tísku­heim­inum erlendis og stjörnum í íslensku tón­list­ar­lífi. Sjálf segir Sigríður að til­hugs­unin um að vinna innan tísku­heims­ins hafi alltaf heillað en það hafi hins vegar tekið hana tíma að finna sína hillu.

„Ekki alveg, en ég vissi alltaf að mig lang­aði að vinna eitt­hvað með föt. Það kom fátt annað til greina,“ segir Sigríður Ágústa, þegar hún er spurð hvort hún hafi alltaf verið stað­ráðin í að leggja fata­hönnun fyrir sig.

„Mig dreymdi alltaf um að starfa innan fata­iðn­að­ar­ins en lengi vel vissi ég ekki nákvæm­lega við hvað,“ heldur hún áfram. „Ég próf­aði að fara á klæða­skera­braut í Tækni­skól­anum, sem var mjög lær­dóms­rík reynsla, en svo ákvað ég að taka mér smá­pásu og skellti mér þá í starfs­nám til Dan­merkur og Sví­þjóðar. Mig lang­aði að prófa að vinna hjá stórum fyr­ir­tækjum erlendis og fékk inni hjá tveimur fyr­ir­tækjum, Stine Goya í Danmörku og hjá Filippa K. í Svíþjóð og náði að púsla því þannig að ég gæti farið á báða staði. Þegar ég kom heim til Íslands eftir það ævin­týri var ég alveg viss um hvað ég vildi og skipti yfir í fata­hönnun.“

Sigríður vakti strax athygli fyrir óvenju­lega útskrift­ar­línu sína.

Glæsikona sem endaði í fiskvinnslu

Sigríður sótti um inn­göngu í Lista­há­skóla íslands og útskrif­að­ist þaðan af fata­hönn­un­ar­braut árið 2019 og vakti strax athygli fyrir óvenju­lega útskrift­ar­línu. „Útskrift­ar­línan mín fjall­aði um neyslu­hyggju og hvernig við metum hlut­ina sem við eigum,“ útskýrir hún. „Ég vann hana út frá sögu­per­sónu sem ég skáld­aði upp, fyrrum glæsi­konu sem neyð­ist til að flytja út á land aðeins með sínar ver­ald­legu eigur. Allt í einu þarf hún að læra að bjarga sér, vinna í fiski, gera við fötin sín og skapa eitt­hvað nýtt úr því sem hún á, en heldur í glam­úr­inn. Þetta end­ur­spegl­að­ist í lín­unni þar sem ég bjó til vinnu­fatnað á móti meiri glam­úr­flíkum og not­aði efni sem líkt­ust áklæði og rúm­dýnu og vís­aði líka í fisk­vinnslu­fatnað, svuntur og erma­hlífar.“

„Þegar ég kom heim til Íslands eftir það ævin­týri var ég alveg viss um hvað ég vildi og skipti yfir í fata­hönnun.“

Hún segir að í nám­inu hafi mikil áhersla verið lögð á sjálf­bærni og end­ur­vinnslu og það hafi heillað hana. „BA-rit­gerðin mín sner­ist um sjálf­bærni innan fata­iðn­að­ar­ins og vanga­veltur um iðnað og neyslu og eftir útskrift hef ég haldið svo­lítið áfram að vinna með þær vanga­veltur. End­ur­vinnsla og sjálf­bærni eru mér ofar­lega í huga og svo sæki ég aðal­lega inn­blástur í hvers­dags­leik­ann og hluti. Ég hef svo ótrú­lega gaman af því að blanda saman and­stæðum og ólíkum heimum eins og hug­myndin á bak við útskrift­ar­lín­una end­ur­speglar.“

Dásamlegt að vinna með Bríeti

Spurð nánar út í ferl­inn eftir útskrift seg­ist Sigríður hafa feng­ist við alls konar skemmti­leg verk­efni, bæði sjálf­stætt og í sam­starfi við aðra hönn­uði og sam­hliða því hefur hún kennt með­ferð textíls í grunn­skóla. „Ég er alltaf opin fyrir nýjum verk­efnum og hef verið dug­leg að prófa nýja hluti. Ég vinn til dæmis fyrir aðra hönn­uði og svo hef ég verið að hanna bún­inga fyrir tón­list­ar­fólk,“ segir hún, en á meðal þeirra sem Sigríður hefur hannað bún­inga á er engin önnur en tón­list­ar­konan Bríet. Hvernig kom það sam­starf til?

„Bríet hafði sam­bandi við mig eftir að hún sá útskrift­ar­lín­una mína,“ svarar hún glað­lega. „Hún var dug­leg að fá lánuð föt úr lín­unni fyrir tón­leika og sam­hliða því fórum við að hanna og sauma ný dress fyrir hina ýmsu við­burði og erum enn að. Við höfum mikið verið að breyta not­uðum fötum og sauma eitt­hvað nýtt upp úr þeim og svo höfum gert eitt­hvað nýtt frá grunni,“ lýsir hún og segir sam­starfið ganga eins og í sögu. „Það er svo gott að vinna með fólki sem er opið fyrir því að prófa eitt­hvað nýtt og það er dásam­legt að vinna með Bríeti. Okkur semur mjög vel. Svo er nán­ast sama hverju hún klæð­ist, það fer henni allt vel.“

Á meðal þeirra sem Sigríður hefur hannað bún­inga á er engin önnur en tón­list­ar­konan Bríet. Mynd / Aðsend

Hvert sæk­irðu inn­blástur? „Það er svo ótrú­lega mis­jafnt,“ segir hún. „Þegar ég hanna til dæmis fyrir ein­stak­linga hef ég við­kom­andi alltaf í huga og svo þróum við eitt­hvað skemmti­legt út frá því.“

Draumurinn alltaf að verða búðarkona

Nú er því stundum haldið fram að íslenskir hönn­uðir þurfi að sinna öðrum störfum til að fram­fleyta sér. Tekur Sigríður undir það, í ljósi þess að hún hefur sjálf verið að kenna? Eða telur hún að hönn­uðir geti lifað af hönnun sinni einni og sér? Er til dæmis líf­væn­legt á Íslandi að vera með eigið fata­merki?

„Ég hef ekki enn farið með mína hönnun í fram­leiðslu og hef hingað til sinnt ýmsum störfum sam­hliða henni,“ svarar hún. „Það fylgja því ákveðnar áskor­anir að fram­leiða vörur á Íslandi, það er bara stað­reynd. En mér finnst frá­bært að sjá allar góðu breyt­ing­arnar innan iðn­að­ar­ins og ég dáist að því hvað margir fata­hönn­uðir hafa verið að taka skrefið í átt að sjálf­bærni, bæði erlendis og hér heima. Hér er fullt af frá­bærum hönn­uðum sem eru að gera flotta hluti og fram­tíðin björt fyrir okkur hin sem erum að taka okkar fyrstu skref.“

„það er dásam­legt að vinna með Bríeti. Okkur semur mjög vel.“

Sjálf seg­ist Sigríður vera að vinna að ýmsum spenn­andi verk­efnum. „Ég er núna meðal ann­ars að hanna fleiri bún­inga fyrir tón­list­ar­fólk, er síðan að þróa áfram nokkra stíla út frá útskrift­ar­lín­unni minni og er með nokkur ný snið í vinnslu. Síðan ætla ég bara að halda áfram að vera opin fyrir nýjum tæki­færum. Draum­ur­inn var alltaf að verða búð­ar­kona. Hver veit nema sá draumur ræt­ist einn dag­inn,“ segir hún og brosir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur