Tobba Marínós er hætt er sem ritstjóri DV. Ástæðan er að hennar sögn sú að hún vill einbeita sér að eigin rekstri en hún framleiðir granóla, sem er nokkurs konar múslí og er yfirleitt borðað í morgunmat.
Tobba segir í tilkynningu sem birtist á Hringbraut, sem er í eigu sömu aðila og DV, að sá rekstur sé orðinn það stór að hún geti ekki sinnt ritstjórnarstarfinu. Hún rekur fyrirtækið ásamt móður sinni en þær mæðgur opnuðu veitingastað á dögunum.
Það má segja að granólað hafi átt hug hennar meðan Tobba starfaði sem ritstjóri. Hún var ráðinn fyrir um ári síðan en fyrst um sinn var hún einungis í hálfu starfi því hún þurfti að einbeita sér að granólanu.
„Nú er svo komið að ég get ekki lengur sinnt því aðeins á kvöldin. Ég mun hella mér alfarið út í rekstur á Náttúrulega Gott og Granólabarnum sem opnar vonandi í næsta mánuði,“ segir hún.































Athugasemdir