Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Nýtt ár, ný markmið

Í upp­hafi árs langar marga að huga betur að heils­unni og kannski sner­ist ára­móta­heitið einmitt um það. Hvort sem mark­miðið er að bæta lík­am­legt form eða taka mark­viss skref í átt að ham­ingju­rík­ara lífi er gott að fara ekki of geyst af stað. Hugsaðu um lífs­stíls­breyt­ingu sem lang­ferð og þá ertu lík­legri til að ná mark­miðum þínum. Það þarf heldur ekki mikið til, nokkrar smáar breyt­ingar geta gert krafta­verk.

Mataræði

Ekki hætta að borða, það er með því versta sem þú getur gert lík­ama þínum. Borðaðu helst oft á dag, t.d. fimm sinnum, hollan mat í hæfi­lega smáum skömmtum. Þannig helst brennslan virk.

Grænt te er sagt stuðla að betri heilsu á margan hátt, hvort sem það er tekið í hylkja- eða drykkj­ar­formi. Talið er að það geti dregið úr líkum á krabba­meini, hjarta­á­föllum, heila­blóð­föllum, tann­holds­sjúk­dómum og tann­skemmdum auk þess að gefa mikla orku, vera vatns­los­andi og hjálpa til við hreinsun lík­am­ans.

Borðaðu minna af sæl­gæti, gosi, kökum o.s.frv. Þú þarft ekk­ert að hætta því en settu þér reglur. Nammidagar, eins og börnin eru með, er ágæt hug­mynd. Ef þú „svindlar“ munu him­inn og jörð samt ekki far­ast, þú heldur bara áfram á beinu braut­inni eins og ekk­ert hafi í skorist.

Ekki borða seint á kvöldin.

Ekki hunsa að borða ávexti og græn­meti. Þeir eru hollir og nær­ing­ar­ríkir og inni­halda fáar hita­ein­ingar.

Gefðu lík­ama þínum nóg af vatni og drekktu u.þ.b. tvo lítra af því á dag. Vatn hreinsar lík­amann og hjálpar til við flutn­ing nauð­syn­legra efna um hann auk þess að vera frísk­andi og slá á hung­ur­til­finn­ingu.

Þegar þú kemur svangur/svöng heim skaltu fá þér ávöxt, græn­meti, harð­fisk eða hnetur frekar en að æða beint í snakkið eða kexið. Þetta eru líka til­valdir bitar á milli mála ef svengd lætur á sér kræla.

Ekki fá þér bara brauð­sneið og ávaxta­safa í hádeg­inu. Kolvetni veita skamm­vinna orku en prótín end­ist betur yfir dag­inn.

Ef þú ákveður að borða óholl­ustu … njóttu þess þá!

Hreyfing

Finndu þér skemmti­lega hreyf­ingu og ekki hræð­ast að prófa þig áfram. Þú þarft ekki að vera best(ur) til að geta fund­ist eitt­hvað skemmti­legt og það er aldrei of seint að byrja á ein­hverju nýju. Enginn getur allt en allir geta eitt­hvað.

Ef þér hentar ekki að fara í lík­ams­rækt­ar­stöð má gera ýmis­legt annað. Nýttu litlu tæki­færin dag­lega til að hreyfa þig og stund­aðu göngur, sund eða hjól­reiðar. Þú getur líka fengið þér æfinga­mynd­band eða hlustað á morg­un­leik­fim­ina í útvarp­inu og æft heima í stofu.

Drekktu vatn á meðan á æfingu stendur, þó ekki meira en lík­am­inn biður um, þ.e. ekki sturta því í þig. Vatn dregur úr hættu á vöðva­krampa og sina­drætti. Ekki hafa vatnið endi­lega ískalt.

Gott er:

… að vakna og fara að sofa á svip­uðum tíma alla daga. Þannig helst lík­ams­klukkan í jafn­vægi.

… að vera dug­leg(ur) að segja jákvæða hluti við sjálfa(n) sig; þeir síast inn og skila auknu sjálfs­trausti og vellíðan.

… að ná um átta klukku­stunda svefni allar nætur. Sumir þurfa reyndar minna og aðrir meira; finndu þinn tíma og reyndu að halda þig við hann.

… að skrifa heilsu­dag­bók. Skráðu hjá þér raun­hæf mark­mið og fylgstu með líðan þinni eftir því hvað þú borðar, hvernig þú sefur og hvernig þú hreyfir þig. Þannig lærir þú á lík­amann og veitir þér visst aðhald. Sniðugt er líka að skrifa niður áætluð verð­laun þegar vissu tak­marki er náð.

… að hafa mark­miða­setn­ingu þrepa­skipta. Ekki ákveða að missa 20 kíló eða lækka fitu­pró­sent­una um tíu pró­sent … settu fleiri og smærri mark­mið, þannig verður mun auð­veld­ara að ná þeim og hægt er að gleðj­ast yfir hverjum áfanga.

… að gefa sér tíma, helst dag­lega, til að slaka á. Það þarf ekki að vera merki­legra en að lesa nokkrar blað­síður í góðri bók, fara í bað í ró og næði eða í stuttan göngutúr. Gefðu þér tíma til að anda og hugsa.

… að sinna félags­legu tengsl­unum vel. Ræktaðu vin­átt­una og fjöl­skyldu­tengslin.

… fyrir marga að hafa æfinga­fé­laga í rækt­inni. Það veitir stuðn­ing og aðhald og minnkar líkur á að gef­ist sé upp. Svo er félags­skap­ur­inn auð­vitað skemmti­legur.

… að taka sig ekki of alvar­lega og hlæja oft og mikið!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur