Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

„Þarna klipptist líf mitt í sundur á sekúndubroti“

Hún er þekkt sem for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands og brennur fyrir bar­áttu­málum öryrkja. Eftir að hafa lam­ast í hestaslysi fyrir rúmum 13 árum og tók við nýr kafli með ótelj­andi áskor­unum.  Ekkert varð eins og áður. Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir er í við­tali í nýj­ustu Vikunni.

„Slysið sem breytti lífi mínu varð á sól­ríkum vinnu­degi í lok apríl árið 2007, en þá var ég nýorðin fer­tug. Ég var að vinna í verk­efni sem ég þurfti að klára en ég ætl­aði að hjálpa þáver­andi  sam­býl­is­manni mínum að reka hrossin okkar í sum­ar­haga í Hegra­nes­inu en ég bjó og vann á Sauð­ár­króki. Ég skildi því allt eftir á borð­inu mínu og hafði tölv­una opna því ég ætl­aði að koma aftur. Þetta var um fimm­leytið og ég ætl­aði að koma aftur eftir tvo klukku­tíma.  Til að gera langa sögu stutta þá kom ég til baka eftir 6 mán­uði og þá í hjóla­stól.“

„Ég lam­að­ist á sek­úndu­broti, ég fann ekki fyrir neinu en sá fæt­urna og fann að ég gat ekki hreyft þær, sem var mjög und­ar­leg upp­lifun.“

Þannig var að þegar þau voru komin með hrossin yfir í nes og áttu stutt eftir, tryllt­ist merin sem Þuríður sat á. „Ég ákvað að losa ístöðin til að ég drægist ekki með hross­inu ef ég myndi detta af baki. Merin stökk hins vegar út í mýri með þeim afleið­ingum að ég kastað­ist fram fyrir hana og lenti á bak­inu ofan á steinnibbu. Ég lam­að­ist á sek­úndu­broti, ég fann ekki fyrir neinu en sá fæt­urna og fann að ég gat ekki hreyft þær, sem var mjög und­ar­leg upp­lifun. Síðan tók við ferð í sjúkra­bíl og sjúkra­flug­vél suður á Borg­ar­spít­al­ann þar sem ég fór í aðgerð. Þrír hryggjar­liðir höfðu brotnað auk tveggja sem höfðu laskast og mænan marist.“

Allt breyttist

Að lok­inni dvöl á Borg­ar­spít­al­anum fór Þuríður í end­ur­hæf­ingu á Grensás. „Það var ekki auð­veldur tími, slys sem valda lömun breyta lífi fólks. Ekkert verður eins og áður. Þarna klippt­ist líf mitt í sundur á sek­úndu­broti, nýr kafli með allt öðrum áskor­unum og allt öðrum við­fangs­efnum tók við. Að takast á við dag­legt líf í hjóla­stól, að vera t.d ekki lengur hluti af hópnum þegar kemur að hvers kyns sporti eða félags­skap. Að kom­ast ekki í búðir eða bak­arí þar sem hindr­anir í umhverf­inu settu manni stöðugt skorður. Allt var vesen, alveg frá því að kom­ast fram úr að morgni og til þess að kom­ast upp í aftur að kvöldi, að skreppa í snögga sturtu tók klukku­tíma.

„Sem dæmi má nefna að ég, eins og margar konur, gerði stór­hrein­gern­ingu heima hjá mér fyrir hver jól, þreif glugga, eld­hús­s­kápa og svo fram­vegis. Það gat ég ekki lengur gert, ég skrapp heldur ekki í þrek­tíma eða út að skokka, hvað þá að ég færi í hest­húsin.“

Hlut­verkið að vera for­eldri, maki, systir, dóttir, frænka og vin­kona breytt­ist. Það hvað ég gat gert og hvernig, að taka þátt í alls konar verk­efnum dag­legs lífs var mikil áskorun og oft erfitt að finna lausnir. Ég þurfti að æfa þol­in­mæð­ina tals­vert og að sætta mig við að sumt gat ég bara ekki lengur. Við annað varð ég að beita ann­ars­konar nálgun. Sem dæmi má nefna að ég, eins og margar konur, gerði stór­hrein­gern­ingu heima hjá mér fyrir hver jól, þreif glugga, eld­hús­s­kápa og svo fram­vegis. Það gat ég ekki lengur gert, ég skrapp heldur ekki í þrek­tíma eða út að skokka, hvað þá að ég færi í hest­húsin. Þetta var einnig mikil áskorun fyrir krakk­ana mína, fjöl­skyld­una og vini að læra að umgang­ast mig í nýrri stöðu. Það vant­aði stuðn­ing frá fag­að­ilum til mín og fjöl­skyld­unnar og vantar enn í kerfið okkar. Þegar fjöl­skyldu­með­limur lendir í slysi eða veik­indum veldur það álagi á fjöl­skyld­una. Dæmi eru um að aðstand­endur verði sjálfir öryrkjar vegna örmögn­unar og/eða stoð­kerf­is­vanda. Það sem hélt mér gang­andi eftir að ég kom heim var að ég gat farið aftur í vinn­una, en ég var þá fram­kvæmda­stjóri Nýprents. Ég var því mjög lánsöm, að eiga aft­ur­kvæmt í starf, það voru for­rétt­indi, en ekki alvana­legt,“ segir Þuríður meðal ann­ars í mögn­uðu við­tali við Vikuna.

Myndir: Hákon Davíð Björns­son

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun >

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur