Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Krabbameinsfélagið í ímyndarkreppu: Auglýsir eftir eldhuga

Krabbameinsfélagið í ímyndarkreppu: Auglýsir eftir eldhuga
Félagið leitar nú að nýjum kynn­ing­ar­full­trúa. Mynd / Skjáskot RÚV

„Langar þig að finna nýjar leiðir til að takast á við nýjar áskor­anir?,“ segir í aug­lýs­ingu Krabbba­meins­fé­lags Ísland sem leitar nú eftir nýjum kynn­ing­ar­full­trúa félags­ins. Starfið er sagt mjög spenn­andi og fjöl­breytt.

Krabba­meins­fé­lagið lýsir eftir hæfi­leik­a­ríkum eld­huga til að stýra og vinna að kynn­ing­ar­málum félags­ins í öfl­ugu teymi sér­fræð­inga við fræðslu, fjár­öflun og miðlun af öllu tagi. Starfið er mjög spenn­andi og fjöl­breytt og hverf­ist í kringum mark­mið félags­ins og aðild­ar­fé­laga þess, sem eru að fækka þeim sem fá krabba­mein, draga úr dauðs­föllum af völdum krabba­meina og bæta lífs­gæði þeirra sem fá sjúk­dóm­inn og aðstand­enda þeirra.

Grunur leikur á að mis­tök við grein­ingu krabba­meins­sýna hjá Krabba­meins­fé­lag­inu nái aftur til árs­ins 2013. Málum tveggja kvenna sem nú eru látnar af völdum leg­hálskrabba­meins verður vísað til emb­ætti land­læknis. Það kemur því sjálf­sagt í hlut nýs kynn­ing­ar­full­trúa að standa meðal ann­ars fyrir svörum vegna mis­taka félags­ins síð­ast­liðin ár.

Sævar Þór Jónsson lög­maður er með fimm mál sem tengj­ast skimunum á sínu borði en alls hafa honum borist um 20 fyr­ir­spurnir vegna slíkra mála. Vís­bend­ingar eru um að mis­tök hafi verið gerð við grein­ingu sýna hjá Krabba­meins­fé­lag­inu í mörg ár. Eitt mál­anna sem Sævar Þór vinnur að varðar konu, sem nú er látin, er fór í skimun árið 2013 og var ekki tekin til nán­ari skoð­unar þrátt fyrir að til­efni hafi verið til þess. Konan fór í skimun árið 2013 og lést 2017. Þá er lög­mað­ur­inn einnig með mál konu sem fór í skimun árið 2016 og er einnig látin af völdum krabba­meins.

Krabba­meins­fé­lagið end­ur­skoðar nú sýni frá þús­undum kvenna. Mistök i krabba­meins­skimun komust í hámæli eftir að kona greind­ist með krabba­mein þrátt f yrir að hafa farið í leg­háls­skimun árið 2018 og í þeirri skimun kom ekk­ert athuga­vert fram. Krabba­meins­fé­lagið hefur við­ur­kennt mis­tök sín í mál­inu og nú er trygg­inga­fé­lag þess að meta skaða­bætur vegna mis­tak­anna.

Í starfs­lýs­ingu Krabba­meins­fé­lags­ins er óskað eftir ein­stak­lingi sem hefur til dæmis reynslu af kynn­ing­ar­málum, skrifum frétta, notk­un sam­fé­lags­miðla og sam­skipt­um við fjöl­miðla. Ef þú vilt sækja um starfs sem kynn­ing­ar­full­trúi Krabba­meins­fé­lags­ins getur þú kynnt þér málið betur hér eða sent tölvu­póst á net­fangið [email protected]. Umsókn­ar­frestur er til 16. sept­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ