Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fjöllyndi faðirinn

Einn vetur fyrir mörgum árum kenndi ég í litlum fram­halds­skóla úti á landi. Mér fannst kennslan skemmti­leg og lík­aði vel á staðnum. Margir nem­endur mínir voru ein­stak­lega skemmti­legir en einn þeirra átti ótrú­lega sögu, sorg­lega en jafn­framt svo­lítið fyndna.

Ég var nýhætt með sam­býl­is­manni mínum til fjög­urra ára. Ég var sátt við skiln­að­inn en hann ekki. Hann reyndi mikið að fá mig til að taka saman við sig aftur en ég stóð föst á mínu. Þá tók hann upp á því að leggja mig í hálf­gert ein­elti en þó án þess að bein­línis nokkur tæki eftir því. Hann for­vitn­að­ist greini­lega um ferðir mínar og hvar sem ég kom í heim­sóknir til vina og vanda­manna fékk ég iðu­lega að heyra: „Hann Jonni var hérna og er nýfar­inn! Mikið er hann nú alltaf ljúfur og skemmti­legur, er eng­inn mögu­leiki á því að þið byrjið saman aftur?“ Ég var satt að segja orðin mjög pirruð á þessu og fljót­lega fór hann að rekast „alveg óvænt“ á mig á förnum vegi. Við þekkt­umst orðið það vel að ég átt­aði mig alveg á því að þessi leik­ræna þján­ing hans átti að fá mig til að vor­kenna honum en það virk­aði alveg öfugt!

Einn dag­inn fékk ég nóg, nóg af Jonna, nóg af Reykja­vík, vinn­unni minni og bara öllu! Ég sá aug­lýs­ingu í dag­blaði þar sem aug­lýst var eftir kenn­ara í fram­halds­skóla úti á landi. Ég er kenn­ari að mennt en hafði gegnt skrif­stofu­starfi um tveggja ára skeið. Mig lang­aði að fara að kenna aftur og fann þarna leið til að slá tvær flugur í einu höggi. Með fín með­mæli í fartesk­inu flaug ég inn í starfið og var alsæl með það.

Sorg­mæddur nem­andi
Ég kenndi af krafti og fylgd­ist náið með nem­endum mínum fóta sig, að vísu mis­vel, á náms­braut­inni. Einn nem­and­inn vakti þó alveg sér­stak­lega athygli mína. Sá hét Kjartan, var afburða­klár, metn­að­ar­gjarn og frum­legur í til­svörum. Mér þótti mikið til hans koma og alltaf var hann lang­hæstur á próf­unum hjá mér. Þegar líða tók að vori fór ég þó að merkja að Kjartan var ansi daufur í tímum, lagði lítið til mál­anna, sem hann var ekki vanur, og ein­kunnir hans snar­lækk­uðu.

„Nei, þú skilur þetta ekki. Þegar ég sagði pabba frá trú­lof­un­inni og hver sú heittelskaða væri skip­aði hann mér að slíta trú­lof­un­inni eins og skot.“

Að vonum hafði ég nokkrar áhyggjur af þessum breyt­ingum, bæði á fram­komu hans og náms­ár­angri. Ég ákvað því að kalla Kjartan til fundar við mig í lok eins skóla­dags­ins. Við sett­umst inn á kenn­ara­stofu sem var mann­laus þennan eft­ir­mið­dag og ég tók til við að spyrja hann hverju þessi umskipti sættu. Þá greindi aum­ingja pilt­ur­inn mér frá því að hann hefði nýslitið trú­lofun sinni og ungrar stúlku í pláss­inu. Hann væri ger­sam­lega væng­brot­inn og gæti því ekki ein­beitt sér að neinu. Þar sem ég sat þarna gegnt Kjartani og horfði á sorg­ar­svip­inn á and­liti hans reyndi ég að slá á létta strengi, minnti hann á ungan aldur og það að ástin sækti hann án efa aftur heim áður en langt um liði.

Þá horfði fyr­ir­mynd­ar­nem­and­inn allt í einu beint í augun á mér og sagði strangur á svip: „Nei, þú skilur þetta ekki. Þegar ég sagði pabba frá trú­lof­un­inni og hver sú heittelskaða væri skip­aði hann mér að slíta trú­lof­un­inni eins og skot. Sú sem ég hafði trú­lofast væri nefni­lega hálf­systir mín en ég mætti ekki segja mömmu frá því.“ Svo stundi Kjartan þungan. Sem von var varð mér svara­fátt.

Ný kærasta
Skólanum var slitið um vorið og þegar líða tók á sum­arið rakst ég á Kjartan einn dag­inn þar sem hann kom gang­andi út úr einu ísbúð bæj­ar­ins með unga fal­lega stúlku sér við hlið. Þau voru bæði bros­andi út að eyrum. Ég þótt­ist skilja að tím­inn hefði grætt sárin í ungu hjart­anu og hann væri ást­fang­inn á nýjan leik. Þegar kennslan hófst aftur um haustið var Kjartan orð­inn hann sjálfur og varð mál­efna­legur í kennslu­stundum að nýju. Það varði þó ekki lengi. Allt fór á sama veg þegar önnin var aðeins hálfnuð.

Kjartan varð þegj­anda­legur, þungur í skapi og ein­kunnir tóku að snar­lækka. Enn boð­aði ég hann því á fund til mín og viti menn! Hið sama var uppi ten­ingnum. Í ljós kom að stúlkan sem hann hafði kynnst þá um sum­arið og hafði, eins og hin fyrri, alist upp í bænum, var jafn­framt hálf­systir hans. Mig tók nú að gruna að drengstaul­inn væri ein­fald­lega að gera gys að mér en ákvað þó í fram­hald­inu að ræða málin við for­eldra hans til að vera viss í minni sök. Annað væri óábyrgt af mér, enda þótt vera kynni að um trún­að­ar­brest væri að ræða á milli mín og Kjartans. Andleg heilsa hans var í húfi og náms­ár­angur, auk þess sem ég vildi vita hvort drengnum yrði fyr­ir­munað fyrir lífs­tíð að bind­ast nokk­urri stúlku úr pláss­inu, sökum fjöl­lyndis föð­ur­ins.

Óvænt útspil móður
For­eldrar Kjartans mættu til mín á skrif­stofu skól­ans strax dag­inn eftir. Ég var ansi hreint taugatrekkt þegar ég ætl­aði að fara að bera upp erindið og byrj­aði því á því að gera slakar ein­kunnir Kjartans að umtals­efni ásamt breyttu hátt­erni hans í kennslu­stundum. Síðan spurði ég hvort heim­il­is­að­stæður hefðu eitt­hvað breyst, ein­hver áföll orðið í fjöl­skyld­unni eða annað sem þeim dytti í hug að gæti valdið þessum stakka­skiptum á drengnum. Þau könn­uð­ust ekki við að hagir fjöl­skyld­unnar hefðu eitt­hvað breyst. Ég þagði þunnu hljóði en horfði stíft á föð­ur­inn.

„Ég sá nú fram á að þurfa að stilla til friðar á milli þeirra hjóna og jafn­vel stöðva stymp­ingar.“

Allt í einu tók pabb­inn til máls, dálítið óstyrkur í rödd­inni og hræddur á svip. Kjartan hefði jú leitað tvisvar til sín vegna sitt­hvorrar stúlkunnar sem hann hefði kynnst í bænum og átt í ást­ar­sam­bandi við. Sak­bitnar játn­ingar um blóð­tengsl stúlkn­anna við son­inn, fram­hjá­höld og hve hann iðr­að­ist og allt það fylgdu í kjöl­farið.

Ég sá nú fram á að þurfa að stilla til friðar á milli þeirra hjóna og jafn­vel stöðva stymp­ingar, enda hefði ég sann­ar­lega gengið í skrokk á unnusta mínum, ef ég hefði átt hann til, hefði hann játað annað eins fyrir mér. En öðru nær. Móðirin leit fyrst á mig og síðan á mann sinn og spurði skömmustu­leg hverjar þessar stúlkur væru sem hefðu átt vin­gott við Kjartan. Hann nefndi ein­hver nöfn og hún þagði um stund. Síðan sagði hún allt í einu ofur­blíðri röddu: „Elskan mín, við getum alveg sagt honum Kjartani að hann megi trú­lofast annarri hvorri því þú ert ekki faðir hans. Raun­veru­legur pabbi hans er að sunnan og ég hef ætlað að játa þetta fyrir þér í öll þessi ár.“

Hægt er að hlusta á Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Storytel. Guðrún Óla Jóns­dóttir, Gógó, blaða­maður hjá Vikunni, les upp lífs­reynslu­sögur sem sendar hafa verið inn í blaðið í gegnum tíð­ina og sög­urnar eru jafn ólíkar og þær eru margar. Ekki missa af því þegar nýr þáttur af Lífs­reynslu­sögum fer í loftið í viku hverri – fylgstu með okkur á Facebook. https://www.facebook.com/lifsreynslusaga/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur