Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Felix í einangrun í Rotterdam: „Mér finnst úkraínska lagið vera alveg geggjað“

Felix í einangrun í Rotterdam: „Mér finnst úkraínska lagið vera alveg geggjað“
Felix Bergsson.

Óvíst er hvort Daði og Gagna­magnið stígi á stokk í und­ankeppni Eurovision á fimmtu­dags­kvöld þar sem allur íslenski hóp­ur­inn er í sótt­kví vegna þess að einn Íslend­ing­anna í lið­inu er með Covid-19; þó ekki neinn í hljóm­sveit­inni sjálfri. Annars yrði spiluð upp­taka af æfingu síð­ast­lið­inn fimmtu­dag og hún notuð í keppn­inni. „Þetta var frá­bær æfing. Þau voru stór­kost­leg á þeirri æfingu. Í augna­blik­inu stefnum við þó ákveðið að því að koma þeim á svið“ segir Felix Bergsson, far­ar­stjóri hóps­ins. 

Margir Íslend­ingar bíða spenntir eftir und­ankeppni Eurovision-söngvakeppn­innar á fimmtu­dags­kvöld en babb hefur komið í bát­inn þar sem einn úr íslenska hópnum greind­ist í gær með Covid-19; þó ekki neinn úr hljóm­sveit­inni. Það á því eftir að koma í ljós hvort Daði og Gagna­magnið munu stíga á stokk á fimmtu­dags­kvöld eða hvort flutt verður upp­taka sem tekin var á æfingu síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Allir í hópnum voru bólu­settir í byrjun maí en það tekur jú bólu­efnið nokkrar vikur að virka frá því að við­kom­andi er bólu­settur. Sá sem er smit­aður veit ekki hvernig hann smit­að­ist en hann er ein­kenna­laus. Vel er fylgst með öllum kepp­endum Eurovision og má geta þess að allir þátt­tak­endur fara í Covid-próf á 48 klukku­stunda fresti. Íslenska liðið dvelur á sama hót­eli og það pólska en smit kom upp hjá pólska lið­inu fyrir nokkrum dögum.

Rólegheit

Mannlíf hafði sam­band við Felix Bergsson, far­ar­stjóra íslenska hóps­ins, sem er í sótt­kví á hót­el­inu eins og aðrir í hópnum. Hann sagði að sér liði prýði­lega í sótt­kvínni.

„Við erum í róleg­heit­unum inni á her­bergj­unum okkar og bíðum frétta.“

Hann sagði jafn­framt að mórall­inn innan hóps­ins væri ágætur.

„Við áttum öll skemmti­legt Zoom-spjall áðan en við höldum einn góðan fund á dag. Við erum mikið í sam­bandi og tékkum á hvert öðru. Við pöntum okkur góðan mat utan úr bæ; ég lendi í ves­eni af því að ég kann ekki á „deli­very“ og svo­leiðis vesen af því að ég er orð­inn svo gam­all en þau hlæja mikið að mér. Við höfum það í raun­inni ótrú­lega gott. Þetta er prýði­legt hótel og okkur líður vel hérna. Enginn er veikur og það er kannski fyrir mestu.“

Smásjokk

Beðið er eftir nýj­ustu nið­ur­stöðum úr Covid-prófum og þá verða næstu skref tekin.

„Við vorum búin að búa okkur undir að eitt­hvað svona gæti komið upp á; við erum búin að vera að fara í gegnum heilsu­prótókól síðan á síð­asta ári þannig að þetta er eitt­hvað sem við vorum til­búin undir að gæti gerst. En auð­vitað er það smá­sjokk þegar það ger­ist og sér­stak­lega af því að þetta er ekki að koma fyrir aðra heldur okkur og svo Pól­verj­ana. Það hefði verið krafta­verk ef allir hefðu getað kom­ist í gegnum þetta án þess að það hefði poppað upp hérna lítið smit.“

Stórkostleg á æfingunni

Ef íslenski hóp­ur­inn fær ekki að flytja lag Daða, 10 Years, á und­ankeppn­inni á fimmtu­dags­kvöld mun verða notuð upp­taka af æfingu síð­asta fimmtu­dags­kvöld eins og þegar hefur komið fram.

Daði og Gagna­magnið við brott­för­ina til Rott­er­dam.

„Þetta var frá­bær æfing. Þau voru stór­kost­leg á þeirri æfingu. Í augna­blik­inu stefnum við þó ákveðið að því að koma þeim á svið. Þetta er verk­efni sem allir þurfa að bregð­ast við við. Við tökum eitt skref í einu. Þetta er fínn og góður hópur og við höfum verið mjög sam­stíga í öllum okkar aðgerðum. Þetta er verk­efni sem við þurfum að leysa og svo bara höldum við áfram hvernig sem þetta fer. Daði og Gagna­magnið eru stór­kost­legir lista­menn og það er mjög gaman að vinna með þeim.“

Fólki þykir mjög vænt um Eurovison

Felix segir að þessi reynsla hafi kennt sér að taka ekki öllu sem gefnu. 

„Það getur ýmis­legt gerst og þá bregst maður við því. Það er bara svo­leiðis. Það er það sem þetta starf snýst um og hefur gert frá því ég tók við því árið 2017. Það er hinn eini sanni lær­dómur í þessu. Ég hef líka lært að fólki þykir mjög vænt um Eurovi­son og vill hag keppn­innar sem mestan. Það vill að keppnin verði haldin og vill fá þennan sjón­varps­við­burð einu sinni á ári þar sem Evrópa sam­ein­ast í söng í þessum frið­sama og skemmti­lega við­burði og risa­stóra sjón­varps­þætti. Og það var mjög gott að finna það að fólk vildi virki­lega fá sitt Eurovision aftur og það er gott,“ segir Felix en eins og flestir muna var keppn­inn ekki haldin í fyrra einmitt vegna heims­far­ald­urs­ins.

Love shine a light

Felix er mik­ill Eurovision-reynslu­bolti og hefur meðal ann­ars séð um í gegnum árin Eurovision-sjón­varps­þætti á RÚV þar sem lögin eru kynnt. Hann er spurður hvað Eurovision sé í huga hans.

„Það er bara fyrst og fremst við­burður þar sem Evr­ópu­þjóðir koma saman, syngja saman og sýna hver annarri hvað þær geta á tón­list­ar­svið­inu. Og þær skemmta sér saman. Þetta er mjög skemmti­legur við­burður og þeir sem hafa upp­lifað Eurovision finna hve mikil gleði fylgir þessum við­burði. Upp­runa­lega er þetta frið­ar­við­burður gerður í lok síð­ari heims­styrj­ald­ar­innar til þess að reyna að sam­eina stríðs­hrjáðar þjóðir Evrópu og í huga mínum hefur það prinsipp aldrei horfið. Þrátt fyrir að ýmis­legt gangi á þá vilja menn koma saman og halda Eurovision,“ segir Felix en það gengur svo sann­ar­lega mikið á núna í heim­inum.

„Þess vegna eru Rúss­arnir þarna ennþá og ýmsir aðrir sem standa í stór­ræðum í sínum heims­hluta svo ekki sé meira sagt. Í raun og veru reyna menn að leggja deilu­mál til hliðar; það er stóra málið í Eurovision. En svo eru menn líka bara að skemmta sér vel, hlusta á skemmti­lega músík og hlæja og dást eða ekki dást að lista­mönnum þjóð­anna.“

Felix er spurður um upp­á­halds­lag sitt í keppn­inni í ár.

„Mér finnst úkra­ínska lagið vera alveg geggjað. Ég er líka hrif­inn af ítalska lag­inu. Það er stór­skemmti­legt glys­rokk; ég er mik­ill glys­rokk­maður. Og Daði er með alger­lega frá­bært lag; hann er með betra lag en í fyrra að mínu mati og sem er held ég á leið­inni að verða alheims­smellur eins og Think About Tings. Frábært lag.“

Hvað með upp­á­halds­lag Felix frá upp­hafi Eurovision?

„Þau eru ansi mörg en ég svara yfir­elitt Love Sine a Light með Katrina and the Waves,“ segir Felix en þetta breska lag sigr­aði keppn­ina árið 1997.

Segja má að texti lags­ins eigi vel við til að lýsa upp í huga fólks um heim allan í þessum heims­far­aldri.

Love shine a light in every corner of my heart

Let the love light carry, let the love light carry

Light up the magic in every little part

Let our love shine a light in every corner of our hearts 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur