Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kristján rekinn frá Krabbameinsfélaginu – Margvaraði við lélegri skimun – „Hræðilegt að þetta kosti mannslíf“

Kristján rekinn frá Krabbameinsfélaginu – Margvaraði við lélegri skimun – „Hræðilegt að þetta kosti mannslíf“
Kristján Oddsson var rek­inn frá Krabba­meins­fé­lag­inu vegna fag­legs ágrein­ings. Mynd / skjá­skot RÚV

„Ég margvar­aði við þessu og það er hrika­lega sorg­legt að þetta kosti alvar­leg veik­indi og manns­líf,“ segir Kristján Oddsson, kven­sjúk­dóma­læknir og fyrr­ver­andi for­stjóri Krabba­meins­fé­lags Íslands, sem telur sig hafa verið rek­inn fyrir að vara við þeim alvar­legu afleið­ingum sem fyr­ir­komu­lag krabba­meins­skimunar kvenna gæti haft í för með sér. Hann getur alls ekki glaðst yfir að hafa haft rétt fyrir sér.

„Ég er afskap­lega sorg­mæddur yfir örlögum sem hefðu kannski ekki þurft að verða. Ég man nú varla hversu mörg minn­is­blöðin voru sem ég sendi og var­aði við. Ég benti á að starf­semin gengi gegn hags­munum kvenna og gætu haft alvar­legar afleið­ingar fyrir líf og heilsu þeirra. Ég var rek­inn þremur vikum síðar en því miður hefur þetta allt saman raun­gerst,“ segir Kristján.

Líkt og fram hefur komið hefur skjól­stæð­ingur Krabba­meins­fé­lags­ins verið greindur með leg­háls­krabba­mein þrátt fyrir að hafa fengið nei­kvæða niður­stöðu árið 2018 í leg­háls­skimun hjá Leitar­stöð Krabba­meins­fé­lags­ins. Leg­háls­sýnin voru ein­fald­lega rang­lega greind og lög­maður kon­unnar hefur lýst því yfir að hann hafi á borði sínu önnur sam­bæri­leg mál.

Krabba­meins­fé­lagið hefur beðist inni­legrar afsök­unar og skýrt á þann veg að um mann­leg mis­tök hafi verið að ræða. Mistök af hálfu eins starfs­manns sem hafi glímt við veik­indi og sé nú hættur. Félagið hefur tekið til end­ur­skoð­unar þús­undir sýna sem við­kom­andi starfs­maður hafði í hönd­unum til grein­ingar og af þeim hafa 45 konur verið kall­aðar aftur inn til frek­ari skoð­unar.

Og það var ekki bara ég sem var­aði við þessu heldur fleiri.

Kristján ítrekar að hann hafi margvarað við þess­ari brota­löm í starf­semi Krabba­meins­fé­lags­ins þegar kemur að skimunum fyrir krabba­meini. „Ég benti marg­ít­rekað á að þetta gengi ekki upp og það er ástæðan fyrir því að ég var rek­inn. Þar var fag­legur ágrein­ingur á ferð­inni, það voru hörð data sem sögðu okkur það að þetta fyr­ir­komu­lag gat ekki haldið áfram. Og það var ekki bara ég sem var­aði við þessu heldur fleiri. Yfir­stjórnin vissi af þessu. Hún fékk frá mér mörg minn­is­blöð þar sem ég var­aði við. Ég var sístemat­ískt búinn að vara við ferli og skipu­lagi skimunar,“ segir Kristján.

„Eftir á að hyggja hefðum við senni­lega átt að grípa til aðgerða fyrr,“ sagði Ágúst Ingi Ágústs­son, yfir­læknir og sviðs­stjóri leit­ar­sviðs Krabba­meins­fé­lags Íslands, í Kast­ljós­við­tali, og stað­festi þar að sex þús­und sýni starfs­manns­ins umrædda hafi verið end­ur­skoðuð. Yfir­lækn­ir­inn segir að áætlað sé að 100 til 150 konur þurfi að koma aftur í skimum.

Siðleysi eina orðið

Álf­heiður Inga­dóttir, fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, sakar for­svars­menn Krabba­meins­fé­lags Íslands um sið­leysi í færslu sinni á Facebook. „Þetta er eina orðið sem ég á yfir fram­göngu for­svars­manna Krabba­meins­fé­lags Íslands. Í stað þess að gang­ast við ábyrgð sinni á þeirri stað­reynd að allt að 150 konur hafi fengið rangar nið­ur­stöður á Leit­ar­stöð­inni, er sök varpað á einn fyrr­ver­andi starfs­mann. Og það vegna veik­inda hans,” segir Álf­heiður.

Álf­heiður seg­ist vera annt um Krabba­meins­fé­lagið enda hafi hún bæði gengið þar i gegnum krabba­meins­með­ferð og þá koma faðir hennar að stofnun félags­ins. Henni finnst ömur­legt að stjórn­endur hafi skellt skuld­inni á einn starfs­mann. „Það urðu hörmu­leg mis­tök. Það er hægt að kalla þau „mann­leg mis­tök sem alltaf geta orðið”. En það er mikil ein­földun. Ég get ekki orða bund­ist. Nú er ég lömuð og ösku­reið yfir aum­ingja­dómnum sem birt­ist í katt­ar­þvotti stjórn­enda KÍ. Og get ekki fyr­ir­gefið hversu grátt þeir hafa leikið hug­sjónir þeirra sem byggðu upp þetta merka félag.”

Aðeins helmings öryggi

Kristján bendir á að það geti verið erfitt að koma algjör­lega í veg fyrir mann­leg mis­tök. Hann segir mik­il­vægt að fólk átti sig á því að næmi þeirrar aðferðar sem notuð hafi verið sé aðeins um 50 pró­sent. „Þetta er skoðað af fólki og aðferðin greinir raun­veru­legan sjúk­dóm í aðeins 50 pró­sent til­vika. Ég benti ítrekað á að við þyrftum að fara með skimun­ina í vel ígrund­aðan og skipu­legan far­veg útfrá evr­ópskum leið­bein­ingum. Sem betur fer er þetta að kom­ast í þann far­veg núna en þetta hefur félagið aldrei viljað heyra vegna fjár­hags­legra hags­muna af því að reka þessa skimun,“ segir Kristján.

Eftir að hafa starfað sem for­stjóri hjá Krabba­meins­fé­lag­inu full­yrðir Kristján að söfn­un­arfé frá almenn­ingi og rík­is­fjár­munir renni ekki til rann­sókn­ar­starfa félags­ins heldur alfarið í óháða starf­semi. „Þarna fer fram gríð­ar­leg fjár­öflun og þennan tíma sem ég er þarna inni kemst ég að því hvernig hlut­irnir eru. Það er raun­veru­lega beitt blekk­ingum og ég leyfi mér að segja þetta svika­myllu. Því miður og þetta er hrika­lega sorg­legt allt saman,“ segir Kristján.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag