Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hjólreiðarnar eiga hugann og hjartað

Hjólreiðarnar eiga hugann og hjartað
Hrönn Ólína Jör­unds­dóttir Mynd / Hákon Davíð

Hrönn Ólína Jör­unds­dóttir, nýr for­stjóri Mat­væla­stofn­unar, hefur ástríðu fyrir vinn­unni sinni, keppir í hjól­reiðum, elskar að sinna börn­unum sínum og passar upp á matar­æðið og almennt heil­brigði. Hún segir að helst þyrftu að vera sjö­tíu og fimm klukku­tímar í sól­ar­hringnum til að hún kæm­ist yfir allt sem hana langar að gera en neitar því að vera undir álagi. Hún hafi alltaf haft þann eig­in­leika að hella sér hund­rað pró­sent út í það sem veki áhuga hennar og eftir að hún fjar­lægði mjólk­ur­vörur úr matar­æð­inu hafi hún verið óstöðv­andi.

Fyrir utan vinn­una eru það hjól­reið­arnar sem taka mest af tím­anum. Hvernig hjól­reiðar stundar Hrönn?

 „Ég hef bæði verið á fjalla­hjólum og ferð­ast mikið um hálendið í fjalla­hjóla­ferðum,“ segir hún. „En ég hef líka verið á götu­hjólum og svo hef ég verið að keppa í báðum flokkum, varð meira að segja Íslands­meist­ari í fjalla­hjól­reiðum 2017. Ég hef líka tekið að mér bæði þjálfun og kennslu og fleira. Ég þyrfti eig­in­lega svona sirka sjö­tíu og fimm klukku­tíma í sól­ar­hring­inn til að kom­ast yfir að gera allt sem mér finnst skemmti­leg­ast.“ 

 Spurð hvernig hún hafi tíma til að sinna þessu öllu saman segir Hrönn að það snú­ist um að for­gangs­raða því sem skipti mann máli og skipu­leggja tíma sinn. 

„Ég horfi til dæmis mjög lítið á sjón­varp,“ upp­lýsir hún. „Ég dett svo sem alveg inn í að horfa stundum á föstu­dags­mynd með krökk­unum en ég næ sjaldan að fylgj­ast með ein­hverju sem er í sjón­varp­inu.“ 

 Hvað vakti áhug­ann á hjól­reið­unum? 

„Þetta byrj­aði með að ég tók þátt í átak­inu Hjólað í vinn­una 2012,“ segir Hrönn. „Það var virki­lega flott fram­tak hjá íþrótta­hreyf­ing­unni. Ég hélt síðan áfram að hjóla allt sum­arið og sá svo að ég var á lélegu hjóli þannig að ég keypti mér betra hjól og hélt áfram að hjóla allan vet­ur­inn. Svo óx þetta og óx og end­aði bara í tómri vit­leysu, held ég,“ bætir hún við og skelli­hlær. 

 Þú hefur orðið algjör­lega hel­tekin af hjól­reið­unum? 

 „Jaaá, lífið snýst ansi mikið um hjól­reiðar hjá mér,“ við­ur­kennir Hrönn. „Ég hef þrisvar sinnum tekið þátt í WOW Cyclothoninu, keppt á alls konar mótum og farið erlendis í æfinga­ferðir, þannig að þetta hefur verið mjög skemmti­legt. Ég hef ekki ennþá keppt erlendis en það kemur kannski að því.“ 

 Spurð hvort að börnin deili hjól­reiða­á­huga þeirra hjóna segir Hrönn að þau séu nú ekk­ert mjög áhuga­söm en það eigi kannski eftir að breyt­ast. 

 „Ég hef aðeins reynt að draga þau með út að hjóla,“ segir hún. „En þau hafa ekki verið sér­lega ginn­keypt fyrir því að hella sér út í þetta. Kannski vegna þess að þetta verður svo öfga­kennt hjá mér að þeim líst ekk­ert á að fara alveg þangað. Ég er samt ekki alveg búin að gef­ast upp á því að kveikja áhuga þeirra á hjól­reiðum. Við förum mikið á skíði á vet­urna fjöl­skyldan og það hefur verið okkar fjöl­skyldu­sport að fara upp í fjöll og skíða. Tvö þeirra eru líka á snjó­brettum og okkur þykir það virki­lega skemmti­legt sport.“ 

 Kviknaði á orku­takka  

 Hrönn seg­ist svo sem ekk­ert geta útskýrt það hvers vegna hjól­reið­arnar heill­uðu hana svona gjör­sam­lega, en hún hafi alltaf haft þann eig­in­leika að hella sér að heilum huga út í það sem vekur áhuga hennar. 

 „Það er eig­in­lega svona on/off takki á mér, held ég,“ segir hún hlæj­andi. „Ég var reyndar ekk­ert alltof virk þegar ég var yngri og komst að því fyrir til­viljun þegar ég var orðin full­orðin að ég þjá­ist af mjólk­urof­næmi. Um leið og ég tók allar mjólk­ur­vörur út úr fæð­unni var eins og kvikn­aði á ein­hverjum orku­takka og eftir það hef ég ekki stoppað. Ég var oft svo orku­lítil og alltaf með exem og það upp­götv­að­ist bara fyrir hreina til­viljun þegar ég var komin yfir þrí­tugt að ástæðan væri mjólk­ur­ó­þol. Sam­starfs­kona mín benti mér á að hún hefði farið með son sinn, sem hafði verið með svipuð ein­kenni og ég, í grein­ingu og fengið þann úrskurð að hann væri með mjólk­urof­næmi. Þannig að ég próf­aði að taka mjólk­ur­vör­urnar út og snar­lag­að­ist og hef forð­ast mjólk­ur­vörur eftir það.“ 

Hrönn Ólína prýðir for­síðu Vikunnar sem kom í versl­anir í dag og þar er hægt að lesa við­talið í heild.

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur