Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Tómas minnist móður sinnar sem lést á Landakoti: „Guðbjörg var einfaldlega góð kona“

Tómas minnist móður sinnar sem lést á Landakoti: „Guðbjörg var einfaldlega góð kona“

Tómas Guð­bjarts­son skurð­læknir minn­ist móður sinnar, Guð­björgar Tóm­as­dóttur kenn­ara, sem lést á Landa­koti með hjarta­hlýjum minn­ing­ar­orðum. Hún verður jarð­sungin í dag frá Dóm­kirkj­unni í Reykja­vík.

Guðbjörg fædd­ist í Reykja­vík 7. apríl 1942 og lést á Landa­koti 30. októ­ber síð­ast­lið­inn. Á jóla­dag 1963 gift­ist Guðbjörg Guð­bjarti Krist­ó­fers­syni kenn­ara og bjuggu þau alla tíð á Grenimel í Reykja­vík. Þau hjónin eign­uð­ust þrjú börn, þau Tómas lækni, Hákon, doktor í raf­magns­verk­fræði og Ingi­björgu lög­mann.

Guðbjörg lauk prófi frá Kvenna­skól­anum í Reykja­vík. Hún lauk síðan almennu­pró­kenn­ara­prófi frá Kenn­ara­skól­anum og BA-prófi í dönsku og ensku frá Háskóla Íslands. Guðbjörg kenndi í Haga­skóla frá 1963 til 1977 og síðan í Versl­un­ar­skóla Íslands þar sem hún var við störf til 2005. Auk þess var Guðbjörg próf­dóm­ari í dönsku í fjölda ára bæði við grunn­skóla­próf og við stúd­ents­próf við Mennta­skól­ann í Reykja­vík og sat í rit­nefnd Mál­fríðar, tíma­rits sam­taka tungu­mála­kenn­ara. Eftir far­sælan feril sem kenn­ari vann Guðbjörg við afgreiðslu og mót­töku gesta í Lista­safni Íslands.

„Lífs­speki hennar var ein­föld; að sjá það besta og jákvæða í fari hverrar mann­eskju og aldrei heyrði ég hana hall­mæla neinum eða dæma fólk“

Tómas minn­ist móður sinnar með fal­legum orðum í minn­ing­ar­grein í Morg­un­blað­inu í dag. „Móðir mín varð hvíld­inni fegin þegar hún skildi við á Landa­koti eftir erf­iða tveggja ára bar­áttu við snú­inn sjúk­dóm. Sem betur fer hafði hún fram að veik­ind­unum verið heilsu­hraust og átt góða og far­sæla ævi, lengst af með föður minn, Guðbjart Krist­ó­fers­son, sér við hlið. Þau reynd­ust sam­stíga í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur og bjuggu okkur systkin­unum kær­leiks­ríkt heim­ili á Greni­melnum í sann­köll­uðu fjöl­skyldu­húsi. Samtals bjuggum við mamma undir sama þaki í 44 ár en for­senda þess var hversu náin við vorum og góðir vinir,“ segir Tómas.

Tómas minn­ist móður sinnar með fal­legum minn­ing­ar­orðum.

Tómas segir það hafa verið for­rétt­indi að alast upp á heim­ili tveggja kenn­ara þar sem fróð­leikur var í hávegum hafður og for­eldr­arnir báðir hvetj­andi. „Þetta átti ekki síst við um tungu­mál og íslensku sem lágu svo vel fyrir mömmu, og hún sífellt að brýna fyrir okkur systk­inum vandað mál. Hún hafði gaman af lestri góðra bóka en var einnig mjög list­hneigð, sér­stak­lega þegar kom að klass­ískri tón­list og óperum. Eins og þeir sem heim­sótt hafa heim­ili for­eldra minna geta borið vott um, þá var hún mik­ill fag­ur­keri og hafði unun af fal­legri hönnun. Auk þess var hún ávallt vel klædd og reisn yfir fasi hennar. Átti hún til að segja við mig: „Tommi minn, fátt er betra fyrir sál­ar­tetrið en að kaupa sér fal­lega flík“ – heil­ræði sem ég hef senni­lega á stundum ofnotað,“ segir Tómas.

Tómas er viss um að þús­undir íslenskra nem­enda geti vottað til um þann metnað sem Guðbjörg móðir sín lagði í starf sitt sem kenn­ari. „Náði hún í störfum sínum sem kenn­ari að rétta öðrum hjálp­ar­hönd – en utan vinnu­tíma var hún einnig óþreyt­andi að sinna ætt­ingjum og vinum sem áttu um sárt að binda og alltaf úrræða­góð. Lífs­speki hennar var ein­föld; að sjá það besta og jákvæða í fari hverrar mann­eskju og aldrei heyrði ég hana hall­mæla neinum eða dæma fólk, eða eins og æsku­vinur minn komst að orði: „Guðbjörg var ein­fald­lega góð kona“ – sem eru eft­ir­sókn­ar­verð eft­ir­mæli. Hvíl í friði elsku mamma,“ segir Tómas.

Útför Guð­bjargar Tóm­as­dóttur fer fram frá Dóm­kirkj­unni í Reykja­vík í dag kl. 13. Vegna aðstæðna verða aðeins nán­ustu aðstand­endur við­staddir. Athöfn­inni verður streymt á hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Hann mætti ekki við þingfestingu málsins
Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ