Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Var ráðlagt að leyna hjónabandinu“

„Var ráðlagt að leyna hjónabandinu“
Dísella Lár­us­dóttir.

Dísella Lár­us­dóttir hefur heldur betur gert það gott á tón­list­ar­svið­inu síð­ustu ár. Leiðinni að vel­gengni var þó þyrnum stráð. Dísella hafði tak­mark­aða trú á sjálfri sér þegar hún var að feta sín fyrstu spor í óperu­söng og bjóst allt eins við að hún myndi aldrei starfa í óperu­heim­inum. Auk þess reyndu ýmsir að hafa áhrif á feril hennar með hræðslu­á­róðri. Dísella er undir smá­sjánni að þessu sinni.

Fullt nafn: „Hjördís Elín Lár­us­dóttir. Ég svara þó eig­in­lega ekki nafn­inu Hjördís því hef ég alltaf verið kölluð Dísella og átti að heita það, en manna­nafna­nefnd vildi ekki sam­þykkja nafnið þegar ég fædd­ist.“

Aldur: „43 ára“

Starfs­heiti: „Söngkona“

Hvað hef­urðu verið að bralla fram til þessa: „Ég ver mestum tíma í að reyna að finna jafn­vægi milli þess að vera mamma og sjálf­stætt starf­andi söng­kona.“

Áhugamál: „Ég fatt­aði bara nýlega að ég á mér eig­in­lega ekki alvöru­á­huga­mál fyrir utan söng­inn, þetta ger­ist oft hjá fólki þegar áhuga­málið verður að vinnu. Jú, reyndar finnst mér gaman að dunda mér í eld­hús­inu.“

Á döf­inni: „Ég er að fara að syngja í óperu­upp­færslu í Frakk­landi í vetur. Þess utan erum við fjöl­skyldan að koma okkur betur fyrir í nýju húsi sem við fluttum inn í í júní og und­ir­búa komu þriðja barns­ins.“

Þú átt við­burða­ríkan feril að baki og hefur meðal ann­ars sungið og leikið á sviði Metropolitan-óper­unnar þar sem margir af helstu óperu­söngv­urum sög­unnar hafa sungið.

Hver hefur verið mesta áskor­unin við að koma þar fram?
„Stærsta áskor­unin var að hafa trúi á sjálfri mér. Ég komst gegnum prufu­ferli á vegum þessa merka óperu­húss bara stuttu eftir að ég kláraði masters-námið mitt og á þeim tíma hafði ég í hrein­skilni sagt enga trú á því að ég væri að fara að starfa við söng. En þegar maður kemst gegnum strembið áheyrn­arprufu­ferli verður maður auð­vitað að treysta því að fólkið sem situr við og hlustar og dæmir mann, viti sínu viti og fari ekki að hleypa manni inn í svona hús, óreyndri og án bak­hjarls nema maður hafi upp á eitt­hvað að bjóða. Þetta er nokkuð sem ég hef þurft að minna mig reglu­lega á þegar ég hef staðið á þessu risa­stóra sviði fyrir framan 4.000 áheyr­endur. Maður þarf að muna að standa með sjálfum sér.“

„Ég hafði ekki heyrt annað eins bull og lét það ekki stöðva mig í að eign­ast mitt fyrsta barn um svipað leyti og ég var að hefja feril minn sem sjálf­stætt starf­andi söng­kona.“

Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið sem söng­kona og í líf­inu yfir­leitt? „Að fara ekki í felur með að ég væri gift og ætti börn. Í byrjun fer­ils­ins var mér nefni­lega ráð­lagt að eign­ast ekki börn og leyna því að ég væri gift ef ég ætl­aði mér að ná langt í þessum bransa. Ég hafði ekki heyrt annað eins bull og lét það ekki stöðva mig í að eign­ast mitt fyrsta barn um svipað leyti og ég var að hefja feril minn sem sjálf­stætt starf­andi söng­kona. Þetta hljómar kannski ekki eins og ein­hver rosa­leg áhætta, en mörgum fannst ég nú samt vera tefla fram­anum í tví­sýnu og kannski hafði þetta ein­hver áhrif á atvinnu­til­boðin. Það verður þá bara að hafa. Ég sé ekki eftir neinu, enda er ég svo rík að eiga ynd­is­lega fjöl­skyldu og mér líður vel í einka­líf­inu. Ég hef aldrei farið í felur með mína fjöl­skyldu­hagi til að kom­ast áfram. Mér dytti það ekki í hug.“

Býrðu yfir leyndum hæfi­leika? „Það má eig­in­lega segja að ég búi yfir þeim ein­staka hæfi­leika að hafa skelfi­lega miklar áhyggjur. Ég varð eig­in­lega hálf­gerð ofur­hetja á því sviði eftir að ég varð mamma. Bragi mað­ur­inn minn er algjör and­stæða við mig, alltaf sultu­slakur, og við gerum óspart grín að því hvað við erum ýkt sitt í hvora átt­ina. Það er nauð­syn­legt að geta hlegið svo­lítið að sjálfum sér, það er svo gott fyrir sál­ina.“

Hver yrði tit­ill­inn á ævi­sög­unni? „Tví­mæla­laust „Er ég að gleyma ein­hverju?“ Ég er nefni­lega á sífelldu flakki og mér finnst ég alltaf vera að gleyma ein­hverju ein­hvers staðar, lyklum, vega­bréf­inu eða nótum,“ segir hún og hlær.

Hver myndi leika þig í bíó­mynd­inni? „Augljósi kost­ur­inn er vita­skuld Hulk Hogan. Samuel L. Jackson kemur líka sterk­lega til greina.“

Í hvaða óperu hefur þér þótt skemmti­leg­ast að syngja? „Ég get ekki nefnt ein­hverja eina, enda er það nú bara oft þannig að maður heldur eig­in­lega mest upp á þá óperu sem maður er að syngja í hverju sinni.“

Í hvaða óperu­upp­setn­ingu hefð­irðu viljað syngja? „Það hefði nú verið skemmti­leg upp­lifun að taka þátt í frum­flutn­ingi á ein­hverri óperu eftir Mozart, Strauss, Donizetti, Verdi eða ein­hvern annan meist­ara og fá að vinna með tón­skáld­inu sjálfu og kynn­ast verk­inu þannig. Klass­ískir tón­list­ar­menn fá svo sjaldan að vinna með núlif­andi tón­skáldum, sem er synd því það er ómet­an­legt að fá sýn skjáld­anna sjálfra á tón­heim þeirra.“

Hvaða plötur eru í upp­á­haldi? „Mér finnst gott að setja djass, hljóð­færatón­list eða tón­list sem ekki er klass­ísk á fón­inn í lok dags til að slaka á, til dæmis Lost Tapes með Cheet Baker eða The Bossa Nova Years með Stan Getz. Ég á nefni­lega erfitt með að hlusta á óperur eða lög sem eru sungin án þess að fara pæla í söng­tækn­inni og hvað mætti betur fara og þá er maður auð­vitað ekki að gefa sér tíma til að slaka á. Auðvitað held ég samt alveg upp á ýmsar klass­ískar plötur. Nánast allar söng­laga­upp­tökur með Dietrich Fischer Dieskau sem dæmi; Lulu eftir Alban Berg þar sem Teresa Stratas syngur aðal­hlut­verkið og Pierre Boulez stjórnar Orchestre de l‘Opera de Paris. Í mestu upp­á­haldi eru þó Piano concertos númer 1 og 3 eftir Tchaikovsky sem ég fékk þegar ég var þrettán ára, en þar spilar Andrei Gavrilov og Vladimir Ashkenazy stjórnar.“

Bestu og verstu íslensku plötur allra tíma? „Til dæmis Kókostré, Hvítir mávar og Hve glöð er vor æska með Stuð­mönnum, Deluxe með Ný danskri, 1975 með Gunnari Þórð­ar­syni, Innri með Stór­sveit Reykja-víkur og Nú stendur mikið til með Sigurði Guð­munds­syni og Mem­fismafí­unni er upp­á­hald­s­jóla­platan. „Upp­á­halds versta platan“, og þetta segi ég með fullri virð­ingu, er síðan Viltu bjór væna, með Fræbbl-unum.“

Hvað get­urðu sjaldn­ast stað­ist? „Ískaldan, freyð­andi bjór. Hann hressir, bætir og kætir. Mikið hlakka ég til að mega aftur fá mér einn góðan eftir þessa með­göngu,“ segir hún full til­hlökk­unar.

„Það má eig­in­lega segja að ég búi yfir þeim ein­staka hæfi­leika að hafa skelfi­lega miklar áhyggjur.“

Hvaða fræga ein­stak­ling, lífs eða lið­inn, í mann­kyns­sög­unni mynd­irðu vilja bjóða í kaffi, af hverju og um hvað mynd­irðu vilja tala við við­kom­andi? „Ég væri ekk­ert á móti því að spjalla við Mozart, spyrja hann út í óper­urnar og hlut­verkin sem ég hef unnið í og er að vinna í, til að vita eftir hverju hann er að sækj­ast. Svo myndi ég plata hann upp í stofu til að leika almenni­lega undir hjá mér og gefa mér ráð. Eftir það byði ég upp á mat og drykk í von um að fá hann aftur í heim­sókn. Richard Strauss mætti alveg koma líka. Ég veit nú samt ekki hvort hann yrði jafn­hress og Mozart, það þyrfti bara að koma í ljós,“ segir hún og skellir upp úr.

Instagram eða Snapchat? „Instagram. Mér finnst gaman að skoða myndir og fá hug­myndir. Snappið er geggjað en end­ist ekki. Ég nota það meira til að skipt­ast á vid­eóum við vin­kon­urnar. Annars nota ég lítið.“

Hvaða tjá­merki (emoji) not­arðu oft­ast? „Hlát­ur­karl­inn, þessi sem grenjar úr hlátri.“

Áttu ein­hverja skemmti­lega sögu úr brans­anum svona í lokin? „Heyrðu já, það var fer­lega skemmti­leg eldri kona sem hélt reglu­lega partý í tengslum við upp­færsl­urnar í Metropolitan-óper­unni. Sagan segir að fyrir mörgum árum hafi þessi góða kona boðið einum ráða­mönnum óper­unnar í partý. Sá á að hafa verið haldin mik­illi ban­ana-fóbíu. Okkar kona vissi víst af því og gerði sér lítið fyrir og tók á móti greyið mann­inum í ban­ana­bún­ingi,“ segir Dísella og skellir upp úr. „Ég sel þetta samt ekki dýrar en ég keypti það!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur