Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Snyrtivörukaup karla minna feimnismál en áður

Snyrtivörukaup karla minna feimnismál en áður
Karin Krist­jana. Mynd / Aðsend

„Karlar eru allir að koma til þegar kemur að snyrti­vöru­notkun, en mættu vera óhrædd­ari við að víkka sjón­deild­ar­hring­inn,“ segir Karin Krist­jana Hindborg, stofn­andi og eig­andi versl­un­ar­innar Nola. Versl­unin býður upp á vand­aðar snyrti­vörur og opnar á næst­unni net­verslun fyrir karla, nolaman.is.

Lait Creme.

„Karlar í dag eru mun dug­legri að nota snyrti­vörur þótt enn séu ein­hverjir feimnir við það,“ segir Karin. „Það eru til dæmis þessir gall­hörðu „karl­menn“ sem segj­ast stoltir aldrei hafa notað neitt svona pjatt en standi enn í lapp­irnar. Eða þeir sem læð­ast í snyrti­vöru­deildir og lauma ein­hverju í körf­una og eru með til­búna afsökun þegar kemur að því að greiða, eins og að snyrti­vör­urnar séu fyrir kon­una.
Aðrir koma svo algjör­lega af fjöllum þegar við spyrjum hvort þeir noti húð­vörur, hafa ekki hug­mynd um af hverju þeir ættu að prófa þær en eru samt for­vitnir. Síðan eru það þeir sem eru „komnir á vagn­inn“ og finna og sjá ávinn­ing­inn af því að nota húð­vörur og eru algjör­lega ófeimnir – sem er frá­bært.“

Karin segir nokkrar ástæður valda því að karlar telji snyrti­vörur feimn­is­mál. „Ein ástæðan er bara almennt þekk­ing­ar­leysi. Mark­aðs­setn­ingu snyrti­vara er oft­ast beint að konum og þess vegna finnst kannski ein­hverjum að snyrti­vörur séu bara fyrir konur og það sé „kven­legt“ að nota þær, bara eitt­hvað óþarfa pjatt. Sem er auð­vitað mjög gam­al­dags og úreltur hugs­un­ar­háttur, sem er á und­an­haldi, og það getum við þakkað þeirri vit­und­ar­vakn­ingu sem hefur átt sér stað síð­ustu ár.“

Yngri karlar óhrædd­ari við nýj­ungar
Upp­li­f­irðu kyn­slóða­mun þegar kemur að snyrti­vöru­notkun? „Já, það er munur á kyn­slóðum. Yngri karlar eru mun opn­ari og mót­tæki­legri að prófa nýj­ungar. Þeir spyrja líka meira. Þeir eldri vilja frekar eitt­hvað eitt sem virkar og halda sig þá við það.“

Frá Skyn.

„Upp­á­halds­spurn­ingin mín! Jú, auð­vitað,“ segir Karin og hlær spurð hvort karlar þurfi jafn­mikið á snyrti­vörum að halda og konur. „Af hverju ættu karlar að snið­ganga stærsta líf­færið sitt frekar en konur? Þeir fá sömu húð­vanda­mál og við; exem, rós­roða, þurrk­bletti og fleira. Þeir fá líka húð­þurrk undir skegg­inu eða kláða og rakst­urs­bólur og sætta sig kannski bara við það því þeir vita ekki hvernig á að snúa sér.“

Öllum hollt og gott
Spurð hvað karlar ættu helst að ein­blína á þegar kemur að snyrti­vörum segir hún þá oft­ast spá í hluti eins og rak­sápu, raka­krem eða skeggol­íur. Þeir mættu hins vegar alveg víkka sjón­deild­ar­hring­inn.

Lait Creme.

„Valið ræðst auð­vitað af húð­gerð og í hverju þeir vilja vinna. Svo þarf að huga að hlutum eins og húð­vanda­málum og fæð­ing­ar­blettum og þar koma húð­læknar til sög­unnar. Fyrir utan það ættum við öll, óháð kyni, aldri eða húð­gerð, að nota húð­vörn (spf 30+) dag­lega.“

Karin segir að þótt snyrti­vöru­notkun sé kannski ekki beint innan þæg­ind­ara­mma allra karla geti áhug­inn verið fyrir hendi. „Þannig að við þurfum að vera dug­leg að hjálpa þeim og ætlum einmitt að opna net­verslun fyrir karl­menn, nolaman.is. Þar verða í boði vörur svip­aðar og við bjóðum upp á hjá nola.is en þetta verður ein­fald­ara í sniðum, öðru­vísi fræðsla og aðrar áherslur.“

Nánar á nola.is eða í verslun Nola, Ármúla 38 í Reykja­vík.

Nola í sam­starfi við Stúdíó Birtíng

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur