Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mistök í greiningu ná mögulega mörg ár aftur í tímann – Tvær konur látnar

Mistök í greiningu ná mögulega mörg ár aftur í tímann – Tvær konur látnar
Krabba­meins­fé­lag Íslands. Mynd / Krabb.is

Grunur leikur á að mis­tök við grein­ingu krabba­meins­sýna hjá Krabba­meins­fé­lag­inu nái aftur til árs­ins 2013. Málum tveggja kvenna sem nú eru látnar af völdum leg­hálskrabba­meins verður vísað til emb­ætti land­læknis.

Sævar Þór Jónsson lög­maður er með fimm mál sem tengj­ast skimunum á sínu borði en alls hafa honum borist um 20 fyr­ir­spurnir vegna slíkra mála. Vís­bend­ingar eru um að mis­tök hafi verið gerð við grein­ingu sýna hjá Krabba­meins­fé­lag­inu í mörg ár. Eitt mál­anna sem Sævar Þór vinnur að varðar konu, sem nú er látin, er fór í skimun árið 2013 og var ekki tekin til nán­ari skoð­unar þrátt fyrir að til­efni hafi verið til þess. Konan fór í skimun árið 2013 og lést 2017. Þá er lög­mað­ur­inn einnig með mál konu sem fór í skimun árið 2016 og er einnig látin af völdum krabba­meins.

„Það er auð­vitað mjög sorg­legt að vita til þess að konur i blóma lífs­ins hafi fallið frá, hugs­an­lega vegna mis­taka. Af þessum fimm málum eru þrjár konur látnar. Ein er alvar­lega veik og önnur er í með­ferð,“ sagði Sævar Þór í sam­tali við RÚV.

Sökin viðurkennd

Krabba­meins­fé­lagið end­ur­skoðar nú sýni frá þús­undum kvenna. Mistök i krabba­meins­skimun komust í hámæli eftir að kona greind­ist með krabba­mein þrátt f yrir að hafa farið í leg­háls­skimun árið 2018 og í þeirri skimun kom ekk­ert athuga­vert fram. Krabba­meins­fé­lagið hefur við­ur­kennt mis­tök sín í mál­inu og nú er trygg­inga­fé­lag þess að meta skaða­bætur vegna mis­tak­anna.

„Það hefur  verið við­ur­kennt af hendi Krabba­meins­fé­lags­ins að þar hafi átt sér stað mis­tök. Og þar af leið­andi er þetta borð­leggj­andi. Við erum búin að setja okkur í sam­band við trygg­inga­fé­lag Krabba­meins­fé­lags­ins og það er verið að vinna það mál í sam­starfi við Krabba­meins­fé­lagið og trygg­inga­fé­lag þess“ sagði Sævar Þór.

Margvaraði við

„Ég margvar­aði við þessu og það er hrika­lega sorg­legt að þetta kosti alvar­leg veik­indi og manns­líf,“ sagði Kristján Oddsson, kven­sjúk­dóma­læknir og fyrr­ver­andi for­stjóri Krabba­meins­fé­lags Íslands, sem telur sig hafa verið rek­inn fyrir að vara við þeim alvar­legu afleið­ingum sem fyr­ir­komu­lag krabba­meins­skimunar kvenna gæti haft í för með sér. Hann getur alls ekki glaðst yfir að hafa haft rétt fyrir sér.

„Ég er afskap­lega sorg­mæddur yfir örlögum sem hefðu kannski ekki þurft að verða. Ég man nú varla hversu mörg minn­is­blöðin voru sem ég sendi og var­aði við. Ég benti á að starf­semin gengi gegn hags­munum kvenna og gætu haft alvar­legar afleið­ingar fyrir líf og heilsu þeirra. Ég var rek­inn þremur vikum síðar en því miður hefur þetta allt saman raun­gerst,“ segir Kristján.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina