Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ástin breytti öllu

Þegar Ragn­heiður Dögg Agn­ars­dóttir missti eig­in­mann sinn úr krabba­meini árið 2011 stóð hún frammi fyrir því að þurfa að end­ur­skipu­leggja allt líf sitt og for­gangs­röðin breytt­ist. Í fram­haldi af því stofn­aði hún Heilsu­fé­lagið, ráð­gjaf­ar­þjón­ustu um aukin lífs­gæði, og hefur síðan unnið ötul­lega að því að hjálpa fólki á vinnu­mark­aði, einkum konum, að vinna að betra starfs­um­hverfi og bættum lífs­gæðum. Hún var ákveðin í því að fara aldrei aftur í alvar­legt sam­band en ástin breytti þeirri ákvörðun á ógn­ar­hraða og ári eftir fyrsta stefnu­mót var hún komin í sam­búð.

Eftir stúd­ents­próf frá MR fór Ragn­heiður í nám í sál­fræði við Háskóla Íslands og seg­ist upp­haf­lega hafa ætlað sér að verða klínískur sál­fræð­ingur en það hafi breyst, meðal ann­ars fyrir til­stilli skáld­sögu eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. „Í nám­inu kom í ljós að ég hafði mik­inn áhuga á vinnu­staða­rann­sóknum og starfs­á­nægju og hvað það er sem gerir það að verkum að fólk velur sér ákveð­inn starfs­vett­vang,“ segir hún. „Þannig að ég end­aði í þeim geira og fór að vinna hjá PWC í rúm fimm ár eftir að nám­inu lauk. Við­skipta­lífið hefur alltaf heillað mig og ég man að þegar ég var sextán ára og las Mark­aðs­torg guð­anna eftir Ólaf Jóhann hugs­aði ég að þetta væri spenn­andi heimur sem ég væri til í að skoða betur. Hann var auð­vitað að tala um New York og ég lét mig nú ekk­ert dreyma um að fara þangað, en ég fann að það var þessi heimur sem vakti áhuga minn.“

Eftir árin hjá PWC fór Ragn­heiður að vinna hjá Trygg­inga­mið­stöð­inni, þar sem hún starf­aði í tíu ár, fyrst sem for­stöðu­maður og síðar sem fram­kvæmda­stjóri, en í milli­tíð­inni hafði ýmis­legt drifið á daga hennar, hún var meðal ann­ars orðin ein­stæð móðir.

„Ég á dreng sem er fæddur 1999 sem má segja að ég hafi verið ein með,“ segir hún. „Pabbi hans er frá Nýja-Sjálandi og býr þar og ég bjó þar líka um tíma, en kom heim áður en sonur minn fædd­ist. Það var mjög vel­komið og kær­komið að fá hann í heim­inn og hann varð mikið akk­eri í mínu lífi. Ég hafði verið fyr­ir­mynd­ar­barn og verið mjög skipu­lögð í öllum mínum lífs­að­gerðum fram til tví­tugs. Þá fór ég út til Aust­ur­ríkis og var skíða­kenn­ari þar einn vetur og átt­aði mig á því að heim­ur­inn er risa­stór og hefur upp á fullt af mögu­leikum að bjóða. Þannig að ég próf­aði alls kyns hluti á aldr­inum frá tví­tugu til tutt­ugu og fimm, ferð­að­ist um og vann alls konar vinnu og byrj­aði í sál­fræð­inni. Þetta var sá tími sem ég leyfði mér að vera ekki bara í skóla og gera það sem var ætl­ast til af manni.“

Þegar Ragn­heiður er spurð hvort þetta hafi verið síð­búin ung­linga­upp­reisn skellir hún upp úr og segir að móðir hennar myndi alla vega skrifa undir þá skil­grein­ingu. „Ég held henni hafi ekki alltaf lit­ist á blik­una,“ segir hún hlæj­andi.

Hefðu átt að vera duglegri að leita aðstoðar

Þegar sonur Ragn­heiðar var á fjórða ári kynnt­ist hún Þórði Frið­jóns­syni og þrátt fyrir mik­inn ald­urs­mun, sem hún segir hafa valdið ein­hverjum hneykslun, þró­að­ist sam­band þeirra þannig að þau urðu hjón. „Samband okkar fór af stað í miklum róleg­heitum, það stóð aldrei til að það yrði lang­tíma­sam­band,“ segir Ragn­heiður. „Á okkur var tutt­ugu og tveggja ára ald­urs­munur svo þetta var í raun­inni mjög flókið allt saman og það hvarfl­aði ekki að mér að úr því yrði hjóna­band þegar sam­bandið var á frum­stigi. En það varð samt hjóna­band og ákaf­lega gott sam­band þegar við náðum okkar lend­ingu. Það tók nokkur ár, bæði fyrir okkur að átta okkur á hvað við vildum og kannski ekki síður fyrir umhverfið, að venj­ast til­hugs­un­inni um okkur sem par. En við náðum tíu árum saman allt í allt og vorum svo heppin að eign­ast dóttur saman árið 2007.“

Þórður greind­ist með krabba­mein árið 2010 sem dró hann til dauða á nokkrum mán­uðum og hann lést í febr­úar 2011. Ragn­heiður segir þann tíma hafa verið erf­iðan, ekki síst vegna þess að þau hafi alltaf verið mjög prí­vat með sitt einka­líf og átt erfitt með að leita sér hjálpar í þess­ari stöðu. „Þetta gerð­ist allt mjög hratt og hann varð mjög hratt veikur,“ segir Ragn­heiður spurð um sjúk­dóms­ferli Þórðar. „Þessi tími er í dálít­illi móðu, maður fer auð­vitað bara í þann ham að lifa af þegar maður lendir í svona aðstæðum. Svona eftir á að hyggja hefðum við kannski átt að vera dug­legri að leita okkur ráð­gjafar. Við vorum með tvö lítil börn og bæði í mjög krefj­andi störfum og það þótti kannski ekk­ert sér­stak­lega fínt að vera að leita sér aðstoðar. Við gerðum ein­hverjar til­raunir til þess að fá stuðn­ing og sem betur fer fundum við að lokum stað þar sem við gátum sest niður og talað saman. Ég var reyndar svo heppin að hafa stoð­kerfi, hafði verið sjálf í sam­tölum í langan tíma og gat nýtt mér það og hann kom svo með mér inn í það að ræða við aðila sem ég hafði lengi treyst og það hjálp­aði okkur mikið. Það bjóst auð­vitað eng­inn við því að hann færi svona hratt, nema kannski ég, því hann bar sig alltaf svo vel. Hann náði stundum að plata lækn­ana, enda var hann svo harður af sér að hann vildi frekar tala um nýj­ustu jóla­bæk­urnar við krabba­meins­lækn­inn heldur en ræða það hvernig hann hefði það.“

Dauða Þórðar bar að þegar þau hjónin voru á leið í skíða­ferð til Aust­ur­ríkis sem lækn­arnir höfðu hvatt þau til að fara í. „Krabba­meins­lækn­inum fannst það frá­bær hug­mynd að við skelltum okkur í skíða­ferð,“ útskýrir Ragn­heiður. „Ég var ekki alveg sam­mála því en ákvað að spila með og var að vona að við gætum átt gott frí enda hafði það alltaf verið leið okkar til að slappa af að fara í fjöllin í Aust­ur­ríki, en í þetta sinn komumst við ekki alla leið. Hann veikt­ist svo illa í flug­inu að við fórum ekki á leið­ar­enda heldur beint á sjúkra­hús í Þýska­landi þar sem hann dó. Það var strax slegin skjald­borg um mig og börnin, bæði börn Þórðar og mín fjöl­skylda voru komin til Þýska­lands eftir tvo daga og við fórum öll saman heim með flug­inu viku seinna.“

Það eina sem skipti máli var öryggi og frelsi

Spurð hvort hún hafi þá farið að leita sér aðstoðar hjá fag­að­ilum eftir dauða Þórðar segir Ragn­heiður að hún hafi að sjálf­sögðu notað sinn stuðn­ings­að­ila sem hún hafði verið hjá árum saman áfram auk þess sem hún hafi átt góða að. „Það var mjög verð­mætt fyrir mig að Þórður hafði líka átt sam­töl við þennan ráð­gjafa,“ segir hún hugsi. „En við höfðum alltaf verið mjög prí­vat í okkar lífi og vorum mjög var­færin í því hvert við leit­uðum og við hvern við töl­uðum, auð­vitað vissi ég til dæmis af Ljósinu en ein­hvern veg­inn náðum við aldrei að upp­götva að það væri leið fyrir okkur, enda gerð­ist þetta allt svo hratt. Ég veit að það voru margir sem horfðu á mig og hugs­uðu; hvernig í ósköp­unum fer hún að þessu öllu saman, að vera í mjög krefj­andi starfi með tvö lítil börn og veikan eig­in­mann. En ég bjó að því að eiga góða að á vinnu­staðnum og svo auð­vitað heima fyrir.“

Ragn­heiður segir árið eftir að Þórður dó hafa farið í það að tryggja öryggi barn­anna og end­ur­skipu­leggja líf sitt. „Við fluttum, ég og krakk­arnir, fljót­lega eftir að Þórður féll frá og í raun­inni breytt­ist for­gangs­röðin í líf­inu á einni nóttu,“ segir hún. „Það eina sem skipti mig máli var að ég og börnin værum örugg og þá á ég bæði við fjár­hags­legt öryggi og að við hefðum frelsi til að velja í lífnu. Ég fann það fljót­lega eftir að ég missti Þórð að ég vildi leggja drög að því að breyta um starfs­vett­vang og finna mér annan stað í mínu vinnu­lífi. Árin á Trygg­inga­mið­stöð­inni höfðu verið frá­bær og mikil og góð reynsla en ég sá mig ekki í trygg­inga­geir­anum út starfsæv­ina, mig lang­aði að prófa fleira.“

Skelfilegt hvað konur fara oft illa út úr atvinnulífinu

Árið 2016 lét Ragn­heiður síðan þann draum ræt­ast að stofna eigið fyr­ir­tæki og Heilsu­fé­lagið varð til. Um hvað snýst starf­semi þess? „Heilsu­fé­lagið er ráð­gjaf­ar­þjón­ustu­fyr­ir­tæki fyrir fyr­ir­tæki og ein­stak­linga sem eru að leita að jafn­vægi í lífi og starfi,“ segir Ragn­heiður og það heyr­ist að þessa kynn­ingu hefur hún oft farið með áður. „Reynsla mín segir mér að það er hægt að hámarka lífs­gæði sín á hverjum tíma óháð því í hvaða aðstæðum þú ert. Ég hafði mik­inn áhuga á að vinna við það, ann­ars vegar með ein­stak­lingum í mis­jöfnum aðstæðum, ég vinn til dæmis mikið með stjórn­endum í því að hámarka þeirra lífs­gæði bæði í vinnu og einka­lífi. Síðan vinn ég líka með fyr­ir­tækjum og opin­berum aðilum að umbótum í starfs­um­hverfi og þá sér­stak­lega starfs­um­hverfi kvenna­stétta. Ég brenn mjög fyrir því mál­efni að bæta starfs­um­hverfi kvenna­stétta, sér­stak­lega þeirra sem vinna í mennta- og heil­brigð­is­kerf­inu og hef síð­ustu árin unnið mikið með leik­skóla­starfs­fólki við umbætur á starfs­um­hverfi og vinnu­tíma og hjálpað þeim sam­hliða því að vinna að auknum lífs­gæðum og minnka lík­urnar á því að konur í þeim störfum falli af vinnu­mark­aði vegna álags­bund­inna vanda­mála. Það er eig­in­lega bara alveg skelfi­legt hvað margar af kon­unum okkar fara illa út úr sínu vinnu­lífi og þá sér­stak­lega þær sem eru í ummönn­un­ar­störfum.“

Á rósrauðu skýi eru engar hindranir

Ragn­heiður seg­ist hafa verið harð­á­kveðin í því eftir lát Þórðar að ein­beita sér að sjálfri sér og börn­unum og það hafi ekki einu sinni hvarflað að henni að fara aftur í sam­búð, en Amor lá í leyni og ör hans hitti hana þegar síst varði. Sá heppni heitir Ólafur Steph­en­sen og þrátt fyrir þá ákvörðun Ragn­heiðar að búa aldrei aftur með karl­manni voru þau komin í sam­búð ári eftir fyrsta stefnu­mótið. Hvernig kynnt­ust þau? „Við hitt­umst fyrst fyrir mörgum árum þegar hann var að vinna á Mogganum og ég var ráð­gjafi í mannauðs­málum þar, hann man bara ekk­ert eftir því og ég stríði honum oft á því,“ segir Ragn­heiður og hlær. „Svo þegar ég var að vinna hjá Trygg­inga­mið­stöð­inni og hann í stjórn UN Women tókum við fund um það að Trygg­inga­mið­stöðin styrkti aug­lýs­inga­her­ferð UN Women sem tókst svona ljóm­andi vel. Það var upp­hafið að okkar kynnum. Fyrsta deitið var á rómat­ískum tang­ótón­leikum í Lista­safni Sig­ur­jóns og það næsta var göngu­ferð þar sem fyrsti koss­inn kom á toppi Móskarðs­hnjúka. Allt afskap­lega róm­an­tískt.“

Varst þú ekk­ert treg í taumi eftir þá ákvörðun að fara aldrei aftur í alvar­legt ást­ar­sam­band? „Nei, eig­in­lega ekki,“ segir Ragn­heiður og skellir aftur upp úr. „Ég hafði hugsað mér að ég gæti kannski ein­hvern tím­ann eign­ast vin, ef þannig viðr­aði, en að fara að búa með manni og setja saman fjöl­skyldu var aldrei í spil­unum. En það er svo merki­legt hvað ástin breytir miklu. Þegar maður svífur um á rós­rauðu skýi eru engar hindr­anir til, það eru bara lausnir. Við erum líka bæði ákveðin, fylgin okkur og dug­leg þannig að ef okkur dettur eitt­hvað í hug er það frekar fljótt að ger­ast þannig að við vorum bara komin í sam­búð ári eftir að við kynnt­umst.“

Ragn­heiður á tvö börn úr fyrri sam­böndum og Ólafur þrjú, var ekk­ert erfitt að púsla saman þessum tveimur fjöl­skyldum? „Ég hef stundum sagt að þetta sé kannski önnur stærsta óvænta áskor­unin í mínu lífi,“ við­ur­kennir Ragn­heiður. „Þótt við séum svo svaka­lega heppin að börnin okkar hafi nán­ast frá fyrsta degi verið eins og einn systk­ina­hópur og góðir vinir og þetta hafi aldrei verið vanda­mál með þau þá er þetta auð­vitað stór fjöl­skylda, við teljum átta með tengda­syn­inum, og það getur stundum verið mikil vinna að halda því öllu gang­andi. En við erum sam­stiga og skiptum heim­il­is­hald­inu jafnt á milli okkar og förum í gegnum þetta þótt við séum stundum pínu þreytt. Það er alla vega nóg að gera hjá okkur, þótt maður sé að reyna að vanda sig í því að hafa ekki of mikið að gera. Og ég segi það í fullri ein­lægni að þetta er bara dásam­legt, þótt það hafi vissu­lega ekki verið án áskor­ana.“

Töfrar á hverjum degi í Ljósinu

Eitt af því sem Ragn­heiður gerði eftir frá­fall Þórðar var að bjóða Ljósinu, end­ur­hæf­ingar- og stuðn­ings­mið­stöð fyrir fólk sem hefur fengið krabba­mein og aðstand­endur þess, þjón­ustu sína. Það var vel þegið og nú er hún orðin stjórn­ar­for­maður þess. Hvernig hófst hennar aðkoma að Ljósinu? „Það byrj­aði þannig að bæði stjúp­móðir mín og mág­kona, systir Ólafs, veikt­ust af krabba­meini og eftir að systir Ólafs dó, fljót­lega eftir að við kynnt­umst, ákvað ég að fara niður í Ljós og gera það sem ég hefði átt að gera árið 2011. Ég hitti hana Ernu, for­stöðu­konu Ljóssins, og bauð henni að ég skyldi koma með lífs­gæða­nám­skeið fyrir ljós­ber­ana, Ljósinu að kostn­að­ar­lausu. Við áttum ljóm­andi gott sam­tal og smullum alveg saman, nokkrum mán­uðum síðar var ég komin í stjórn­ina og er nú orðin for­maður stjórnar. Það er alveg dásam­lega gef­andi og skemmti­legt starf, það er alltaf svo mikil jákvæðni, hlýja og gleði í Ljósinu. Sama hvað gengur á í lífi ljós­ber­anna tekst starfs­fólk­inu alltaf að gera dag­ana fulla af orku og lausnum. Það eru töfrar þar á hverjum degi. Þau eru algjörega mögnuð og hvernig þau hafa leyst málin í COVID-ástand­inu er aðdá­un­ar­vert. Krabba­meins­veikt fólk er oft mjög ein­angrað og það hefur verið líf­lína fyrir marga að geta hitt fólk á Facebook, spjallað og gert æfingar og unnið í hand­verki. Þetta er stór­kost­legt starf sem unnið er í Ljósinu.“

„En upp á síðkastið hefur verið dálítið mikið að gera og nú líður mér eins og ég þurfi að setj­ast niður með Lífs­gæða­dag­bók­ina og end­ur­skipu­leggja svo­lítið.“

Á síð­asta ári kom út bókin Lífs­gæða­dag­bókin eftir Ragn­heiði, þar sem hún bendir á leiðir til að auka lífs­gæði og skipu­leggja tíma sinn með ýmsum æfingum. Hún er sjálf lýsandi dæmi um það hversu miklu máli það skiptir að setja lífs­gæðin í for­gang, en eru ein­hverjar breyt­ingar á döf­inni hjá henni á nýju ári? „Góð spurn­ing,“ segir hún hugsi. „Ég var einmitt að velta því fyrir mér hvort það væri kom­inn tími til að fara að huga að því. Í sumar verða komin fimm ár síðan ég stofn­aði Heilsu­fé­lagið og ég hef verið gríð­ar­lega heppin með við­skipta­vini og sam­starfs­fólk, þetta hefur gengið alveg rosa­lega vel og verið ótrú­lega skemmti­legur og gef­andi tími. En upp á síðkastið hefur verið dálítið mikið að gera og nú líður mér eins og ég þurfi að setj­ast niður með Lífs­gæða­dag­bók­ina og end­ur­skipu­leggja svo­lítið. Ég er samt alveg viss um að ég mun halda áfram á sömu braut, það er að segja að vinna að umbótum í lífi fólks og fyr­ir­tækja. Mér finnst hvort tveggja mjög skemmti­legt, elska að vinna með stjórn­endum þannig að þeir læri bæði að hlúa að sjálfum sér og sínu fólki, ég held að við eigum dálítið langt í land með að verða góð í því og langar að hjálpa til við það. Ég vil gera mitt til þess að okkur líði á hverjum degi eins vel með lífið og til­ver­una og við mögu­lega getum. Ég held að COVID hafi kennt okkur það að við eigum ekki að líta á lífið og alla þá ofgnótt og allsnægtir sem við búum að jafn­aði við sem sjálf­sagðan hlut. Kannski ættum við að nota þetta óvenju­lega ár sem hvatn­ingu til að for­gangs­raða upp á nýtt.“

Í hverri Viku birt­ast spenn­andi for­síðu­við­töl við konur með áhuga­verða sögu. Tryggðu þér áskrift.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur