Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður telur að rætnar sögusagnir um sig i samfélaginu hafi farið á kreik vegna fyrrverandi ástkonu sem var ósátt með sambandsslitin. Hún hafi hótað því að rústa mannorði hans. Svo alvarlegar voru hótanirnar að hans mati að Sölvi leitaði til lögreglu fyrir nokkrum vikum.
Um helgina fjallaði Mannlíf um mikinn sögusveim sem gekk um samfélagið svo dögum skipti og ásakanir kvenna í garð fjölmiðla og samfélagsins um þöggun gagnvart kynferðisofbeldi þjóðþekktra einstaklinga. Nafn Sölva var vissulega í umræðunni eins og fleiri aðila. Gerðar voru ítrekaðar tilraunir til að ná á Sölva vegna málsins en hann valdi að svara ekki svo dögum skiptir og þar sem Mannlíf gat hvorki staðfest né hrakið sögusagnirnar var enginn nafngreindur í fréttinni. Eftir stóðu ásakanir áhrifavalda um ofbeldi þekkts manns gagnvart vændiskonu.
Sjá einnig: Ólöf segir þjóðþekktan mann hafa lamið vændiskonu: „Ég þurfti að slá stjörnurykið úr augunum“
Í yfirlýsingu sem Sölvi sendi frá sér í gær segir hann sögusagnir sem gengið hafa um samfélagið vera algjöran þvætting. Því til sönnunar birti hann útgáfu af málaskrá lögreglu sem þó náði aðeins til tæps mánaðar. Fyrir þann tíma hafði hann leitað til lögreglu vegna ofsókna sem hann segist hafa orðið fyrir. Til að undirstrika sakleysi sitt opnaði hann sig í eigin podcast-þætti þar sem lögmaður hans ræddi við hann. Sölvi bugast þar ítrekað vegna sögussveimsins sem geysaði dögum saman. Það segir Sölvi að fyrrverandi ástkona hans hafi hótað honum mannorðsmissi og vegna þess hafi hann leitað til lögreglunnar fyrir 6 eða sjö vikum síðan.
„Það er það sem er skrýtnast af öllu fyrir mig, að ég vil ekki einu sinni nota það til að svara fyrir mig vegna þess að ég er hræddur um að þá komi sagan: Já, Sölvi, lögregla, hann hlýtur nú að vera sekur. Ég leitaði til lögreglu vegna þess að það er manneskja sem hótar að rústa mannorði mínu,“ segir Sölvi og bætir við:
„Sú manneskja, það var ástarsamband sem gekk ekki upp. Hún var í mjög miklum sárindum yfir því að það væri búið og ég skildi það bara. En ég leitaði til lögreglunnar til að bera hönd fyrir höfuð mér“.
Sölvi segist ekki bera kala til ástkonunnar fyrrverandi sem hafi hótað því að rústa mannorði hans en afréð eigi að síður að leita til lögreglunnar vegna hótananna. Hún hefur sjálf ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Hann er þakklátur öðrum fyrrverandi ástkonum sem hafa sýnt honum stuðning síðustu daga.
„Það sem mér þótti mest vænt um í gær, var að konur sem hafa verið í ástarsambandi með mér hringdu í mig. Þá hrundi ég saman í hvert einasta skipti. Þær segja: Sölvi, eitt veit ég um þig eftir að hafa búið með þér allan þennan tíma. Þú ert ekki svona,“ segir Sölvi.
Hann hefur ekki svarað spurningum fjölmiðla um það hvað lá að baki ofsóknum ástkonunnar en tekur fram í viðtalinu við lögmann sinn að konan sé ekki vændiskona. Eftir stendur að konunni er líst sem ofsóknarkvendi en ekki liggur fyrir hvort hún verði dregin fyrir dóm fyrir meinta aðför að mannorði Sölva.































Athugasemdir