Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Mamma spillti sambandi okkar systra

Mamma spillti sambandi okkar systra

Við vorum bara tvær syst­urnar. Agnes þremur árum yngri en ég. Mamma hélt því fram að ég hefði verið afbrýð­isöm út í systur mína alveg frá því að hún fædd­ist. Ég vil hins vegar ekki kann­ast við að hafa nokkru sinni fundið fyrir öfund í garð hennar en við­brögð mömmu ýttu ævin­lega undir sam­keppni og reiði milli okkar.

Við syst­urnar vorum aldrei nánar. Hún átti sína vini og ég mína. Áhuga­málin voru ger­ó­lík. Ég var á kafi í alls konar listum en hún var íþrótta­stelpa. Vildi helst alltaf vera að sparka bolta eða klifra upp um fjöll. Ég á hinn bóg­inn var síteikn­andi og skrif­andi. Bjó til sögur, leik­rit og ljóð sem við vin­kon­urnar settum upp í kjall­ar­anum heima og seldum aðgang að. Ég var svo­lítið dramat­ísk og draum­lyndur krakki og orti róm­an­tísk ljóð.

Agnesi fannst þetta frámuna­lega hall­æris­legt og gerði stólpa­grín að mér. Einhvern tíma komst hún í dag­bók­ina mína og dreifði ljóð­unum mínum um allt í skól­anum. Hún og vin­konur hennar gengu hart fram í að hæða mig og spotta en til allrar lukku fyrir mig var ég vin­sæl meðal jafn­aldra minna og þeir þekktu vel hugs­ana­hátt minn svo þetta ein­elti varð minna en hefði getað orðið.

Alltaf jafnar

Hjá Agnes og vin­konum hennar sner­ist allt um keppni. Hún var mjög metn­að­ar­full og keppn­is­skapið hljóp stundum með hana í gönur. Hún keppti í öllu. Þannig fékk hún mig einu sinni til að skrifa texta á blað og fór með fram til mömmu og spurði hvor okkar skrif­aði betur. Mamma sagði auð­vitað að bæði væri jafn­gott og þá kom Agnes sigri hrós­andi inn í her­bergið mitt og sagði að það þýddi að hún hefði fal­legri rit­hönd en ég því hún væri yngri. Mér sárn­aði þetta og fór fram og spurði mömmu hvort henni væri virki­lega alvara, því aug­ljós­lega voru mínir stafir betur form­aðir en Agnesar. Hún svarð­aði því sama.

Þegar ég var tólf ára ákvað ég að safna  hári. Þegar það var orðið axla­sítt kom Agnes að mér að greiða mér fyrir framan speg­il­inn. Ég sagði eitt­hvað á þá leið að mér fynd­ist þetta ganga vel. Það þoldi hún ekki svo hún hvæsti á mig að þetta gengi nákvæm­lega ekki neitt því hárið á mér væri styttra en hennar sem væri alls ekki að safna og hefði nýlega farið í klipp­ingu. Þetta var fárán­leg full­yrð­ing því hárið á mér var minnst 5 cm síð­ara en hennar og ég hló bara.

Agnes storm­aði þá fram til mömmu og spurði hvor okkar væri með síð­ara hár. „Þið eruð með jafn­sítt hár,“ svar­aði mamma. Ég tromp­að­ist og spurði hana hvað væri eig­in­lega að henni. Hvort hún héldi virki­lega að það væri gott fyrir systur mína að alst alast upp við veru­leikafirr­ingu. Mamma hellti sér þá yfir mig og hund­skamm­aði mig fyrir að þessa eilífu afbrýði­semi og sam­an­burð við systur mína. Ég reyndi að benda á að það væri ekki ég sem ætti frum­kvæðið af honum heldur Agnes. Mamma sagð­ist þá ekki taka þátt í þessu. Hún ætl­aði ekki að bera okkur saman.

Réttlæti og sanngirni

Ég reyndi að benda á að Agnes hefði sína kosti og ég mína. Ég vildi bara fá að eiga það sem ég ætti í friði og fá við­ur­kenn­ingu á því. Annað mætti Agnes gjarnan fá að hafa. Það væri ekki gott fyrir okkur að halda fram að við stæðum jafn­fætis á öllum sviðum þegar það væri alls ekki svo. Ég vildi fá sann­girni og rétt­læti og hún sem full­orðin mann­eskja, yfir­valdið á okkar heim­ili og mamma okkar gæti útdeilt því. Þessu svar­aði mamma ekki og rak mig út.

„Mamma og pabbi voru alveg ösku­reið þegar það gerð­ist og kenndu mér um. Ég reyndi að afsaka mig með því að eilíft suð og stríðni Agnesar gæti eng­inn þolað þegj­andi að eilífu en þá hreytti mamma því í mig að ég væri eldri og mér bæri að vægja.“

Agnes var góður náms­maður og gekk alltaf vel í skóla. Hún var ævin­lega hæst í sínum bekk og þótt mér gengi ágæt­lega og væri í hópi bestu nem­enda var ég aldrei meðal fimm efstu. Ég varð oft­ast sjö­unda til tíunda í röð­inni. Agnes hreykti sér af þessu og minnti mig reglu­lega á að henni gengi miklu betur en mér. Það fór ofboðs­lega í taug­arnar á henni að mér var alveg sama. Ég hló bara þegar hún tal­aði um þetta og sagði að ég væri virki­lega hreykin af henni.

Margt fleira smá­legt kom upp á meðan við vorum börn og ég fékk að heyra að hún væri smekk­legri ég, vin­sælli, skyn­sam­ari, rök­fast­ari og fleira og fleira. Stundum gat ég leitt þetta hjá mér en það kom líka fyrir að tuðið náði til mín og ég missti stjórn á mér. Það end­aði í öskrum, látum og slags­málum. Mamma og pabbi voru alveg ösku­reið þegar það gerð­ist og kenndu mér um. Ég reyndi að afsaka mig með því að eilíft suð og stríðni Agnesar gæti eng­inn þolað þegj­andi að eilífu en þá hreytti mamma því í mig að ég væri eldri og mér bæri að vægja. Sá vægði er vitið hefði meira.

Einangruð og sár

Með þessum orðum fannst mér mamma taka afger­andi afstöðu með systur minni gegn mér. Þess vegna fannst mér ég vera ein­angruð og utan­garðs á heim­il­inu, ekki til­heyra þess­ari fjöl­skyldu. Sú til­finn­ing magn­að­ist þegar ég varð ung­lingur. Agnes var enn barn og til­raunir mínar til að mála mig, klæð­ast skvísu­fötum og gera mig fína voru hlægi­legar að hennar mati og hún naut þess að gera lítið úr mér og stríða mér. Einhvern tíma varð hún reið við mig út af ein­hverju og eyði­lagði allar snyrti­vör­urnar mínar. Ég varð brjáluð og klag­aði í mömmu sem eins og venju­lega tók afstöðu með Agnesi. Hún sagði mér að ef ég væri ekki alltaf svona vond við litlu systur mína væri hún betri við mig.

Ég var sann­færð um að Agnes væri upp­á­halds­barnið og ég kol­bít­ur­inn. Þannig upp­lifði ég mig alltaf en eftir að ég varð full­orðin hef ég farið að líta þetta öðrum augum. Ég held að mamma hafi ein­fald­lega ekki vitað betur, að hún hafi raun­veru­lega haldið að með því að halda alltaf fram að við stæðum jafn­fætis og taka aldrei afstöðu þegar við rif­umst væri hún að sýna að henni þætti jafn­vænt um okkur báðar. En vegna þess að þetta var ekki rétt og alls ekki sann­gjarnt á nokkurn hátt var ekki hægt að kom­ast hjá því að skynja aðgerðir hennar sem mis­munun. Ég túlk­aði hana þannig að hún væri Agnesi í vil og að vissu leyti var hún það því hún var yngri. Mamma var að varði hana frekar og áleit að ég, sú eldri ætti að skilja það.

„Ég var sann­færð um að Agnes væri upp­á­halds­barnið og ég kol­bít­ur­inn. Þannig upp­lifði ég mig alltaf en eftir að ég varð full­orðin hef ég farið að líta þetta öðrum augum.“

Vandinn var hins vegar sá að ég var líka barn, þurfti stuðn­ing, hrós og finn­ast ég metin að verð­leikum. Þessi leið­in­lega sam­keppni Agnesar gerði það að verkum að ég fékk ekki færi á því og bast fjöl­skyldu minni aldrei sterkum böndum. Ég átti mjög góðar vin­konur og eign­að­ist athvarf heima hjá einni þeirra. Þar leið mér vel og mamma hennar varð í raun sá stuðn­ingur sem ég þráði. Hún hrós­aði mér stöðugt og virt­ist hafa óbilandi trú á mér. Án hennar hefði ég aldrei þorað að fara í lista­skóla og aldrei náð að þroska mína hæfi­leika.

Eftir að við Agnes urðum full­orðnar dró úr sam­keppn­inni og sam­an­burð­inum. Ég flutti ung að heiman og fór mjög ólíka leið í mínu lífi. Við erum ágætar vin­konur í dag þótt af og til slett­ist upp á vin­skap­inn. Það ger­ist mest vegna þess að við erum svo ofboðs­lega ólíkar. Mamma hefur hins vegar aldrei viljað við­ur­kenna að hún hafi gert mis­tök hvað mig varð­aði og gert það að verkum að ég fjar­lægð­ist hana. Hún heldur enn fram að afbrýði­semi mín í garð systur minnar hafi verið und­ir­rót ósam­komu­lags­ins okkar í milli. Ég veit hins vegar að ég hef aldrei öfundað Agnesi, aldrei langað að líkj­ast henni heldur eig­in­lega þvert á móti. Ég þráði ástúð og við­ur­kenn­ingu mömmu þegar ég var lítil og finnst að hana hafi ég aldrei fengið.

Spenn­andi lífs­reynslu­sögur er að finna í hverri Viku. Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða áskrift hér á vefnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur