Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ágúst Borgþór hugsar um dauða prentmiðla í Covid-einangrun: „Það versta var að fá símtalið“

Ágúst Borgþór hugsar um dauða prentmiðla í Covid-einangrun: „Það versta var að fá símtalið“

„Þetta er svo­lítið eins og vina­leg­asta fang­elsi í heim­inum. Allir fanga­verð­irnir eru með afbrigðum almenni­legir,“ segir Ágúst Borgþór Sverr­is­son, rit­höf­undur og frétta­stjóri DV, sem situr í sótt­kví í sótt­varn­ar­hót­el­inu á Rauð­árár­stíg eftir að hafa smit­ast af Covid-19. „Þetta er mjög furðu­legt allt saman. Ég hef oft komið áður á Rauð­ar­ár­stíg­inn, en ég aldrei verið vistaður þar áður.“

Hrikalega venjulegt smit

Ágúst Borgþór segir allt benda til þess að hann hafi smit­ast á Íslenska barnum þann 9. apríl. Hann veik­ist síðan þann 13. þessa mán­aðar en þá var hann staddur í sum­ar­bú­stað ásamt eig­in­konu sinni. „Þetta kom mér ofsa­lega á óvart. Þetta er svona dæmi sem maður heldur bara að komi fyrir aðra. Ég var búinn að vera í sum­ar­fríi, hafði að mestu leyti haldið mig heima við og hélt ein­hvern vegin ekki að ég myndi smit­ast á svona hrika­lega venju­legan hátt. Ég hélt að ég þyrfti að eiga pólskan vin, sem ferð­að­ist mikið, eða heim­sækja ein­hverja skrýtna staði. Átti ekki von á að fá hópsmit á Íslenska barnum“.

Ágúst Borgþór ber sótt­kvínni nokkuð vel sög­una. „Það versta var að fá sím­talið og ég gat fyrst ekki hugsað þá hugsun til enda að vera lok­aður inni í þessu her­bergi í tvær vikur. En maður verður að líta á björtu hlið­arnar og núna líður mér vel. Reyndar hefur mér alltaf fund­ist gott að vera einn, sem hjálpar til, en sam­band við aðra er lyk­il­at­riði í þess­ari stöðu. Fólk hefur verið dug­legt að setja sig í sam­band við mig og mér hafa verið sendar körfur með alls konar góð­gæti. En það fylgir þessu minnkuð mat­ar­lyst og þar sem ég hef alltaf verið helst til þungur þarf það ekki að vera slæmt. Reyndar er mat­ur­inn hér þokka­legur, í dag var steiktur fiskur og svo er voða­lega mikið um allskyns eggja­hrærur.“

Ágústi líður vel á vin­gjarn­leg­asta hót­eli heims en leið­ist les­efnið sem hann er með.

Eins og útlensk flensa

Ágúst segir Covid fylgja þreyta og orku­leysi en hann sé allur að koma til. „Þetta fram­kvæmda­leysi fylgir veirunni, og í dag er fyrsti dag­ur­inn sem mér finnst ég hafa ein­hverja orku. Covid er eins og flensa, en með fram­andi og allt að því útlenskum blæ. Ég finn til að mynda eitt­hvað skrítið járn­bragð í háls­inum þegar að ég hósta. En ég finn líka hvernig lík­am­inn er að sigr­ast á þessu, minn gamli skrokkur. Ég er búinn að vera að lesa and­styggi­lega leið­in­lega franska glæpa­sögu sem er óþol­andi, Brúð­ar­kjóll­inn heitir hún. Ég er bölv­aður með það að þurfa að klára allar skáld­sögur, en núna get ég farið að ein­beita mér að skáld­sög­unni sem ég er sjálfur að skrifa. En það er erfitt að skrifa skáld­sögu og ennþá erf­ið­ara þegar maður er með Covid”.

Situr við reyfaraskrif

Ágúst Borgþór er að skrifa hrein­rækt­aðan íslenskan reyfara.

„Þetta er spennu­saga um konu sem hverfur árið 1969. Dóttir hennar, sem var barn að aldri við hvarfið, fer síðan að rann­saka það fjöru­tíu árum seinna. Ég styðst við umhverfi sem ég þekki, Sel­tjarn­ar­nes æsku minnar, auk þess sem við sögu koma glæpafor­ingi og spilltur lög­reglu­maður. Ég er búin að vera að vinna að þess­ari bók í mörg ár en það er alltaf það sama. Um leið og maður fer að vinna sekkur allt í frétt­unum.” Ágúst veltir vöngum.

„Skildi þetta vera fyrsta skáldsagan í heim­inum skrifuð af Covid sjúk­lingi? Það er athug­andi.”

Hann gerir ráð fyrir að dvelja á sótt­varn­ar­hót­el­inu til mán­að­ar­móta en hann á akkúrat helg­ar­vakt á DV 1.maí þar sem hann er frétta­stjóri. Aðspurður um hvort hann stefni á rit­stjóra­stól­inn eftir brott­hvarf Tobbu Marinós segir hann það ekki vera í sínum höndum, það sé eig­anda blaðs­ins að velja rit­stjóra.

„Ég var mjög ánægður með Tobbu sem rit­stjóra. Við vorum reyndar með for­dóma hvort fyrir öðru í byrjun og ját­uðum það hiks­ta­laust“.

Sem ungur maður starf­aði Ágúst Borgþór við „Rauða torgið”, síma­þjón­ustu sem dans­aði á mörkum laga og reglna með því að bjóða upp á frökk sam­töl gegn rausn­a­legu mín­útu­gjaldi. Hann vissi þó að það stæði ekki lengi því Inter­netið myndi taka yfir, jafnt þann bransa svo og frétta­miðl­ana.

„Ég er hissa á hvernig fólk tjáir sig um enda­lok DV sem prent­mið­ils. Það eru engin ný tíð­indi að fólk lesi fréttir á vefnum. Þegar það kveikir á frétta­tíma kvölds­ins er það fyrir löngu búið að lesa frétt­ina þótt RÚV fari dýpra og Kastljós kannski enn dýpra. Mér finnst Mogginn til dæmis vera ansi gott blað en lest­ur­inn á prent­inu er innan við 20 pró­sent. Þjóð­vilj­inn, Tíminn, Pressan og þessi blöð dóu drottni sínum en DV lifði ein­hvern vegin þótt það hefði hæg­lega getað drep­ist líka. Núna munum halda áfram og móta DV sem vef­miðil án prent­aðrar útgáfu og því fylgja eðli­lega ákveðnar breyt­ingar. Það er ágætt að klára þetta vesen núna og fara inn í gott sumar hjá DV,” segir Ágúst Borgþór úr vina­leg­asta fang­elsi heims­ins við Rauð­ar­ár­stíg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur